Kjarnar - 01.05.1954, Blaðsíða 57

Kjarnar - 01.05.1954, Blaðsíða 57
blöð, minnist þú óljóst þokukenndra hillinga liðinna tíða, löngu gleymdra staða, sem stóðu þér fyrir hugskotssjónum í bernsku. Nú virðist þér þetta draumar einir. En — ef það voru draumar, sem þig eitt sinn dreymdi, hvaðan mundi þér hafa komið efniviðurinn í þá? Draumar vorir eru fáránleg samsuða þeirra hluta, sem vér þekkjum. Jafnvel einföldustu draumar vorir eru ofnir úr þráðum reynslu vorrar. Er þú varst lítið barn, dreymdi þig að þú hrapaðir ofan af háum tindum; þér fannst þú svífa um loftið, eins og loftsins börn gera; þú þóttist eiga í höggi við skríðandi köngullær og þúsundfætt kvikindi í forardíkjum; þú heyrðir undarlegar raddir og sást ann- arlegar, skelfandi sýnir, er þér virtust gamalkunnar, svo sem við getur borið í illum draumum, og þú starðir á árblik og aftanroða, sem var ólíkt öllu því, er þú minntist að hafa nokkru sinni séð. Gott og vel. Þessar daufu bernskuhillingar stafa frá öðrum ver- öldum, öðrum tilverum, hlutum, sem þú hafðir ennþá aldrei kynnzt í þessari veröld þíns eigin lífs. En hvaðan voru þær komnar? Hvað merkir þetta: Aðrar veraldir — aðrar tilverur? Ef til vill munt þú — þegar þú hefur lesið það, sem ég skrifa •— hafa fengið svar við spurningum þeim, sem ég hef sett fram, spurningum, sem þú hafðir spurt sjálfan þig áður en þú last bók mína. ★ Þá er að segja frá dáleiðsluaðferð Standings á sjálfum sér. Hann liggur á klefagólfinu reyrður í spennistakkinn: „Ég byrjaði að einbeita viljanum — einbeita honum að litlu tánni á hægra fæti. Öllum mínum viljakrafti einbeiti ég að því, að hún skyldi hætta að lifa í meðvitund minni. Ég vildi að hún skyldi deyja — deyja með tilliti til alls, er mér viðkom, herra hennar, sem kom hún ekki vitund við. Þetta var hörð barátta, það hafði Morrell sagt mér fyrir. En það komst ekki að hjá mér neisti af efa, sem gæti veiklað trú mína. Ég vissi, að táin sú arna myndi deyja, og ég vissi það þegar hún var dauð. Lið fyrir lið dó hún, knúin til þess af vilja- mætti mínum. Úr því var það auðvelt, en hægt gekk það, það verð ég að játa. Smám saman hættu allar tærnar á fótum mínum að vera til, lið fyrir lið. Svo kom að því, að fætur mínir voru dauðir upp að öklum — og svo upp að hnjám. Sál mín var í slíku uppnámi, að ég fann ekki einu sinni til stolts Kjarnar — Nr. 35 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Kjarnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.