Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 14
ÆVAR R. KVARAN:
NÝTT FORM MIÐILSFUNDA
. Salarrannsoknarfelae Islands hefur notað
Hatioatundur _ .. . . , . TT ,
sextues almæli okkar astsæla mioils iiat-
1 V IKIllíTflSðl ^
steins Björnssonar, til þess að vekja athygli
á frábærum hæfileikum hans á áberandi hátt. Þannig stofnaði
félagið til sérstaks hátíðarfundar þann 1. nóv. s.l. í Víkinga-
sal Hótel Loftleiða í Beykjavík. Hér var gerð alldjörf tilraun,
sem lá í því, að haldinn var transfundur með Hafsteini í viður-
vist um tvö hundruð manns í jullri birtu. Hringurinn var
ásamt miðlinum myndaður með tveim sitjurum og fimm
öðrum. Kvöldið áður hafði farið fram undirbúningsfundur
fyrir þessa tilraun heima hjá Hafsteini með forseta og vara-
forseta félagsins, Guðmundi Einarssyni og Ólafi Jenssyni. Á
þeim fundi var leitað ráða stjórnenda miðilsins um fyrir-
komulag þessa sérstaka tilraunafundar í Víkingasalninn.
Stjórnendur voru reiðubúnir til samstarfsins að venju, og
tekin sú ákvörðun, að Vinur aðalstjórnandi miðilssambands
Hafsteins, sem venjulega lætur sér nægja að varpa kveðju
á fundarmenn í upphafi funda, tæki nú að sér yfirstjóm og
framkvæmd þessa óvenjulega tilraunafundar, sem fara skyldi
fram að viðstöddu fjölmenni í fullri birtu.
Sökum birtunnar var ákveðið að Hafsteinn hefði hin sér-
stöku dökku gleraugu, sem fengin hafa verið frá Brezka sálar-
rannsókn arf élaginu.
V.inur ákvað að þetta yrði fræðslufundur
miðaður við þá fundargesti, sem ókunnugir
eru fyrirkomulagi, tilgangi og takmarki mið-
ilsfunda. Form fundarins yrði, að fundarmönnum væri frjálst
að leggja hvers konar spurningar fyrir Vin, sem annaðist
svörin.
Vinur leggur
á ráðin.