Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 55
UNDARI.EGT ÆVINTYEI
133
ur hennar, sem gefur fúslega samþykki sitt. Faðir hennar ber
nú bónorðið fram við dóttur sína og er þess mjög fýsandi, en
hún færist undan og getur gert piltinum orð og eiga þau
launfund um kvöldið, og þá ákveða þau að strjúka saman. En
faðir hennar kemst að áformi þeiiTa og lokar hana inni. Síð-
an er hún flutt nauðug í kvennabúr höfðingjans. Það er hvort-
tveggja, að honum jiykir upphefð að mægjast við kastala-
höfðingjann og hefði heldur ekki styrk til að standa gegn
vilja hans og ofriki. Hann lætur kastalahöfðingjann ekki vita
um ástæðuna fyrir mótþróa stúlkunnar gegn vilja höfðingj-
ans, því pilturinn er einn af beztu liðsmönnum hans. En
nokkru síðar kemur kastalahöfðinginn til föður stúlkunnar
og kvartar undan því, að liann geti hvorki með góðu né illu
unnið ástir stúlkunnar og heimtar af honum skýringu á því,
hvernig standi á þessu. Þá verður hann að segja honum eins
og er og framselja honum piltinn, og er honum kastað í
kjallaradýflissuna.
Höfðinginn lætui' ekki drepa piltinn, en lætur hann búa
við svo illan kost, að hann hlýtur að veslast upp, og gerir
hann það i hefndarskyni við stúlkuna fjnir ástleysi hennar
og láta hana vita, að hans bíður ekki parna annað en lang-
varandi kvaladauði. En unnusta ; sins getur með aðstoð
annarra stúlkna kvennabúrsins og ambáttanna komið nægri
°g góðri fæðu til fangans, en þessar konur hötuðust allar við
sinn grimma húshónda. Unnusta piltsins ól með sér þá von
að geta ráðið þennan harðstjóra af dögum ásamt syni hans,
sem átti að erfa kvennabúrið, en báðir urðu frá að falla ætti
frelsi að nást.
Þegar ég sé þessa glæsilegu konu, sem ég hef áður lýst,
koma ofan stigann, er hún á leið með vistir til fangans og
höfðinginn þá í hernaði, sem síðar skal nokkuð vikið að; en
einmitt nú talar stúlkan til mín á hugflutningamáli sínu, og
gefur mér innsýn í hugsanagang fólksins og framkomu þess,
venjur og lifnaðarhætti, til skýringar því, sem hér er verið
að sýna mér.
Þessi kona er fædd og uppalin í kvennabúri föður síns.