Bændablaðið - 16.05.2024, Blaðsíða 54
54 Skoðun Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2024
Frá aðalfundum skógarbænda
Vesturland
Aðalfundur Félags skógarbænda á Vesturlandi (FsV) var
haldinn á Hótel Hamri þriðjudaginn 16. apríl. Alls voru
fundarmenn 27 talsins.
Á fundinum fór formaður yfir það helsta sem gerst
hafi á liðnu ári og var þar einkum fjallað um málþing
og árshátíð skógarbænda á Varmalandi í október,
sem var samstarf allra skógarbændafélaganna og
búgreinadeildar skógarbænda BÍ. Voru gestir almennt
ánægðir með hvernig til tókst. Í júní, á afmæli félagsins,
fóru skógarbændur á Vesturlandi í vel heppnaða ferð
um Borgarfjörð, þar sem m.a. var komið við í Reykholti,
en aðal viðkomustaðurinn var hjá skógarbændunum
Árnýju Sigurðardóttur og Friðriki Sigurbergssyni í Ártúni.
Voru móttökur þar höfðinglegar. Að lokum var snemmgrisjunarnámskeið í
vetur þar sem Valdimar Reynisson kenndi meðhöndlun ungskóga.
Engar breytingar urðu á stjórn frá fyrra ári, en í henni eru Sigurkarl
Stefánsson, formaður, Jakob Kristjánsson, gjaldkeri og Kristín Magnúsdóttir,
ritari. Á fundinn kom fjöldi góðra gesta. Fyrst kom fram Hrefna Jóhannsdóttir
hjá Landi og skógi en hún fór yfir starfið fram undan. Hún sagði frá bágri
stöðu fræja á lerkiblendingnum Hrym en ekki er útlit að nokkrum Hrym verði
sáð á næsta ári. Nýir skógræktarráðgjafar Vesturlands kynntu sig fyrir skógar-
bændum. Það voru Gústaf Jarl Viðarsson og Naomi Bos. Þá kom
Hjörtur Bergmann Jónsson, formaður búgreinadeildar skógarbænda BÍ,
í pontu og sagði frá starfi skógarbænda hjá BÍ og má í stuttu máli segja að
unnið sé að mörgum góðum málum í þágu skógarbænda. Að lokum notaði
Valdimar Reynisson skógfræðingur tækifærið og þakkaði skógarbændum
fyrir gott samstarf yfir árin, en Valdimar hefur nýverið byrjað störf fyrir
Ygg carbon. Fundurinn var vel sóttur og vel fór á með gestum fundarins.
Suðurland
Aðalfundur Félags skógarbænda á Suðurlandi
(FsS) var haldinn á Hótel Stracta laugardaginn
4. maí. Á fundinn mætti alls 21 gestur.
Gestir fundarins voru Ágúst Sigurðsson,
forstjóri Lands og skóga, og Hjörtur Bergmann
Jónsson, nýkjörinn formaður Skógardeildar BÍ.
Í upphafi fundar flutti Ágúst erindi og fór yfir starfið
sem unnið er hjá stofnuninni og þá aðlögun sem
fram undan er, eftir sameiningu Skógræktarinnar
og Landgræðslunnar. Að því loknu svaraði hann
spurningum úr sal. Í lok fundar flutti Hjörtur einnig
erindi um starfið hjá SkógBÍ og áskoranirnar sem
fram undan eru og svaraði spurningum. Var almenn
ánægja fundargesta með bæði erindin.
Formaður FsS fór yfir starfið á árinu og er þar helst að nefna
Skógardaginn sem haldinn var í einmuna veðurblíðu á Suðurlandi 23.
ágúst. Farið var í ferð um nytjaskógrækt í uppsveitir Árnessýslu. Heiti
skógardagsins var „Skógur nú og til framtíðar“ og var öllum helstu
aðilum í skógargeiranum á Suðurlandi boðið í ferðina, sem heppnaðist
einstaklega vel. Ferðin var kostuð af Félagi skógarbænda á Suðurlandi
og var frítt fyrir alla þátttakendur. Þá má næst nefna hina árlegu skógar-
göngu í júní sem að þessu sinni var farin að Uppsölum í Fljótshlíð þar sem
Steinunn og Ísólfur Gylfi tóku á móti gestum og sýndu skóginn sinn. Þá
var fræðslu- og umræðufundur haldinn á Reykjum á vormánuðum þar sem
umræðuefnið var umhirða skóga og var sá fundur vel sóttur. Þrír leshópar
eru starfandi innan félagsins og er áhugi fyrir því að stofna fjórða leshópinn
fljótlega. Leshóparnir koma saman nokkrum sinnum á ári og fjalla um
málefni sem varða hina ýmsu þætti skógræktar í víðu samhengi og skoða
skógræktina hjá félögum sínum. Unnið er að þriggja ári verkefni í afurða-
og markaðsmálum sem félagið stendur fyrir. Leitað skal að vöruflokkum/
úrvinnsluleiðum sem koma til greina í úrvinnslu skógarafurða. Verkefnið,
sem fékk nafnið „Úr skógi“ verður unnið í þremur þrepum á jafnmörgum
árum. Haldinn var almennur fundur um skógrækt á Hótel Höfn 23. apríl
sl. Fundarefni var staðan í skógrækt í Sveitarfélaginu Hornafirði. Horft
til framtíðar.
Breytingar á stjórn frá fyrra ári eru þær að í stað Rafns A. Sigurðssonar
í aðalstjórn kemur inn Októ Einarsson en Rafn fer í varastjórn. Þórarinn
Þorfinnsson víkur úr varastjórn. Stjórnina skipa þá, í aðalstjórn eru
Björn Bjarndal Jónsson, formaður, Ragnheiður Aradóttir, Hrönn
Guðmundsdóttir, Sólveig Pálsdóttir og Októ Einarsson. Varastjórn skipa
Rafn A. Sigurðsson, Agnes Geirdal og Sigríður J. Sigurfinnsdóttir.
Austurland
Aðalfundur Félags skógarbænda
á Austurlandi (FsA) var haldinn
á Eiðum fimmtudaginn 18. apríl.
Mættir voru 34 félagar og
tveir gestir, Hjörtur Bergmann
Jónsson, formaður búgreinadeildar BÍ
(SkógBÍ) og Hlynur Gauti
Sigurðsson, sérfræðingur um
umhverfismál hjá BÍ. Maríanna
formaður setti fundinn, Bjarni G.
Björgvinsson stjórnaði fundi og
Halldór ritaði fundargerð.
Stjórn var óbreytt milli ára,
Maríanna Jóhannsdóttir, formaður,
Vigdís Sveinbjörnsdóttir, Þórhalla Þráinsdóttir, Þorsteinn
Pétursson og Halldór Sigurðsson.
Stóru verkefni félagsins eru annars vegar Skógar-
dagurinn mikli sem haldinn var í Hallormsstaðaskógi
24. júní 2023, sem allt að 2.000 manns sóttu. Margir
úr samfélaginu komu að skipulagningu og framkvæmd
dagsins. Meðal nýbreytni á síðasta ári var aðkoma
Náttúruskólans. Hinn stóri viðburðurinn er Jólakötturinn
sem á síðasta ári var haldinn í þéttbýlinu, í húsi Landsnets.
Það var líklega sett nýtt met í aðsókn og samstarfið
við Landsnet var mjög gott og vonandi verður hægt að
halda Jólaköttinn aftur að ári á sama stað. Vinnuframlag
félagsmanna FsA í báðum þessum viðburðum skiptir
miklu máli og þeim sem komu að þeirri vinnu eru færðar
þakkir fyrir. Farin var hópferð á málþing skógarbænda
sem haldið var á Varmalandi í Borgarfirði í október sl.og
þótti það vel heppnað.
Sex fulltrúar frá FsA, sem jafnframt eru í BÍ, fóru á
deildarfund búgreinadeilda BÍ. Jói Gísli lét af störfum sem
stjórnarformaður LSE og formaður skógarbændadeildar
BÍ. Voru honum þökkuð góð störf. Bjarni G. Björgvinsson
er nú fulltrúi FsA í stjórn SkógBÍ. Frá FSA fóru tillögur
fyrir deildafundinn: Annars vegar um eignarhald bænda
á kolefnisbindingu í bændaskógrækt og hins vegar um
Skógaskrá, þar sem skorað var á Land og skóg að fylgja
því eftir að skógarskrá verði uppfærð og aðgengileg eins
og lög gera ráð fyrir – lög nr. 33 frá 15. maí 2019, 8. grein.
Félagið hefur gert athugasemdir við taxtaútreikninga
mörg sl. ár og ítrekaði FsA skoðun sína að fara þurfi
ítarlega yfir þann grunn sem liggur til grundvallar töxtum
í bændaskógrækt. Lagt var til að skipa starfshóp sem
fari yfir þennan grundvöll. Áfram er ágreiningur um
girðingar og búfé. Þar koma margir að, bæði opinberir og
einkaaðilar. Enn þá eru reglurnar þannig að það þarf að
girða í kringum trjáplöntur sem plantað er í samningum
eins og gilda um bændaskógrækt. Þetta verður ekki
leyst nema með samtali milli þeirra sem eiga í hlut.
Sótt var um styrk til Matvælasjóðs þar sem
Skógræktarfélag Íslands leiðir samstarf margra hagaðila
um skógarmat; – Hvernig mun þinn matarskógur líta
út?, með áherslu á Fljótsdalshérað.
Á árinu var farið í skógargöngu. Þeir Elvar,
Gunnar og Brynjólfur Vignissynir hafa ræktað
sérstaklega skemmtilegan skóg og útbúið sælureit
við Ekkjuvatn í Fellum. Þeim var þakkað fyrir
þeirra framlag. Jón Kristófer Arnarson garðyrkju-
fræðingur mun halda námskeið í gerð sælureita í
skóginum. Eftir framlagningu reikninga voru skýrsla
og reikningar samþykkt samhljóða.
Í félagið gengu fjórir nýir aðilar.
Maríanna, Halldór og Þórhalla gáfu ekki kost á
sér til áframhaldandi setu í stjórn. Í nýrri stjórn eru
Kjartan Glúmur Kjartansson, Lilja Sigurðardóttir,
Sigfús Oddsson, auk Vigdísar og Þorsteins. Til vara
eru Vilhjálmur Karl Jóhannsson og Aníta Mjöll
Ásgeirsdóttir. Skoðunarmenn eru Edda K. Björnsdóttir
og Elvar Vignisson. Því næst gaf fundarstjóri Hirti,
formanni Skóg BÍ, orðið. Hjörtur tók við starfi formanns
á deildarfundi í vetur, en forveri hans, Jóhann Gísli hefur
verið honum til halds og trausts. Frá deildarfundinum
komu tillögur er vörðuðu samtal við nýja stofnun,
Land og skóg, stefnumörkun skógarbænda, Norður-
landasamstarf, næsta málþing skógarbænda að Laugum
í Sælingsdal, og viðurkenningu á eign skógarbænda
á kolefnisbindingu í eldri skógum. Fundarmenn
spurðu spurninga varðandi CE-vottanir á timbri,
kolefnisbindingu, vottanir í skógrækt og þung áhersla
var á framvindu Kolefnisbrúar.
Jóhann Þórhallsson bauð Hjört velkominn til starfa
fyrir skógarbændur.
Að lokum flutti Bergrún Arna Þorsteinsdóttir erindi,
„Matarkistan í skóginum“. Þar fór hún yfir berjatínslu
og sultugerð auk annarra afurða sem nýta má til matar.
Má þar nefna sveppi, lauf, sprota og jafnvel börk.
Ragnheiður
Aradóttir.
Sigurkarl
Stefánsson.
Halldór
Sigurðsson.
Kælar - Undirborðskælar - Minibarir - Frystar
24/7
OPIÐ
VERSLUN.IS
Kæli- og frystitæki