Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 32
110
MORGUNN
var hann hrifinn af skyggnilýsingafundunum og taldi Haf-
stein mesta miðilinn, sem við ættum nú á íslandi.
Þessi kynning þeirra Hafsteins og Erlendar leiddi svo til
þess, að Bandariska sálarrannsóknarfélagið (American Societjr
for Phsychical Research) bauð Hafsteini vestur sumarið eftir
og dvaldist hann þar um tíma. Voru haldnir þar fundir og
Hafsteinn rannsakaður af frægum dulfræðingum við sálar-
rannsóknarfélögin vestan hafsins, bæði í New York og Virg-
iníu. 1 fyrra sumar var Hafsteinn aftur kallaður á fund þess-
ara manna og tilkynnt, að þeir sæju honum fyrir íbúð og öllu,
sem með þyrfti, meðan hann væri undir þeirra handleiðslu.
Fyrir nokkrum vikum kom Hafsteinn til mín og og sagði
mér, að fyrir skömmu hefði hann fengið hoðsbréf frá Sálar-
rannsóknarfélagi Bandaríkjanna, um að koma enn vestur
næsta sumar og dveljast þar um tíma og halda fundi á vegum
þeirra. Er þetta í annað sinn, sem Hafsteinn er kallaður á fund
þessara frægu sálarrannsóknarmanna, og af því má marka,
aYþeim þykir eitthvað til hans koma. Allt eru þetta háskóla-
gengnir menn og viðurkenndir sérfræðingar.
Hafsteinn er líka ánægður og þakklátur þessum mönnmn,
sem hafa sýnt honum slíka velvild og aukið frama hans. Nú
er enginn uggur í honum lengur við þessar rannsóknir. Mér
finnst engin undur, þótt svo hafi verið í fyrstu. Um leið og
miðillinn fellur í dásvefn, hverfur sjálfsmeðvitund hans, en
aðrar verur koma og nota líkama hans og talfæri. MiðiBinn
veit ekkert hvað gerist og ræður engu þar um. Þeir að hand-
an undirbúa fundina og enginn hér megin veit hvað kann
að gerast á slíkum fundum. Ég veit, að Hafsteinn er stund-
um mjög eftir sig eftir suma fundi og eftir einn fund, sem
haldinn var fyrir mörgum árum siðan, mun hann hafa legið
í viku. Þótt miðilsstarfinu fylgi ýmis óþægindi og áhættur,
er miðilsstarfið mikilvægasta starf í heimi, en því miður einnig
eitt hið vanþakklátasta starf sem unnið er og hefir engan
stuðning að baki sér fjárhagslega hér á landi.
Röddin, sem talaði til mín í eldhúsinu og sagði: „Nú er
Hafsteinn heima“, var breið og hrein og ákveðin. Mér fannst