Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 15
NÝTT form miðilsfunda
93
Fundurinn hófst svo á tilteknum tíma föstudaginn 1. nóv.
1 upphafi fundar flutti Ólafur Jensson stutt erindi um miðils-
samband Hafsteins, til skýringar fyrir fundarmenn, sem
fæstir höfðu nokkurn tíma verið á miðilsfundi áður, eða átt
þess kost.
fjikt og venjulegur transfundur hófst hann með bæn og
sálmasöng meðan miðillinn féll i djúptrans. Síðan komu
stjómendur sambandsins fram gegn um miðilinn hver af
öðrum og voru kynntir fundarmönnum um leið. Að lokum
tók Vinur við stjórninni og kvaðst tilbúinn til að svara spurn-
ingum fundarmanna. Gerðist þetta með svo snöggum hætti, að
það virtist koma fundarmönnum nokkuð á óvart og stóð á
spumingunum fyrst í stað. Þeir Guðmundur Einarsson og
Ólafur Jensson riðu því á vaðið og lögðu spurningar fyrir
Vin, sem þeir hugðu að fundarmönnum þætti fróðlegt að fá
svarað, t. d. hvernig tekið væri á móti látnum fyrir handan.
Svaraði Vinur því, að oft sæu nánir ástvinir eða aðstandend-
ur um það, að einhverju leyti, en annars önnuðust það hjálp-
arsveitir séérstaklega til þess þjálfaðar. Siðan rak hver spum-
ingin aðra og tóku fundarmenn brátt fjörugan þátt í þeim.
Meðal spurninga var, hvaða áhrif það hefði, ef hinn látni
hefði ekki haft neina trú á framlífi. Þvi var svarað að all-
dimmt yrði umhverfis hann framan af og hann gæti verið
lengi að átta sig á breytingunni, og ylli þetta slæmri líð-
an. En hve langan tíma það tæki viðkomandi að gera sér
grein fyrir nýju heimkynnunum, væri einstaklingsbundið.
Fræðsla sú sem fram kom á fundinum vakti mikla athygli og
virtist hafa djúp áhrif á ýmsa fundarmenn. Síðasta spurning
fundarmanns var um helvíti, hvort það væri til, og þá
hvar staðsett. Svarið var, að helvíti væri hugarástand en ekki
staður. Komst einn fundarmanna svo að orði eftir fundinn,
að þar hefði hann fengið svör við spurningum, sem hann
hefði ekki búist við að fá fyrr en hann sjálfm væri kominn
yfir landamærin.
Ritstjóri MORGUNS gat atvinnu sinnar vegna, ekki verið
viðstaddur þennan merkilega fund, og liarmar því alveg sér-