Kjarnar - 01.05.1954, Qupperneq 43
hann. „Hún kom annars til Ame-
ríku með föður sínum — hann
er að koma þar upp einskonar
útibúi, og við fórum strax að
vera saman.“
„Ha? Þú og faðirinn?“ spurði
hún sakleysislega.
„Nei, Jonna og ég auðvitað.
Hún er dásamleg, Katrín.“
„Vafalaust! Jæja, Róbert, nú
verður þú að fara!“ Hún stóð
upp.
„Ekki strax. Getum við ekki
farið og borðað morgunverð ein-
hvers staðar? Nema þú eigir
eitthvað í ísskápnum?“ Hann
brosti feimnislega.
„Ekki svo mikið sem einn
lauk. Annars er klukkan hálf
fjögur, — fullseint til að borða
morgunverð.“
„Ég borðaði náttúrlega klukk-
an tólf,“ sagði hann niðurdreg-
inn, „en ég fékk ekki í mig hálf-
an, satt að segja er ég svangur
allan daginn, skal ég segja þér.
í Ameríku hafði ég aldrei neinn
tíma, og vikurnar, sem Jonna og
faðir hennar voru þar, hlupum
við úr einu í annað — það er
víst eins konar vaneldi.“ Hann
stóð vandræðalega á fætur.
„Áreiðanlega,“ svaraði hún
rólega. Satt að segja héngu fötin
utan á honum, en hún sagði að-
eins: „Vertu sæll, Róbert!“
„Já, en — hvenær sé ég þig
þá aftur?“ sagði hann aum-
ingjalega.
„Ég kem í brúðkaupið,“ sagði
hún vingjarnlega.
Klukkan fjögur daginn eftir
hringdi síminn hennar. Það var
Róbert. „Góðan daginn, Katrín,“
sagði hann auðmjúkur. (Ekki
Kitty — aldrdei framar Kitty.)
„Góðan dag,“ svaraði Kitty
kuldalega. „Hvaðan hringirðu.
Ertu að borða morgunverð?11
„Já — bara svolítinn auka-
bita.“ Hann andvarpaði: „Mat-
stofurnar eru ekki nærri því
eins góðar og áður en ég fór.
Maður faer ekki nóg fyrir pen-
ingana. Það er líka þess vegna
— ég á við, ég hef fengið prýði-
lega hugmynd, Katrín.“
„Að hugsa sér! Segðu mömmu
hvað það getur verið.“
„Ég hef fengið miða í leikhús-
ið í kvöld — ég fékk þrj á,“ sagði
hann ákafur.
„Það var gott — hvað heitir
systir Jonnu?“
„Hvað þá ... Nú, þú hefur
ekki skilið mig. Jú, sjáðu til,
mér datt í hug, að við þrjú, þú
og Jonna og ég — þetta er gott
leikrit, Katrín.“
„Ég hef séð það,“ greip Kitty
fram í.
„Já, en þú hefur ekki hug-
mynd um, hvað það er, sem við
ætlum að sjá.“
Kjarnar — Nr. 35
41