Kjarnar - 01.05.1954, Page 20

Kjarnar - 01.05.1954, Page 20
allt mun til bóta breytast. Því að heyrðu mig, Jón,“ sagði hann, „sem ég er lifandi maður, þá ætla ég að leggjast með stelp- unni. Einhverja uppbót verður lögmálið að veita okkur, því að til er lögmál, sem hljóðar svo: Bíði einhver tjón, skal honum bætt það upp. Það er búið að stela frá okkur korninu, er það ekki, við getum ekki neitað því, og óheppnin hefur elt okkur allan daginn, og úr því að ég get ekki fengið neinar skaðabætur, þá verð ég að bæta mér upp tjónið á þennan hátt, við spjót Golíats, það er ekki hægt ann- að.“ Jón sagði: „Hugsaðu þig um, Allan, malarinn er hættulegur maður, og ef hann hrekkur upp, þá getur hann limlest okkur báða.“ Allan svaraði: „Iss, ég blæs á hann!“ Að svo mæltu reis hann á fætur skreið upp í til stúlk- unnar. Hún steinsvaf, hann kom svo nærri, áður en hún varð hans vör, að of seint var að æpa, og það er fljótsagt — það tókust með þeim góðar ástir. Góða skemmtun, Allan. Nú er að segja frá Jóni. Jón lá nú grafkyrr eina klukkustund eða svo og kvart- aði og kveinaði með sjálfum sér. „Æ,“ sagði hann, „þetta er ljóta klúðrið. Eg er sjálfum mér til skammar. Félagi minn fær þó eitthvað fyrir snúð sinn. Hann hvílir í faðmi malaradótturinn- ar, hann tók á sig áhættuna og fær þrá sinni svalað. Og ég ligg hér eins og rekadrumbur. Og þegar sagan berst út, þá verð ég álitinn aumingi, pelabarn! Ég fer og geri hið sama, svei mér þá! „Gæfa fylgir djörfum,“ eins ^og sagt er.“ Og hann reis upp, læddist að vöggunni, lyfti henni upp og bar hana varlega að sínu rúmi. Rétt á eftir hætti konan að hrjóta og rumskaði, skrapp út og hvarf fyrir horn, kom inn aft- ur og saknaði vöggunnar, fálm- aði hér og hvar, en gat ekki fundið hana. „Ó,“ sagði hún, „ég var rétt að segja farin að villast, ég var í þann veginn að fara upp í til klerksins. Sveiattan, þá hefði ég verið illa komin.“ Og hún hélt áfram, þar til hún fann vögguna. Hún þreifaði stöðugt fyrir sér með hendinni, fann rúmið og hélt sig vera á réttri leið, því að vaggan stóð fyrir framan það; hún vissi ekki hvar hún var, því að kolniðamyrkur var inni. En hún hjúfraði sig upp að klerknum, lá kyrr og var í þann veginn að sofna. Eft- ir stundarkorn færðist Jón klerkur í aukana og hóf stór- sókn. Slíks unaðar hafði frúin ekki notið í háa herrans tíð; 18 Kjamar — Nr. 35

x

Kjarnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.