Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 81
SONUR SÓLAR 159
uðu í bjarrna hennar; hinir björtu kaerleiks-geislar sólarinnar
vöktu hvarvetna gleði og frjósemi.
Sá skilningur uppljómaði hug Ekn-Atons, að sólin væri ekki
aðeins tákn dýrðar Guðs og mikilfengleika himneskra afla,
heldur einnig lífsuppsprettunnar sjálfrar. Guðdómurinn stjórn-
aði ekki úr logandi vagni á himnum, heldur rann saman við
alla jörðina hlúandi að lífi hinna minnstu frjóa moldarinnar og
málandi blómin hinum ólikustu blæbrigðum. Það var hyldýpi
milli hinna köldu steinandlita sem störðu í órafirrð í skuggum
musteranna og Guðs Ekn-Atons, sem alls staðar var nálægur
°g hfgefandi; veitti vængjum fuglsins styrk og var aflgjafi
allra hinna iðandi vera jarðarinnar. Og Ekn-Aton laut í lotn-
mgu sannleikanum, sem hann hafði uppgötvað og bauð sjálfan
sig sem fórn hinni eilífu, skínandi sól.
Sem tákn trúar sinnar valdi Ekn-Aton hið ljómandi andlit
Atons, sólkringluna. Ljóma Atons sýndi hann með geislum,
sem leituðu í allar áttir frá sólskifunni. Hver geisli endaði í
tnannlegri hendi, og skildi það tákna hið iifandi afl ljóssins, og
stundum var í hendinni kross, crux ansata, tákn lifgjafans. öll
sýndi myndin ahs staðar nálæga hönd Guðs í öllum hlutum.
„Réttu mér liendur j)ínar“, hrópaði Ekn-Aton í trúarhrifningu
sinni. Er jiessi kærleiksríki maður hafði öðlazt jiann innri skiln-
tng, að Guð væri líf, ljós og kærleikur, gat hann ekki fundið
neins staðar í allieiminum neitt rúm fyrir vanþekkingu, hatur
og illsku.
Sumir Egyptalandsfræðingar eru jieirrar skoðunar, að Ekn-
Aton hafi verið fyrsti maðurinn, sem hafi gert sér grein fyrir
Guði sem föður og bræðralagi mannanna. Þegar hann neitaði
að senda heri gegn Hittítum jtá færði hann hina fullkomnustu
fórn; hann fórnaði ba'ði sjálfum sér og heimsveldinu í þeirri
öruggu sannfæringu, að Guð kærleikans vildi að mennirnir
lifðu saman í friði. I hjarta hans bjó friður Atons, hinnar and-
fegu sólar. Sem faraó Egyptalands var hann persónugervingur
Atons, æðstiprestur alheimssannleikans. Það var jtví skylda
hans að framkvæma vilja Atons og vera mönnunum eftirdæmi