Kjarnar - 01.05.1954, Síða 12

Kjarnar - 01.05.1954, Síða 12
mikið af lærdómsbókum, en nóg af mat og drykk.“ Feit og sköruleg miðaldra kona reis á fætur, og beindust nú allra augu að henni. Hún var á rauðum sokkum með g'ula kápu yfir sér. Á höfði bar hún vefjarhött mikinn, sem virtist mundu vega tíu pund að minnsta kosti. Malarinn hafði hvíslað einhverju í eyra henni, sem lit- aði kinnar hennar engu minni roða en var á sokkum hennar, hún skellihló, og kom þá í ljós, að tennur hennar höfðu týnt tölunni. „Já, drengir góðir,“ tók hún til máls. „Ég hef átt fimm eiginmenn frá því ég var tólf ára. Og er nú að líta í kringum mig eftir þeim sjötta ... Guð bauð okkur að aukast og marg- faldast, og ég hef samvizkusam- lega breytt eftir boði hans ... Þegar ég tala um ástalíf, þá veit ég hvað ég segi ... Fimm menn hef ég elskað svo heitt að þeir dóu allir. Og megi himnafaðir- inn vera sálum þeirra líknsam- ur ...“ Ungur maður með flaksandi hár stökk á fætur. „Það veit hin heilaga jómfrú, að þessi prédik- un var orð í tíma töluð. Ég ætl- aði einmitt að fara að festa mér konu...“ Kvöldið hafði verið skemmti- legt. Nú var kominn tími til fyr- ir pílagrímana að ganga til náða, því að þeir ætluðu að halda á- fram í býtið að morgni. Um leið og pílagrímarnir stóðu upp frá borðum, tók gestgjafinn svo til orða: „Góðir bræður,“ sagði hann. „Þið eigið langa leið fyrir höndum að morgni. Ég vil benda ykkur á ráð til að stytta tímann. Segið hver um sig tvær sögur á leiðinni til Canterbury og tvær á leiðinni til baka. Og fyrir þær sögur, sem dæmast beztar, skal höfundurinn fá ó- keypis gistingu og fæði í Tabard gistihúsi, þegar þið komið aft- ur.“ Pílagrímarnir samþykktu þetta með miklum fagnaðarlátum og gengu svo til hvíldar. Geoffrey Chaucer opnaði aug- un. Hann var aleinn eftir. Hann hafði blundað í horni sínu yfir vínflöskunni. Tabard gistihúsið og umhverfið hafði máðst út. Gestgjafinn var nú að slökkva á kertaljósunum. Chaucer reis á fætur. „Gaman væri að vita,“ tautaði hann, „hvers konar sögur þessir pílagrímar segja hverir öðrum.“ Gestgjafinn horfði á hann hálfskrítinn á svip. „Voruð þér að hugsa um eitthvað, herra minn?“ „Já,“ svaraði Chaucer og brosti við. „Canterbury sögurn- ar.“ ★ 10 Kjarnar — Nr. 35

x

Kjarnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.