Morgunn - 01.12.1974, Blaðsíða 52
UNDARLEGT ÆVINTÝRI
Draumur GuSnýjar Jónsdóttur frá Selkoti í Þingvallasveit.
— GuSnýju dreymdi draum þennan 11-12 ára aS Selkoti,
1931-1932.
Mig dreymir, að ég er stödd niður við Kjálká svonefnda,
sem rennur sunnan við bæinn til vesturs. Ég er stödd á hól
sem ber nafnið Hólkot og lítur út fyrir að vera einskonar
húsarúst. Verð ég þá vör stúlku, sem stendur á bak við mig
án þess ég sjái hana og tekur að tala til min. Byrjar hún að
segja mér, að hún hafi áður í draumi sagt Ingveldi frá Sel-
koti söguna af kettinum Glym, en sú saga var mér kunn. Hef
ég orð á því við stúlkuna, að ástæða væri til að grafa í þess-
um hólrústum, sbr. draum Ingveldar. Stúlkan gefur lítið út
á það, en kveðst geta sýnt mér og sagt um merkari forn-
rústir, sem að vísu myndu síðar koma í ljós eða finnast, er
áin bryti bakka sína meira.
Við göngum nú upp með ánni að vestan, þar sem hún
rennur til suðurs, ég veit af henni við hægri hlið mína og
heyri mál hennar, en sé hana ekki, þó skynja ég fremur
hugsanir hennar en að ég heyri rödd hennar, og er svo yfir-
leitt um viðtöl við mig i draumi.
Nú verð ég þess áskynja, að hún réttir fram hægri hönd-
ina og opnast þá jörðin rétt fyrir framan okkur. Ég sé þetta
mjög skýrt, get aðgreint jarðlögin, sem voru að mestu mór
og leir. Hún bendir mér að ganga þarna niður, ég sé þó ekki
hönd hennar né hana sjálfa, en mér finnst þetta vera stúlka
um tvítugt.
Fyrst göngum við niður hallandi jarðveg, og er áin á
hægri hönd, eins og mér fannst stúlkan jafnan vera. Síðan