Kjarnar - 01.05.1954, Síða 22

Kjarnar - 01.05.1954, Síða 22
Vaknaðu, Símon, djöfullinn er kominn ofan á mig. Ég fæ hjartaslag, hjálp, ég ,er hálf- dauð. Það liggur einn þversum yfir mig og annar á höfðinu. Hjálp, Simpkin, klerkasvínin eru að slást!“ Jón þaut á fætur svo fljótt sem hann gat og þreifaði fyrir sér meðfram veggnum til þess að finna barefli, konan stökk upp líka, hún var kunnugri í stofunni en Jón og fann strax kökukefli við vegginn. Og hún sá ljósbjarma, því að máninn gægðist inn um gat, og í ljós- bjarmanum sá hún báða áfloga- seggina, en hún var ekki alveg viss um hver væri hver, og svo sá hún glitta í eitthvað hvítt. Og þegar hún kom auga á það, þá hélt hún að klerkurinn hefði verið með nátthúfu. Og með keflinu sló hún til af alefli og einu sinni enn, og hélt sig hafa ráðið niðurlögum Allans af mik- • illi hreysti, en það var þá óvart skallinn á malaranum, sem höggin lentu á. Og í gólfið bylt- ist hann öskrandi: „Æ! Ég dey!“ Klerkarnir þjörmuðu vandlega að honum og létu hann svo liggja, bjuggust til brottferðar, tóku hest sinn og mjölið líka og héldu leiðar sinnar. Og í myll- unni tóku þeir köku úr hálfri skeppu mjöls, prýðilega bakaða. Þannig var malarinn dramb- sami lúbarinn og missti af mal- aða hveitinu og varð auk kvöld- verðarins fyrir ýmsum útlátum til Jóns og Allans, sem léku hann sannarlega grátt. Enda fer það svona, þegar malari gerist svika- hrappur. Þess vegna segir mál- tækið satt, sem hljóðar svo: „Sér grefur gröf þó grafi.“ Og himna- faðirinn blessi þetta samkvæmi, stóra og smáa. SKRÍTLUR •— Hvað er refsingin fyrir tvíkvæni? — TvEer tengdamæður! ★ — Það gleður mig að kynnast yður, — ég hef heyrt svo margt sagt um yður. — Þér skuluð ekki trúa því, — það er tóm lygi allt saman. ★ Faðirinn: — Næturklúbbur! Ég held ég færi nú seinast á svoleiðis stað. Sonurinn: — Já, við erum nú líka vanir því. ★ Konan símar frá baðstaðnum: Hef létzt um helming á fjórum vik- um. Hvað á ég að vera lengi? Maðurinn svarar: Vertu fjórar vik- ur enn. ★ j Frúin: — María, ég skar mig í fing- urinn. Náðu í eitthvað til að vefja um hann. — Já, ég kalla bara í húsbóndann. Kjarnar — Nr. 35 20

x

Kjarnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.