Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 93
í STUTTU MÁLX
FYRIRBOÐI?
171
Það mun hafa verið aðfaranótt annars febrúar 1959 að mig
dreymdi eftirfarandi draum:
Ég þóttist vera stödd í stofunni heima hjá mér, innari um
margt fólk, er var í áköfum samræðum. Heyri ég þá allt í
einu frá útvarpinu lag, sem ég þekkti vel, sungið af blönduð-
um kór, en lagið vissi ég ekki að neinn utan minna nánustu
bæri kennsl á. Lagið heitir Haustljóð, gert við samnefnt kvæði
Davíðs Stefánssonar. En nú er það svo með þetta litla lag,
sem enn er ekki til nema í handriti, að það er samið sem
einsöngslag, en ekki kórlag. Og í draumnum undraðist ég það
mjög að það skyldi vera flutt í útvarp án leyfis. En meðan
ég hlustaði fannst mér þó að það fara mjög vel í blönduðum
kór og vera snoturlega farið með það. Það voru sungin fleiri
en eitt erindi, en athygli mín beindist fyrst og fremst að lag-
inu — og hvernig það yrði kynnt á eftir og fannst mér ég
híða þess í ofvæni, en samtal fólksins í stofunni truflaði mig
og að lokum Jióttist ég skipa því að steinþegja. Söngurinn
hljóðnaði og í staðinn fyrir rödd þularins heyrði ég nú rödd
Jóns Pálmasonar alþingismanns: Þetta eru þjóSlög. Ég hrökk
við, þetta var undarleg kynning, þar sem lagið var aðeins eitt,
og var ég um leið glaðvakandi.
Ingibjörg Stefánsdóttir.
T febrúar 1959 fórust eins og kunnugt er skipin Júlí og
Hermóður. Með Júlí fórust 30 manns, en með Hermóði 12
manns.
Það féll í hlus Jóns Pálmasonar, sem þá var forseti sam-
einaðs alþingis, að tilkynna á öldum ljósvakans alþjóð afdrif
þessara marnia.