Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 84
162
MORGUNN
Aton nálægur, jafnt hinum lægsta sem honum hæsta; hann
situr jafnt viS borð fátæklingsins og furstans.
Öhjákvæmileg afleiðing þess að trúa á ópersónulegan alls
staðar nálægan alföður var lýðræðisleg afstaða gagnvart öllmn
stéttum þjóðfélagsins. Aton átti sér bústað í þrælnum: hinn
aumasti ánauðugur maður var þátttakandi í guðdómnum. Ef
Aton fór ekki í manngreinarálit og gerði ekki upp á milli ætta
eða stétta, bar þeim, sem þjónaði honum, ekki heldur að gera
það. Þannig varð lýðræðishugsjónin eðlileg afleiðing réttrar
túlkunar á alheimslögmálinu. Ef maðurinn skilur Guð rétt og
lifir fullkomlega samkvæmt þeim skilningi, þá er líf hans og
heimur í réttu samræmi, eins og það á að vera. Þá þarf harin
engu að kvíða.
FAÐIR VOR, ÞtJ SEM ERT Á HIMNUM,
HELGIST ÞITT NAFN,
TILKOMI ÞITT RlKI. VERÐI ÞINN VILJI,
SVO Á JÖRÐU SEM Á HIMNUM.
GEF OSS Á MORGUN VORT DAGLEGT BRAUÐ.
FYRIRGEF OSS VORAR SKULDIR, SVO SEM VÉR
OG FYRIRGEFUM VORUM SKULDUNAUTUM.
VERTU OSS LEIÐARLJÖS Á TlMUM ERFIÐLEIKA,
OLGU OG FREISTINGA.
LEIÐ OSS Á VEG RÉTTLÆTISINS
I ÞÍNU NAFNI.
Þann 27. apríl 1934 var Edgar Cayce spurður hvort FaSir-
voriö væri rétt skráÖ í Biblíunni. MánuÖi síÖar las Cayce þessa
frœgu bæn ótilhvattur í dái í þeirri mynd, sem hún birtist
hér áÖ ofan.