Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 38
116
MOKGUNN
Svo lýsti frúin prýðilega fyrir mér, að þessu sinni, en þær
lýsingar snertu eingöngu viðhurði einkalífs og starfs okkar
hjóna.
Ég vil geta þess, að frúin tók það ákveðið fram, áður en
hún byrjaði að lýsa, að ég skyldi athuga vel, hvort hún færi
með rétt mál.
Svo heldur frúin áfram: „Hún andaðist á sjúkrahúsi, það
var rétt, þú sast við sjúkrabeðinn og hélst í hægri hönd hennar
og hún þakkar þér glöð hinztu kveðju og segist ekki geta lýst
þeim unaði, þegar hún hafi verið að líða yfir landamærin,
með hönd sína í hendi þinni.“ Því næst segir frúin, að kona
mín sýni sér pakka með mörgum frímerkjum og bréf í sam-
bandi við hann, ég tel víst að þessi lýsing sé alveg rétt.
í janúarmánuði sama ár átti mágkona mín í Noregi 65 ára
afmæli og í tilefni af því sendi ég henni íslenzkan hlut, sem
hún hafði mjög gaman af, en um morguninn þennan sama
dag, móttók ég bréf frá henni, sem færði mér þakklæti fyrir
sendinguna.
O
Ég var heyrandi að framanskráðu og get tryggt vottað,
að rétt er frá skýrt. Einnig er mér ekki kunnugt um, að frúin
hafi haft nokkur kynni af þessum hjónum.
Þórdís Carlquist, IjósmóSir.
var viðstödd, er frúin lýsti framanskráðu og votta að
rétt er frá skýrt.
GuSrún Jóhannsdóttir.
Ég hefi lesið framanskráða skýrslu og er þar í öllum atrið-
um nákvæmlega rétt frá sagt.
Ragnhildur Gottskálksdóttir.
III
JÓLAFÖSTUDRAUMUR
Áxið 1901 var ég um sumarið kaupmaður á prestssetrinu
Skútustöðum við Mývatn. Þar var vinnustúlka, sem Unnur
hét Skúladóttir. Henni var falið að annast um hirðingu og