Bændablaðið - 16.05.2024, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024
Skógar íslenskra bænda dafna vítt
og breitt um landið. Engum sem
þá þekkja dylst lengur ágæti og
ávinningur skóganna.
Skipulögð ríkis-
studd skógrækt á
lögbýlum hófst
1991 á innanverðu
Fljótsdalshéraði
(Hérað) með
Héraðsskógum,
verkefni sem var
ýtt úr vör fyrst og
fremst til að koma
í veg fyrir að búseta í sveitinni legðist
af sökum niðurskurðar á sauðfé vegna
riðuveiki. Lagt var upp með að bjóða
bændum að rækta skóg í landi sínu.
Tignarlegur Hallormsstaðarskógur
gaf bændum kjark um árangur
skógræktarinnar. Bændur hófu
gróðursetningar af krafti og í dag,
um þremur áratugum síðar, er Hérað
ein blómlegasta og byggilegasta sveit
landsins.
Dagana 18.–19. apríl fór formaður
stjórnar búgreinadeildar skógar-
bænda hjá BÍ, Hjörtur Bergmann
Jónsson, ásamt stjórnarmanninum
Bjarna G. Björgvinssyni, fyrrum
formanni, Jóhanni Gísla Jóhannssyni
og undirrituðum í ferð um Hérað.
Um árabil hafa aðalskrifstofur
Skógræktarinnar verið á Egilsstöðum,
eða alveg fram að síðustu áramótum
við stofnun Lands og skógar.
Heimsóttir voru vel valdir staðir
með það að markmiði að skilja
forsendur bændaskógræktar í fortíð,
nútíð og ekki síst, framtíð. Skógar á
ýmsum aldri teygja sig vítt og breitt
um sveitina og skógarhögg er hafið
á nokkrum jörðum.
Uppistaða skóganna er lerki og má
vel sjá að grisjunar er þörf á mörgum
bæjum.
Á jörðinni Víðivellir ytri 2 hefur
verið komið upp einni afkastamestu
viðarvinnslu landsins. Þar er
fyrirtækið Skógarafurðir sem hefur
vaxið örugglega á þeim áratug sem
það hefur verið starfandi, enda bæði
mikil eftirspurn eftir íslenskum viði
og framboð timburs úr skógunum
eykst ár frá ári. Þegar föruneytið
bar að garði stóð yfir sögun á ösp
sem ætluð var í utanhússklæðningu
á gistiheimili í Vallanesi (betur
verður komið að því hér síðar).
Bjarki Jónsson, skógarbóndi og
framkvæmdastjóri, sýndi allar nýjustu
græjurnar á staðnum og voru þær af
ólíkum stærðum og gerðum, svo sem
háhraða stórviðarsagir, þurrkgámar,
eldstæði, fræsarar og sagpressa.
Með þessum búnaði er hægt að
ná góðum afköstum í framleiðslu
á pallaefni, panil, arinviði, og því
nýjasta, ylkubbum. Óhætt er að segja
að hugmyndirnar eru margar hjá ört
stækkandi fyrirtæki og áhugavert
verður að sjá fyrirtækið þróast inn
í framtíðina.
Á næstu jörð, Víðivöllum ytri 1,
er að finna annars konar viðarvinnslu
en hjá nágrannanum. Þar fór Hörður
Guðmundsson, skógarbóndi og
þúsundþjalasmiður, yfir ýmislegt
sem hann er að brasa úr efni
skógarins. Mest fer fyrir framleiðslu
á lerkistaurum. Fyrir um sex árum
keypti hann fræsara og hefur
eftirspurn girðingarstaura aukist
ofboðslega ár frá ári. Nú hefur hann
fengið annan fræsara og ætti sú búbót
að halda í við eftirspurnina. Nýjasta
græjan í flotanum er skífuvél sem
lengst af var starfrækt á Flúðum
og síðast í Eyjafirði. Hörður
framleiðir einnig lífkol en þau eru
eftirsóknarverður jarðvegsbætir fyrir
t.d. tún. Þessir þrír vöruflokkar falla
vel hver að öðrum þar sem hráefnið
nýtist fullkomlega.
Á Eskifirði er Einar Birgir
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Tandrabretta, að framleiða
viðarperlur. Í upphafi var lögð
höfuðáhersla á að fullnýta aflögð
vörubretti en með aukinni grisjun
í skógum á Héraði hefur opnast
markaður fyrir viðarperlur úr íslensku
lerki. Hráefnið er aðallega lakara
efnið úr grisjunum sem síður hentar
til flettingar. Viðarperlur úr lerki eru
olíumettaðri en þekkist í perlum víða
í Evrópu og eru fyrir vikið orkuríkari.
Tandrabretti framleiðir viðarperlur
undir merkinu Ilmur auk þess að hafa
umboð fyrir viðarofna sem knúnir eru
viðarperlum. Viðarofnar og nýting
viðar er sjaldnast nefnt í samhengi
orkuskipta en hún hentar mjög vel
fyrir svokölluð „köld svæði“ víða
um land. Ofnar Tandrabrettis hafa
gefið góða raun, t.d. í skóla- og
íþróttamannvirkjum í Neskaupstað
og í Végarði, húsnæði sveitarstjórnar
Fljótsdalshrepps.
Í Vallanesi búa hjónin Eymundur
Magnússon og Eygló Björk
Ólafsdóttir. Undir merkjum fyrirtækis
síns, Móðir jörð, hafa þau getið sér
gott orð fyrir lífræna ræktun og má
finna ýmsa gómsæta vöruflokka frá
þeim í búðarhillum landsmanna.
Án stórvaxinna skjólbelta og
skóga sem umlykja jörðina á alla
kanta er ólíklegt að ræktun væri
jafn árangursrík og raun ber vitni.
Ræktunarskilyrðin hafa batnað svo
mjög að hægt er að líkja því við
að landareignin hafi færst nokkuð
suður á bóginn því veðurskilyrði
eru einfaldlega allt önnur nú en
þau voru áður. Nýverið fengu þau
fellda aðra hverja ösp innan úr einu
stóru skjólbelti í Vallanesi. Þau
báðu Skógarafurðir að saga timbrið
í fjalir og voru í óðaönn að klæða nýtt
gistiheimili með viðnum. Í Vallanesi
stendur veitingahús sem byggt er úr
heimafenginni ösp og gengur húsið
undir nafninu Asparhúsið. Þau hafa
keypt tvo ofna hjá Tandrabretti sem
mata má bæði með viðarperlum og
kurli. Með tilkomu ofnanna munu þau
geta nýtt umfram grisjunarvið síns
eigin skógar til að hita allan húsakost
á jörðinni og eru gróðurhúsin þar með
talin.
Húsakynni sveitarstjórnar-
skrifstofu Fljótsdalshrepps hafa
í yfir fimm ár verið hituð með
viðarperlum frá Ilmi. Sveitarstjóri
Fljótsdalshrepps, Helgi Gíslason, var
á árum áður fyrsti framkvæmdastjóri
Héraðsskóga. Hann hefur fylgst með
trjánum vaxa á Héraði í gegnum árin
og segir að bændaskógræktin hafi
fært sveitinni nýtt og búsældarlegra
líf. Sauðfjárbændur og kúabændur
beita búpeningi í skógana sína glaðir í
bragði. Búseta hefur haldist í sveitinni
og ef til vill braggast.
Heilsusamlegir útivistarmögu-
leikar eru í skógunum á Héraði fyrir
íbúa og gesti á Egilsstöðum, allan
ársins hring.
Búsetuskógrækt:
Skógræktin tryggði búsetu
– Formaður búgreinadeildar skógarbænda BÍ kynnti sér viðarvinnslu á Austurlandi
Hlynur Gauti
Sigurðsson.
Formenn skógarbænda á landsvísu samankomnir. F.v. Hjörtur Bergmann
Jónsson, núverandi formaður búgreinadeildar skógarbænda hjá BÍ, Edda
Björnsdóttir, fyrsti formaður Landssamtaka skógareigenda og Jóhann Gísli
Jóhannsson, sem hefur gegnt báðum stöðum.
Hlynur Gauti Sigurðsson, Hjörtur Bergmann Jónsson, Eymundur Magnússon, Bjarni G. Björgvinsson og Jóhann
Gísli Jóhannsson stilla sér upp við kyndiaðstöðuna á Vallanesi. Mynd / Eygló Björk Ólafsdóttir
Hörður sýnir Hirti og Jóhanni Gísla glænýjar lerkiskífur.
Stórvirk flettisög hjá Skógarafurðum ehf.
SÉRHANNAÐ BREMSUKERFI
FYRIR HJÓLAGRÖFUR
HARDOX® 500 TUF STÁLSVEIGÐUR
FRAMGAFL
skralli@skralli.is
779 1886
VERKFÆRAKASSI
VÖKVAVÖR
... OG FESTINGAR FYRIR GARÐVERKFÆRI OG LED LJÓS OG MARGT, MARGT FLEIRA. KOMDU OG SKOÐAÐU!
FYRIR ÞÁ KRÖFUHÖRÐU