Kjarnar - 01.05.1954, Side 45

Kjarnar - 01.05.1954, Side 45
„Jonna, þú manst eftir Kitty, er það ekki?“ spurði Róbert fjörlega. „Ó-jú,“ sagði Jonna með hárri og skýrri rödd. „Ég man sérstak- lega eftir hnetusalati, sem þér framreidduð, og voruð með svuntu, sem fór yður svo yndis- lega, eins og þér væruð vaxin upp í henni.“ Slanga, hugsaði Kitty, en stillti sig. Upphátt sagði hún vinsamlega: „Ég er líka á viss- an hátt fædd með svuntu. Ég gef út matreiðslubók árlega, ungfrú Thorsen.“ „Ég veit það,“ sagði Jonna brosandi, „en eru réttirnir yðar ekki nokkuð fitandi?“ Það brá fyrir leiftri 1 augum Kittyar. „Ég hef einmitt sett saman sérstæðan hvítasunnu- miðdegisverð, og það er vel hægt að borða hann jyrir hvítasunnu. Mynduð þið vilja smakka hann — öll þrjú?“ Hún brosti einkum tii Kristjáns. Þessu hafði Jonna ekki búizt við, hörð augu hennar litu hvasst á Róbert, en hann játaði þessu með svo mikilli hrifningu, að viðstaddir sneru sér við og brostu. „Ágætt, þá segjum við á laug- ardaginn,“ sagði Kitty með handarhreyfingu, sem virtist gefa til kynna, að nú gætu þau Kjarnar — Nr. 35 farið aftur að sínu borði, við- talinu væri lokið! Kitty hóf undirbúning veizl- unnar snemma á laugardags- morgun. Yfirþjónninn, vinur hennar, lofaði henni völdum bita af nautakjöti, og afgreiðslu- fólkið í verzlununum, þar sem lrún var vel þekktur viðskipta- vinur, snerist í kring um hana eins og ævinlega. En þegar hún lauk upp fyrir gestum sínum, grunaði engan, hversu erfiður dagur.nn hafði verið. Hún hafði snyrt sig og farðað mjög svo djarflega og var klædd rósbleikum kjól vel flegn- um og mjög víðum að neðan. Hún hafði hvelfdan barm og var tíguleg í framgöngu, svo að Jonna, sem var smávaxin og grönn, virtist tilkomulítil og lit- laus í samanburði við hana. Kristján hafði ekki augun af henni og sló henni marga gull- hamra og bætti svo við: „Finnst þér ekki líka, Róbert?“ og Kitty var sigrihrósandi með sjálfri sér. Hún hafði opnað einu dósina sem hún átti af skjaldbökusúpu og bar fram ætisveppi og rækj- ur með. „En sniðuglega sam- sett,“ hrópaði Róbert himinlif- andi og tæmdi tvo diska. Nauta- kjöt yfirþjónsins var glóðar- steikt, blóðrautt í sárið og þakið gljásykruðum kastaníum og 43

x

Kjarnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.