Kjarnar - 01.05.1954, Page 51
er með þarf. En þrátt fyrir það,
að við höfum ekki efni á að hafa
ritara, getum við þó létt byrði
þá er síminn leggur okkur á
herðar. Við getum haft símatæk-
ið sem lengst frá vinnustofu og
verustað okkar. Verum róleg er
við tökum símtólið. Áður en
gengið er að símanum, er rétt að
draga nokkrum sinnum djúpt
andann, og koma ró á taugarnar.
Hlaupið ekki að símanum, held-
ur gangið rólega. Þegar þér
hringið til annarra, eigið þér að
spyrja á þessa leið: „Gerði ég
ónæði? Ef svo er, get ég hringt
síðar.“
Hafið símasamtölin stutt.
Klukkan er annar harðstjór-
inn. Tímaharðstjóra mætti kalla
hana. Við erum afar tímabund-
in nú á dögum. Menn hafa kom-
ið sér saman um að hittast á
vissum stað og stundu; menn
verða seint fyrir og flýta sér þá
afarmikið. Níu tíundu þeirra
slysa, er koma fyrir á götum úti,
eru því að kenna, að menn flýta
sér of mikið. Menn detta í stig-
um, renna til á gólfábreiðum,
ganga á móti rauðu ljósi á göt-
unum, aka bílnum of hart og
veldur það árekstrum og slys-
um.
Ákveðið það, að láta tímann
(þ.e. klukkuna) ekki fá svo
mikið vald yfir yður, að þér
þess vegna lendið í lífsháska,
eða týnið lífinu af of miklum
asa. Farið að heiman á morgn-
ana fám mínútum fyrr en brýn
nauðsyn ber til, svo þér þurfið
ekki að hraða för yðar of mikið.
Hafið sömu reglu, er þér þurfið
að hitta einhvern á vissum tíma.
Reynið að forðast að hamast all-
an daginn, hvíldarlaust. Veitið
sjálfum yður nokkurra mínútna
hvíld á milli þess er þér hamist
við störfin. Þá getið þér tekið
undir með heimspekingnum, er
sagði: „Það er gleymd list að
gera ekkert. En hún er gagnleg.“
Gætið þess, að slíta ekki kröft-
unum svo óstjórnlega, að þér
eiglð ekkert þrek til þess að
framkvæma aukavinnu, ef þörf
krefur.
Sú harðstjórn, sem dagatalið
veldur, er innifalið í orðinu ótti.
Og átakanlegust eru hin drep-
andi högg þessa harðstjóra, er
vér berum kvíðboga fyrir morg-
undeginum.
Við látum oft sigra okkur af
ástæðulausum ótta við morgun-
daginn. Ég hefi sjúkling, er
næstum því gengur af göflun-
um í hvert sinn, er skattgreiðslu-
tímar nálgast.
Hættulegasta vopn dagatals-
ins er, að líkindum, óttinn við
ellina. Fjöldi manna verður laf-
hræddur við umhugsunina um
Kjarnar — Nr. 35
49