Morgunblaðið - 30.01.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1982
Tel víst að Skeiðar-
árhlaup sé að hefjast
- segir Ragnar Stefánsson í Skaftafelli
Nokkud hefur snjóað í Reykjavík undanfarna daga og hefur hálka valdid ökumönnum erfiðleikum. í gær urðu
29 árekstrar frá hádegi til klukkan 20.00. Ekki urðu nein alvarleg slys á fólki. Ljósm. Mbl.: rax.
Sölustofnun lagmetis:
Útflutningurinn jókst
um 10% á síðasta ári
ÚTFLUTNINGUR Sölustofnunar
lagmetis jókst um 10% á síðastliðnu
ári og verðmæti jókst um 56%, en ef
miðað er við dollar, þá jókst verð-
mætið um 4%, að því er segir í frétta-
tilkynningu frá Sölustofnun lagmet-
is.
Útflutningsverðmætið á árinu
var rúmlega 56 milljónir króna.
Alls voru fluttar út 14 tegundir
lagmetis og langmest af fimm teg-
23,5% hækk-
un á sjónvarps-
auglýsingum
Auglýsingataxtar sjónvarps
hækka um 23,5% frá og með 1.
febrúar næst komandi. 60 sek-
úndna auglýsing, sem áður
kostaði 6680 krónur, kostar eft-
ir hækkun 8250 krónur, og aðr-
ar tímalengdir hækka tilsvar-
andi.
undum, það eru gaffalbitar, rækja,
reykt síldarflök, grásleppuhrogna-
kavíar og þorskhrogn. Lagmeti
var á síðasta ári flutt út til 19
landa en helstu viðskiptalöndin
voru Sovétríkin, Vestur-Þýzka-
land, Bandaríkin, Frakkland og
Bretland.
í fréttatilkynningu Sölustofn-
unarinnar segir, að fullvíst megi
telja að útflutningur til Vestur-
Evrópu hefði orðið meiri á árinu,
ef gengisþróunin hefði ekki verið
jafn óhagstæð og kunnugt er. Þá
gerði Sölustofnunin breytingar á
umboðsmannakerfinu í Banda-
ríkjunum á árinu.
Þá segir, að Sölustofnunin sé nú
sjálfstæð útflutningsstofnun í
eigu framleiðenda og njóti ekki
neins opinbers framlags. Þróun-
arsjóði lagmetis hefur nú verið
sett sérstök stjórn. Hlutverk
sjóðsins er að efla lagmetisiðnað-
inn, meðal annars með því að
stuðla að tæknilegri uppbyggingu,
þróun vinnsluafurða og vöruteg-
unda og markaðsöflun erlendis.
í lok síðasta árs tók þess að
gæta á hinum ýmsu mörkuðum, að
erlendir neytendur drógu úr kaup-
á öðru en brýnustu lífsnauð-
um
synjum og segir að Sölustofnunin
verði að mæta því með þróun
nýrra vörutegunda og sókn inn á
markaði, sem líklegastir eru til að
taka við auknu framboði lagmetis.
„ÞAÐ HEFUR verið hægur vöxtur
í ánni frá því á fimmtudagsmorgun
og vatnið í henni dökkt eins og
hlaupvatn auk þess sem brenni-
steinslykt er af því. Því tel ég víst
að Skeiðarárhlaup sé að hefjast,“
sagði Ragnar Stefánsson, bóndi á
Skaftafelli, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Ragnar sagði ennfremur, að
þetta byrjaði líkt og síðasta
hlaup, 1976, og sér sýndist að
byrjunin benti til þess að hlaupið
yrði svipað og þá. Þó bæri þess að
gæta að vatnsborð Grímsvatna
væri hærra nú en það hefði verið
í langan tíma og gæti það breytt
einhverju. Annars vildi hann
engu spá um stærð hlaupsins.
Morgunblaðið hafði einnig
samband við Sigurjón Rist,
Wijk aan Zee:
Jóhann
í 8. sæti
JOHANN Hjartarson gerði í gær
jafntefli við hollenska alþjóðlega
meistarann Langeweg í B-flokki á
alþjóðlega skákmótinu í Wijk aan
Zee. Hann hefur hlotið 3 vinninga
og er í 8. sæti en Kindermann,
V-Þýzkalandi, sem kemur á Reykja-
víkurskákmótið, hefur 5'A vinning
og er efstur.
John Nunn, van der Wiel og Bal-
ashov eru efstir og jafnir í stór-
meistaraflokki með 7 vinninga og
biðskák. Nunn og Wiel eiga inn-
byrðis biðskák og Balashov á
biðskák við Christiansen. Þeir Tal
og Hort hafa einnig hlotið 7 vinn-
inga. Kavalek og Hubner hafa 6'Æ
vinning og Nikolic og Sosonko
hafa 6 vinninga og 1 biðskák. Aðr-
ir keppendur eiga vart möguleika
á sigri í mótinu. Úrslit í gær urðu
þau, að Timman vann Chandler,
Tal vann Sunye, Hort og Húbner
gerðu jafntefli og Kavalek vann
Ree. Skákir Nunn og Wiel og
Christiansen og Balashov fóru í
bið.
vatnamælingamann, sem fylgzt
hefur með Skeiðarárhlaupum
síðan 1954. Sagði hann að hlaup
að þessu sinni kæmi með svipuðu
millibili og hlaup undanfarin ár,
á milli þeirra væru 5 til 6 ár.
Hann sagði að mjög erfitt væri
að spá um væntanlega stærð
hlaupsins. Hlaupin hefðu verið
að minnka síðan 1954 er hann
mældi stærsta hlaupið. Vatns-
magnið þá hefði verið um 3Vi
rúmkílómetri en síðasta hlaup
aðeins á 3. rúmkílómetra. Erfitt
væri að gera sér grein fyrir því
hvort hlaup nú ylli skemmdum,
aðstæður væru öðruvísi en í sept-
ember 1976 er síðasta hlaup varð
og olli það engum skemmdum.
Nú væri verulegur klaki í jörð og
gæti það breytt talsverðu um
farveg hlaupsins. Nú myndu
menn frá Vegagerðinni, Raf-
magnsveitum ríkisins og Orku-
stofnun fylgjast með hlaupinu og
yrði það mælt bæði hvað rennsli
varðaði og lækkun Grímsvatna-
skálarinnar. Þá sagði hann að
Skeiðarárhlaup yxu venjulega
fremur hægt svo ekki væri búizt
við því að þetta hlaup næði há-
marki fyrr en eftir viku til 10
daga.
Reykjavíkurskákmótið:
Fimm kepp-
endur til
viðbótar
FIMM skákmenn tilkynntu þátt-
töku í Reykjavíkurskákmótinu í
gær, þrír Svíar og tveir Þjóðverjar.
Sviarnir eru allir alþjóðlegir
meistarar, Tom Wedberg með
2435 Elo-stig, Lars Ake Schneider
með 2435 stig, og Kais Zouri, með
2395 stig. Þjóðverjarnir eru Kind-
ermann, alþjóðlegur meistari með
2410 stig og Boschoff, titillaus með
2395 stig og vantar hann herzlu-
mun á að ná síðari áfanga í alþjóð-
legan titil.
Áhrif væntanlegrar tollalækkunar á heimilistækjum:
Verð uppþvottavélar
lækkar um 2.000 kr.
Gjaldskrár hafna
og Ríkisskips
hækka um 15%
EITIR að stjórnarfrumvarp um
lækkun tolla á ýmsum heimilis-
tækjum hefur tekið gildi mun
verð þeirra lækka um nærri
25%. Mbl. fékk í gær í tveimur
verslunum upplýsingar um áhrif
þessarar tollalækkunar, en ráð-
gert er að tollar lækki úr 80% í
40%.
Hjá Vörumarkaðnum var
upplýst að verð þvottavéla
lækkaði t.d. úr kr. 8.590 í 6.900
kr., þ.e. á vélum sem leystar
yrðu út næstu daga á verði eft-
ir að gengislækkun tók gildi.
ísskápar lækka úr kr. 10.500 í
8.700 til 8.800 kr. og upp-
þvottavélar úr kr. 15.000 í
13,000.
í heimilistækjadeild Heklu
hf. var Mbl. tjáð að verðið
lækkaði almennt um 25%.
Þannig lækkaði hrærivél úr
kr. 3.740 í um 2.800 krónur, en
tollalækkun þessi mun auk
framangreindra tækja lækka
verð
frystikistum,
gufugleypum
á m.a. brauðristum,
ryksugum og
Samgönguráðuneytið heimilaði í
gær 15% hækkun á gjaldskrá Skipa
útgerðar ríkisins, og tók hækkunin
gildi frá og með deginum í gær, 29.
janúar. Ríkisskip hafði farið fram á
20% hækkun, en gjaldskrárnefnd
lagði til 15%, og fór ráðuneytið eftir
því.
I gær var einnig heimiluð 15%
hækkun á gjaldskrá hafna, en far-
ið hafði verið fram á 19% hækkun,
en þar lagði gjaldskrárnefnd einn-
ig til 15% hækkun. Hækkunin tek-
ur ekki gildi fyrr en hún hefur
verið birt í Stjórnartíðindum.
Áður hafði samgönguráðherra,
Steingrímur Hermannsson, heim-
ilað 10% hækkun á gjaldskrá
Pósts og síma, en að sögn Halldórs
S. Kristjánssonar í samgöngu-
ráðuneytinu hafði í gær ekki bor-
ist umsögn gjaldskrárnefndar um
strætisvagna, og bíður ákvörðun
um hækkun því um sinn.
Kosið í Einingu um
miðjan næsta mánuð
EKKI hefur verið tekin ákvörðun
um hvenær stjórnarkosning fer fram
í Verkalýðsfélaginu Einingu á Akur
eyri, en líklegt er talið, að það verði
um miðjan febrúar.
Tveir listar bárust, en fram-
boðsfrestur rann út á fimmtudag.
Annars vegar listi stjórnar og
trúnaðarmannaráðs með Jón
Helgason í formannssafeti og hins
vegar listi borinn fram af Jóni S.
Sigurðarsyni ög fleirum með Guð-
mund Sæmundsson sem for-
mannsefni. Eins og fram hefur
komið í fréttum ákváðu Guð-
mundur Sæmundsson og félagar
að kæra kjörstjórn vegna þessara
kosninga þar sem tveir menn í
kjörstjórn eru boðnir fram sem
endurskoðendur á stjórnarlistan-
um.
Jafnt hjá
Guðmundi
GUÐMUNDUR Sigurjónsson gerði í
gær jafntefli við V-Þjóðverjann Bor-
ik í 4. umferð úrslitakeppni svæða-
móLsins í Randers. Báðir tefldu stíft
til vinnings og var um hörkuviður
eign að ræða, en skákin leystist upp
í jafntefli í lokin.
Önnur úrslit urðu þau, að Mur-
ey, ísrael, vann Tiller, Noregi,
Karlsson, Svíþjóð, vann Lobron,
V-Þýzkalandi, og Kagan og Grun-
feld, ísrael, gerðu jafntefli.
Staðan í 8-manna úrslitakeppn-
inni er nú: 1. Murey 3'á, 2. Karls-
son 3, 3.-4. Grunfeld og Lobron 2,
5.-7. Guðmundur, Tiller og Borik
1 'á og 8. Kagan 1.