Bændablaðið - 16.05.2024, Blaðsíða 51

Bændablaðið - 16.05.2024, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024 Skoðun Eignatorg kynnir: Geirakot og Geirakot 1, Snæfellsbæ Um er að ræða jörð á einstaklega fallegum útsýnisstað með landi að sjó. Á jörðinni standa tvö íbúðarhús og er nýrra íbúðarhúsið, (Geirakot 1) á einni hæð og mjög mikið endurnýjað. Við húsið er stór bílskúr. Húsið er kynt með öflugri varmadælu. Ljósleiðari er kominn inn og tengdur. Þriggja fasa rafmagn. Heimreið er með bundnu slitlagi. Einungis 6 km eru til Ólafsvíkur þar sem er öll helsta verslun og þjónusta. Verð kr. 165.000.000 Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson, löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða á netfangi: bjorgvin@eignatorg.is Katrín Jakobsdóttir er verðugur þjóðhöfðingi Sem forsætisráðherra í ríkis- stjórn þriggja ólíkra flokka hefur Katrín Jakobsdóttir sýnt mikla hæfni sem þjóðarleiðtogi, manna- sættir og sameiningarafl. Henni hefur farnast vel í því mikla starfi og notið vinsælda og trausts. Hún hefur miðlað málum og leitt fram lausnir í mörgum flóknum stórpólitískum málum. Hún er samvinnumaður, hún er lausnamiðuð og lætur ekki smámál trufla sig. Katrín hefur verið leiðtogi ríkisstjórnar í um sjö ár samfleytt, lengur en hinn farsæli foringi Steingrímur Hermannsson. Í því hlutverki hefur hún tekist á við mjög erfið mál og ber kórónuveirufaraldurinn, sú mikla manndrápspest, þar hæst. Snilld hennar og ríkis- stjórnarinnar var sú að fela læknum og almannavörnum að stýra aðgerðum, þeim Þórólfi Guðnasyni, Ölmu Möller og Víði Reynissyni. Við misstum fólk en fáar þjóðir gerðu þetta betur en við, og efnahagur landsins stóðst álagið. Aðilar vinnumarkaðarins voru samvinnufúsir og því fór betur en á horfðist. Hinn snjalli forseti Bandaríkjanna, Harry S. Truman, sagði: ,,Það má ótrúlega mörgu koma í verk, ef manni er sama hverjum hlotnast heiðurinn.“ Þegar Katrín yfirgefur nú ríkisstjórnina er meiri gróska og uppgangur á Íslandi en víðast annars staðar. Einstökum kjarasamningum til fjögurra ára tókst henni og ríkisstjórn hennar að stýra í höfn og verðbólgan og háu vextirnir eru teknir að lækka. Sannarlega ósvikin og mikilvæg þjóðarsátt. Atvinnustig á Íslandi er með því hæsta í Evrópu. Katrín er sannur Íslendingur og náttúruunnandi. Hún skilur vel grunnatvinnuvegi þjóðar sinnar, en málefni þess veika og smáa býr við hjarta hennar. Sem starfandi landbúnaðarráðherra var hún fundvís á góð ráð og alltaf bændum hliðholl. Á Búnaðarþingi spurði hún á dögunum hvers vegna bændur notuðu ekki fánaröndina á hreinar íslenskar vörur, kjötið, mjólkina og grænmetið, svo valið yrði auðvelt fyrir neytendur. „Þetta gera franskir bændur og fá að nota þjóðfánann fólki sínu til glöggvunar,“ bætti hún við. Þegar ég horfi yfir sviðið er Katrín hreinskiptin og notar aldrei stór eða ljót orð um andstæðinga sína eða nokkurn mann, það er ekki til í hennar vopnabúri. Katrín skorar hátt og af reynslu er hún keppinautum sínum fremri. Þjóð sinni til sóma hvar sem hún hefur komið fram. Forseti Íslands er höfuð stjórnsýslunnar og þar hafa fyrrverandi forsetar oft sýnt hæfni til úrlausnar í vandasömum málum. Katrín Jakobsdóttir mun án nokkurs vafa verða forseti allrar þjóðarinnar frá fyrsta degi og valda erfiðum verkefnum vel. Svo mun hún hafa mannbætandi áhrif á líf okkar og verða mikilsmetinn þjóðhöfðingi sakir mannkosta og reynslu. Höfundur er fyrrverandi landbúnaðarráðherra. Guðni Ágústsson. Hugsaðu jákvætt, það er léttara Hlúðu að því sem þér þykir vænt um Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir Lærðu af mistökum þínum Hreyfðu þig daglega, það léttir lund Flæktu ekki líf þitt að óþörfu Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup Finndu og ræktaðu hæfileika þína Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast baendaged.bondi.is Geðorðin 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.