Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 44
ÆVAR R. KVARAN:
HAFSTEINN BJÖRNSSON MIÐILL
SEXTÍU ÁRA
Á hvítasunnudag árið 1937 stóð lágvaxinn, grannleitur 22
ára gamall maður skelfdur í stofumh á Sólvallagötu 3 fyrir
framan hið aldna og þjóðkunna skáld Einar H. Kvaran. Ungi
maðurinn var fjósamaður hjá Geir bónda í Eskihlíð. Hann
var kominn heim til Kvarans samkvæmt ósk hans og var nú
farinn að sjá eftir því að hafa lagt í þetta stórræði, óframfær-
inn og uppburðariaus. Þetta var Hafsteinn Björnsson. Þegar
skáldið hafði boðið Hafsteini sæti, var allt í einú spurt: „Sjáið
þér nokkuð hérna inni?“ Hafsteinn stóð á öndinni fyrst í stað,
en svaraði svo lágt: „Já.“ „Hvað sjáið þér?“ spurði Einar.
„Harald Nielsson,“ svaraði hann ungi skyggni maður. Þá
horfði skáldið beint í augun á Hafsteini og sagði að honum
fannst allhvasst: „Hvernig getið þér sannað það?“ Þá var
unga manninum öllum lokið og hann kom ekki upp orði fyrir
ótta sakir. En í því kom Gislína, kona skáldsins, til hjálpar
og sagði: „Eigum við ekki að koma okkur fyrir og reyna fund,
pabbi?“ En þannig ávarpaði hún jafnan mann sinn. Það var
gert og með því hófst hinn frægi miðilsferill Hafsteins
Bjömssonar.
Einar H. Kvaran átti þá ekki nema ár eftir ólifað, en öll-
tun tímanum sem eftir var, varði hann til þess að þjálfa
þennan unga sálræna mann, því hér hafði hann fundið af-
burðagáfur á þessu sviði.
Síðan hefur Hafsteinn verið óspar á að geta þess, að eng-
um manni eigi hann meira að þakka en Einari H. Kvaran.
Fólk gerir sér almennt ekki grein fyrir þvi, hversu erfið og