Bændablaðið - 16.05.2024, Blaðsíða 19

Bændablaðið - 16.05.2024, Blaðsíða 19
Einar Bárðarson var farinn að finna fyrir verkjum í hnjám við áreynslu, til dæmis þegar hann gekk upp tröppur. Hann segir að Active JOINTS hafi hjálpað sér frá fyrsta degi og hann hafi því mikla trú á virkni þess. „Fyrir um einu og hálfu ári las ég grein þar sem Hartmann reiðhjólamaður mælti með Active JOINTS frá Eylíf sem bætiefni fyrir liðina. Ég ákvað að prófa og fann mjög fljótt mikinn mun þannig að ég gæti að því að taka það inn daglega. Ef ég var kærulaus og gleymdi að taka Active JOINTS í nokkra daga fann ég mun á mér til verri vegar og passa því að sleppa ekki degi úr,“ útskýrir Einar. „Ég fann fyrir sting undir hnéskelinni í tröppum og þegar ég reyndi á mig. Þetta er ekkert alvarlegt en ef maður finnur til veigrar maður sér við að gera ýmislegt sem annars er auðvelt. Ég vil vera sprækur eins og ég á að mér að vera,“ segir hann en Einar er þekktur fyrir að koma ýmsu í verk og er athafnasamur. Einar segir að vissulega skipti það miklu máli að varan sé að öllu leyti íslensk. „Ég treysti íslenskum náttúruvörum vel og finnst óþarfi að flækja hlutina ef það er hægt að fá góða vöru sem er framleidd hér heima,“ segir hann. Eftir þá góðu reynslu sem hann hafði af Active JOINTS ákvað hann að prófa líka Happier GUTS frá Eylíf sem er sérhönnuð íslensk vara gerð til að styrkja meltingarkerfið. „Það var sama með Happier GUTS, ég fann fljótt bætta líðan. Betri melting sem skilar sér í allar áttir í kroppnum. Þannig að ég hef tekið Happier GUTS nánast óslitið síðan ég kynntist vörunni. Ég get mælt með Active JOINTS og Happier GUTS frá Eylíf þar sem þær vörur hafa reynst mér vel,“ segir hann. Einar er önnum kafinn maður með ýmislegt á prjónunum. Til dæmis heldur hann úti vinsælum hlaðvarpsþáttum, Einmitt, sem hafa verið í loftinu frá árinu 2022. „Ég nýt þess að eiga samtöl við fólk sem ég hef mætur á og vil jafnvel kynnast betur, ekki er verra að geta síðan deilt því áfram og framleitt þætti sem fólk hefur gaman af að hlusta á. Það er bara frábært,“ segir hann. „Viðtökurnar hafa farið fram úr öllum væntingum og mér hefur þótt rosalega vænt um það.“ Fram undan er landsmót utanvegahlaupara sem nefnist Hengill Ultra Trail en Eylíf er einmitt styrktar- aðili hlaupsins. „Ég kom inn í þetta verkefni árið 2017 en á stuttum tíma hefur það sprungið út þrátt fyrir Covid og alls kyns uppákomur. Keppendur í ár verða um það bil 1500, bæði innlendir og erlendir, þar á meðal eru um 150 erlendir hlauparar frá þrjátíu löndum. Hveragerði mun því breytast í alþjóðlega hlaupaborg yfir helgina 7. – 8. júní. Eylíf mun færa keppendum í öllum greinum sem komast á pall verðlaunagjafir,“ greinir hann frá. Einar segist vel geta mælt með Active JOINTS fyrir alla hlaupara. „Ég hef heyrt ánægju með vöruna frá mörgum hlaupurum,“ segir hann. Þegar Einar er spurður hvort hann sé sjálfur duglegur að hreyfa sig, svarar hann: „Það fer nú eftir því hvern þú spyrð en líklegast er alltaf tækifæri til að gera betur.“ Vörulínan frá Eylíf Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN & HAIR, Happier GUTS og Stronger LIVER, allt vörur sem hafa reynst fólki vel. Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru: • Kalkþörungar frá Bíldudal • Smáþörungar (Astaxanthin) frá Reykjanesbæ • GeoSilica kísill frá Hellisheiði • Kollagen frá Grindavík og Sauðárkróki • Kítósan frá Siglufirði • Íslenskar jurtir handtíndar frá fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði Hrein íslensk fæðubót frá Eylíf Ókeypis heimsending á eylif.is ef keypt er fyrir 7000 kr eða meira Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup, Krónunni, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum og Nettó Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum, engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er á Grenivík. „Vinsælasta varan er Active JOINTS sem inniheldur fjögur íslensk næringarefni og margra ára rannsóknir sýna fram á staðfesta virkni þeirra. Við vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af landi. Við notum hreina, íslenska náttúruafurð, hrein hráefni sem eru framleidd af viðurkenndum íslenskum framleiðendum.“ Einar Bárðarson Ég vil bara vera sprækur Brenda Pretlove sjúkraliði hefur tekið inn Active JOINTS frá Eylíf til að minnka óþægindi í liðum sem hafa fylgt slitgigt hjá henni. Hún segist finna mun til hins betra eftir að hún kynntist vörunni. „Ég hef glímt við slitgigt í mörg ár en þeim fylgdu miklir liðverkir. Ég er öflug hestakona og fer daglega í hesthúsið þar sem ég er með þrjá hesta. Þar kynntist ég Ólöfu Tryggvadóttur sem framleiðir Active JOINTS og hún hvatti mig til að prófa vöruna. Ég gerði það og Active JOINTS hefur hentað mér einstaklega vel. Þótt það lækni ekki gigtina getur það haldið óþægindunum niðri og mér líður betur eftir að ég fór að taka Active JOINTS reglulega,“ segir Brenda. „Það er alveg klárt að þetta hjálpar mér,“ bætir hún við. „Ég tel að það sé engin spurning að fæðubótarefni geta hjálpað fólki með slitgigt.“ Brenda segir að hún hafi verið með verki í fingrum og slæm í annarri mjöðminni en Active JOINTS hafi algjörlega bjargað henni. „Mér finnst líka alveg frábært að þetta er íslensk vara unnin úr íslenskum hráefnum,“ segi hún. „Önnur dóttir mín er líka að taka inn Active JOINTS með góðum árangri og er áskrifandi að vörunni og fær hana heimsenda.“ Brenda segist bæði hafa prófað Stronger BONES og Happier GUTS frá Eylíf og hafi mikla trú á þessum vörum. „Ég get mælt 100% með vörunum frá Eylíf,“ segir hún. Gerir lífið mitt auðveldara Brenda Pretlove
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.