Kjarnar - 01.05.1954, Síða 59

Kjarnar - 01.05.1954, Síða 59
„Kjarnar" munu nú birta tvo sjálfstæða kafla úr þessari bók Jacks Londons sem framhaldssögu, er endast mun nokkur hefti, og má óhætt fullyrða, að fáum mun leiðast lesturinn. Hefst þá fyrri kaflinn, sem fjallar um ævintýri Darrells Standings, þegar hann var Adam Strang. ★ ADAM STRÁNG Ég var eitt sinn Adam Strang, Englendingur. Tímabilið, þegar ég var uppi, var, eftir því sem mér telst til, einhvers staðar milli 1550 og 1650, og-ég varð, eins og þið munuð fá að heyra, háaldraður. Allt frá því að Ed Morrell kenndi mér „skemmri dauðann“, hef ég iðrast þess sárlega, að hafa ekki fyrr á ævinni lært betur sögu. Þá hefði ég getað þekkt og staðsett margt og m:kið, sem nú er óljóst fyrir mér. En svo sem það nú er, verð ég oft að geta mér til um stað og tíma fyrri æviskeiða minna. Það er einkennilegt við tilveru mína sem Adam Strang, að ég man svo lítið frá fyrstu þrjátíu árum ævinnar. Margoft hefur Adam Strang vaknað til lífsins, þegar ég var í spennistakkinum, en ætíð er hann fullvaxinn, gildur á velli og fullra þrjátíu ára að aldri. Ég Adam Strang, vakna ævinlega til meðvitundar á láglendum, sendnum eyjaklasa einhvers staðar við miðjarðarlínu í vesturhluta Kyrrahafsins. Þar finn ég að ég á heima, og mér finnst ég hafa dval- ið þar nokkra hríð. Fólkið á þessum eyjum skiptir þúsundum, en ég er eini hvíti maðurinn. Hinir innfæddu eru glæsilegur kynflokkur, þeir eru vöðvamiklir, herðabreiðir og hávaxnir. Algengt er að karl- menn séu sex fet á hæð. Konungurinn, Raa Kook, er að minnsta kosti sex fet og sex þumlungar, og þótt hann sé nær þrjú hundruð pundum að þyngd, samsvarar hann sér svo vel, að enginn myndi kalla hann feitan. Margir af höfðingjum hans eru eins miklir vexti og konurnar eru ekki mikið minni en karlmennirnir. Það er fjöldi eyja í þessum klasa, sem Raa Kook ríkir yfir, þótt minni þyrpingin í suðri sé stundum í uppreisnarhug. Þessir inn- fæddu, sem ég bý hjá, eru Suðurálfumenn; ég veit það af því, að hár þeirra er slétt og svart. Húð þeirra er sólbökuð, gull-brún að lit. Tungumál þeirra, sem ég tala leikandi, er mjúkt og ríkt og söngvið, með mjög fáum samhljóðum, að mestu samsett af sérhljóðum. Þeir Kjarnar — Nr. 35 57

x

Kjarnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.