Morgunblaðið - 30.01.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1982
13
i
i
1
>
Ljóðrænar stemmningar
Guðmundur W. Vilhjálmsson,
sem sýnir frumviðleitni sína á
vettvangi myndlistarinnar í Gall-
erí 32 til 6. febrúar, kemur án vafa
mörgum á óvart með sýningu
sinni. I ljós kemur að þessi maður
er gæddur ríkri ljóðrænni kennd
fyrir formum, litum og línum.
Guðmundur á ekki langt að sækja
þessa gáfu og geta má þess að
bróðir hans er Thor Vilhjálmsson,
sem er í senn flínkur að fara með
orð sem pentskúf.
Myndir Guðmundar eru 45 tals-
ins og eru unnar í pastel og vatns-
liti ásamt í blandaðri tækni, —
þær eru allar frekar smáar og
virðist þessi stærð henta sköpun-
argáfu gerandans einkar vel.
Guðmundur virðist vera nokkuð
undir áhrifum September-hópsins
Bragi Asgeirsson
svonefnda og þá aðallega þeim
ljóðrænni í hópnum, svo sem
Svavari og Kristjáni Davíðssyni,
— einnig örlar fyrir áhrifum frá
Valtý Péturssyni í einni og einni
mynd, en þessi áhrif eru mjög
eðlileg og alls ekki til lýta. Ger-
andinn vinnur úr hreinum hug-
myndum og lætur hugmyndaflug-
ið ekki alfarið ráða ferðinni líkt og
stundum gerist hjá bróður hans,
Thor.
Svo sem eðlilegt má teljast eru
myndirnar mjög misjafnar að
gæðum en svo ég vísi til einstakra
mynda er einkum höfðuðu til mín,
tel ég upp myndir eins og nr. 2
„Siglingin hafin“, 4 „Fuglar að
þinga", 20 „Vetur", 25 „Á Hvera-
völlum" og nr. 31 „Sveitaþorp".
Hin síðasttalda er vafalítið form-
sterkust mynda á sýningunni en
þessi upptalning sýnir öðru frem-
ur fjölbreytnina í vinnubrögðum
Guðmundar.
Guðmundur W. Vilhjálmsson
má vissulega vel við una um frum-
raun sína á myndlistarvettvangi
og það verður fróðlegt að sjá
framhaldið en um það skal engu
spá, — en slik frumraun vekur að
sjálfsögðu upp auknar kröfur.
Lyflæknisdeildir Borgarspítalans:
Rúmum fækkað
vegna manneklu
30 hjúkrunarfræðinga vantar að
Kleppsspítalanum og geðdeildum
VEGNA SKORTS á hjúkrunarfræðingum hefur verið ákveðið að fækka
sjúkrarúmum á tveimur af þremur lyflæknisdeildum Borgarspítalans um 20
frá og með næstu helgi. Víðar á sjúkrastofnunum vantar tilfinnanlega hjúkr
unarfræðinga til starfa og til dæmis á Kleppsspítalanum vantar nú 29 hjúkr
unarfræðinga, en þar eru 98 stöðugildi og aðeins 69 stöður skipaðar.
Sigurlín Gunnarsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri á Borgarspítalanum,
sagði í gær, að á spítalann vantaði
nú 25 hjúkrunarfræðinga, en þar
er rúmlega 160 gildi. Mest er
manneklan á legudeildum og þá
sérstaklega á lyflæknisdeildum.
Þar vantar nú sjö hjúkrunarfræð-
inga og hefur verið ákveðið að
grípa til þess neyðarúrræðis, að
sögn Sigurlínar, að fækka rúmum
á tveimur deildanna um 20 um
næstu helgi, en á deildunum eru
75 rúm. Ástæður þessa sagði Sig-
urlín, að fyrst og fremst mætti
rekja til mikils álags í starfi og
lágra launa.
Þórunn Pálsdóttir, hjúkrunar-
forstjóri, sagði að á Kleppsspítal-
ann, barnageðdeildina og geðdeild
Landsspítalans vantaði nú um 30
hjúkrunarfræðinga, en stöðugild-
in væru 98 og 69 þeirra væru skip-
aðar. Hún sagði að þetta ástand
væri svipað og síðastliðið haust,
en þó hefði tekist að halda í horf-
inu og nokkurn veginn að ráða
fólk í stað þess, sem sagt hefði
upp. Þá sagöi hún að nokkuð væri
um það, að hjúkrunarfræðingar
réðu sig í 50% vinnu, en skiluðu
síðan fullri vinnu. Á þennan hátt
hækkuðu launin til muna, en
héldu réttindum sínum. „Ástæðan
er sú, að launin eru alltof lág og
eina ráðið er, að þessi stétt fái
launahækkanir, lausnin er því ein-
föld ef ráðamenn vilja horfast í
augu við staðreyndir," sagði Þór-
unn.
Hún sagði að skortur á hjúkrun-
arfræðingum kæmi að sjálfsögðu
niður á þjónustu og nefndi í því
sambandi að ekki er hægt að sinna
sjúklingum eins mikið einstakl-
ingsbundið og æskilegt væri og
einnig að aðstandendum þeirra.
„Það er því miður aðeins fjarlæg-
ur draumur að hafa opna tíma
fyrir ráðgjöf fyrir aðstandendur
og hvað um bráðaþjónustu fyrir
geðsjúklinga, sem erlendis stend-
ur og fellur með hjúkrunarfræð-
ingum," spurði Þórunn. Þá benti
hún á að til dæmis á Landakoti
væru greidd hærri laun heldur en
á ríkisspítölunum og það væri
opinbert leyndarmál, að þar væri
greidd fyrir tíma, sem þó væru
ekki unnir.
30.\a<fC«'<'0" . a(S\as'e
a«SaÖ'''°6-.uö'.saa'
0^9(da98^ SO''®, VS
00-
11 c 111; s i j >
111 n 4 •>. l: S1 M r i"-11 i
IjíutVi t >’ i 1,6K*3{!rJ} 1911J!< l u ( ( m n.iitiuilö í
irti