Bændablaðið - 16.05.2024, Blaðsíða 61
61Líf & starfBændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024
Fyrirferðalítil með 25 ára ábyrgð
Engin rotþró eða hefðbundin siturlögn
Margar stærðir í boði
Tæming seyru á 3 - 5 ára fresti
Veitur framleiða 100 til 200 tonn af sandi á ári sem
hingað til hefur ratað í urðun. Nú leitum við að
samstarfsaðila sem vill nýta sér þennan sand, gefa
honum nýtt líf eða færa til förgunar á ábyrgan hátt.
Vertu velkomin á opinn fund í Félagsheimilinu við
Rafstöðvarveg 20 frá 09 - 10:30 föstudaginn 24. maí.
Heitt kaffi og sandkaka frá klukkan 08:30!
Nánar á veitur.is/sandur
Veitur óska
eftir samstarfiÍ undirbúningi er ritun sögu rétta og gangna í
Dalvíkurbyggð síðustu 100 ára.
Jón Þórarinsson á Hnjúki hafði forgöngu um
verkefnið og segir hann að hugmyndin sé í raun að
bjarga menningarverðmætum með ritun þessarar sögu.
Hann segir að fjöldi rétta á því svæði sem
sveitarfélagið nær yfir hafi ekki verið undir 50 árið
1950 þá sé ótalið kvíar, sel og stekkir.
„Núna eru þær fimmtán sem eftir eru. En við
viljum fá upplýsingar um allar réttir sem hafa einhvern
tímann verið notaðar og myndefni líka. Ætlunin er
að gera þessu öllu eins nákvæm skil og hægt er í
væntanlegu riti.
Í Dalvíkurbyggð eru þrjár fjallskiladeildir sem
haldist hafa óbreyttar frá sameiningu sveitar-
félaganna 1998, það er Dalvíkur, Svarfaðardals og
Árskógsstrandar,“ segir Jón.
Í ritnefnd með honum eru Daníel Hansen, sem mun
skrifa bókina, Vignir Sveinsson frá Þverá og Sveinn
Jónsson. /smh
Dalvíkurbyggð:
Saga rétta og
gangna skrásett
Ritnefndin; Jón Þórarinsson á Hnjúki, Daníel Hansen, sem
mun skrifa bókina, Vignir Sveinsson frá Þverá og Sveinn
Jónsson frá Kálfsskinni. Mynd / Albert – DB blaðið í Dalvíkurbyggð.
Um 100 ára gömul mynd af Klængshólsrétt, inni í Skíðadal.
Mynd / Aðsend
Samfélagsverðlaun Skagafjarðar voru veitt í níunda
sinn við setningu Sæluviku Skagfirðinga á dögunum.
Verðlaunin fóru að þessu sinni til hjónanna Árna
Björns Björnssonar og Ragnheiðar Ástu Jóhannsdóttur
en verðlaunin eru veitt þeim einstaklingi, fyrirtæki,
stofnun eða félagasamtökum í Sveitarfélaginu
Skagafirði, sem þykja standa sig afburða vel í að
efla skagfirskt samfélag.
Það var einróma álit atvinnu-, menningar- og
kynningarnefndar sveitarfélagsins að þau Árni Björn
og Ragnheiður Ásta væru einstakar fyrirmyndir.
„Þau styðja dyggilega við íþróttastarfið í Skagafirði
og eru ávallt fyrst til að bjóða fram hjálp þegar
einhver þarf á að halda og hafa þau margoft staðið
fyrir söfnunum fyrir fjölskyldur og fyrirtæki í neyð.
Með dugnaði, frumkvæði, hjálpsemi, samhygð
og góðu hjartalagi stuðla þau einnig að samheldni í
samfélaginu okkar.
Þau eru ein af ástæðum þess að það er gott að
búa í Skagafirði og við getum verið stolt af því að
tilheyra svo frábæru samfélagi því þau hvetja okkur
hin til þess að verða betri einstaklingar,“ segir á vef
Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
/mhh
Skagafjörður:
Hjón hlutu samfélagsverðlaun
Árni Björn Björnsson og Ragnheiður Ásta Jóhanns-
dóttir, handhafar Samfélagsverðlauna Skagafjarðar
fyrir árið 2024. Mynd / Gunnhildur Gísladóttir