Morgunblaðið - 01.08.1986, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986
„Finnst ég
fara frá hálf-
kláruðu verki“
Hemlalaus dráttarvél
heimtaði afgreiðslu
HEMLALAUS dráttarvél olli nokkrum usla í
veitingastaðnum Western fríed í Mosfellssveit
I gær, þegar hún ók á vegg hússins og braut
hluta hans, ásamt stórum rúðum.
Ökumaður dráttarvélarinnar kom akandi ofan
úr Kjós og ætlaði að fá sér bita á veitingastaðn-
nm bporar hann hnoðist hemla á bifreiðastasðinu
fyrir framan húsið og fara fótgangandi inn vildi
ekki betur til en svo að hemlamir sviku og fór
hann því akandi öllu nær afgreiðsluborðinu en
hann hafði ætiað sér. Neðsti hluti veggjarins, sem
er steyptur, lét undan og stórar rúður fyrir ofan
hann brotnuðu. Engir viðskiptavinir voru staddir
fyrir innan gluggana og urðu því engin slys á
mönnum.
— segir Torfi Jónsson, fyrrverandi
skólastjóri Myndlista- og handíðaskóla íslands
EINS OG fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur menntamálaráð-
herra skipað í stöðu skóiastjóra Myndlista- og handíðaskóla íslands
í andstöðu við vilja Skólamálaráðs Reykjavikur. Ráðið mælti með
Torfa Jónssyni, sem hefur verið skólastjóri undanfarín 4 ár. „Ekki
er laust við að mér hafi brugðið við fréttina,“ sagði Torfi þegar
blaðamaður ræddi við hann í gær. „Mér finnst eins og ég fari frá
hálfkláruðu verki. Maður he.fur alltaf reynt að gera sitt besta."
Torfi sagðist hafa fundið mikinn stuðning frá nemendum eftir frétt-
ina og að margir kennarar væru ákaflega vonsviknir með þessi
málalok. „Ég áleit að það væri Myndlista- og handiðaskóla íslands
fyrir bestu að ráða Bjarna Danielsson sem skólameistara,“ sagði
Sverrír Hermannsson, menntamálaráðherra, í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins á Akureyrí.
Torfí sagði að undanfarin ár
hefði skólinn gengið í gegnum
breytingaskeið. Hann hefði þróast
í þá átt að gegna þrískiptu hlut-
verki, listiðnaskóla, „listaaka-
demíu" og kennaraskóla. Að sínu
mati væri skólinn nú meðal þeirra
fremstu í Evrópu og nyti vaxandi
virðingar. Nemendur og kennarar
hefðu verið afskaplega ánægðir
með þá ákvörðun Sverris Her-
mannssonar í vetur að flytja
skólann í nýtt húsnæði og búa bet-
ur að honum. „Við höfum meðal
annars verið að undirbúa okkur
undir þennan flutning. Mér fínnst
hafa myndast mjög góður andi í
skólanum og friðsamlegt andrúms-
loft.“
að baki. í ráðuneytinu var mér sagt
að meðal kennara væri mikil and-
staða við mig. Á síðasta degi
umsóknarfrestsins fékk ég stuðn-
ingsyfírlýsingu kennara í hendur
og tók þá ákvörðun að sækja um.“
Sverrir sagðist ekki hafa farið fram
á álit skólamálaráðs um umsækj-
endur, eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær, heldur væri það í
reglum að ráðið fjallaði um umsækj-
endur og greiddi síðan atkvæði um
þá. Hinsvegar væri hann ekki bund-
inn af niðurstöðum skólamálaráðs.
„Ég get ekki séð annað en Bjami
sé hæfastur umsækjenda i stöðuna
þó ég vilji ekki halla á aðra umsækj-
endur, meðal annars hefur hann
glæstan menntaferil og vinnur nú
að doktorsritgerð."
iuui^unuiaoio/ Ttuuuiiai luiaiuiðauii
Dráttarvélin lagði af stað á eftir eigandanum, hefur lQdega viljað fá sér bita með honum. Þessar
urðu afleiðingamar.
Torfi sagði að það hefði ekki
komið sér á óvart þegar staða hans
var auglýst laus til umsóknar í vor.
„En það var ekki laust við að mað-
ur renndi grun í að eitthvað byggi
Samþykkt stjórnar
BSRB:
Verkfalls-
sjóður
styrki
hópupp-
sagnir
STJÓRN Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja sam-
þykkti á fundi sínum í
gærkvöldi að opna verkfalls-
sjóð sinn og styrkja hópupp-
sagnir.
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, sagði að þessi ákvörðun
kæmi í kjölfar sérsamninga
ríkisins og Féiags lögreglu-
manna, þar sem þeir fallast á
að láta samnings- og verkfalls-
rétt sinn af hendi. Sagðist
Kristján þess fullviss að §ár-
málaráðherra hygðist halda
áfram á þessarí braut; að bjóða
mönnum betri kjör ef þeir afsöl-
uðu sér öllum rétti. „Þetta er
okkar svar. Við höfum ákveðið
að gjörbreyta stefnu okkar og
taka upp ný vinnubrögð. Samn-
ingsréttur opinberra starfs-
manna er ekki til sölu.“
Stjómin var fullskipuð og var
tillagan samþykkt einróma. Þar
segir m.a. orðrétt: „Sú afstaða
fjármálaráðuneytisins til samn-
ingsréttar opinberra starfs-
manna, sem ljóst kemur fram í
sérsamningi við Landssamband
lögreglumanna, kaUar á skjót
viðbrögð aðildarfélaga BSRB og
heildarsamtakanna, og nýja
starfshætti."
Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra:
Tæknilegar forsendur fyr-
ir hendi en ekki pólitískar
Staðgreiðslukerfi skatta verði tekið
upp í byrjun árs 1988
ALLIR þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru sammála um að ekki sé
gerlegt að endurgreiða skattauka ríkissjóðs sem stafar fyrst og
fremst af því að tekjur reyndust mun hærrí en gert var ráð fyrir
þegar skattvísitalan var ákveðin i vor. „Það verður ekki girt fyrir
að svona gerist nema með þvi að taka upp staðgreiðslukerfi skatta,"
sagði Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra í gær. Hann bætti við að
hann vonaðist til þess að hægt verði að innleiða staðgreiðslukerfið
í byijun ársins 1988 eða um leið og virðisaukaskattur yrði tekinn upp.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins um það að bæði tekjuhlið og út-
hélt tveggja daga fund á Sauðár-
króki. Eftir fundinn sagði Þorsteinn
Pálsson: „Á fundinum var fullkomin
samstaða meðal allra þingmanna
gjaldahlið ríkissjóðs verði óbreytt.
Menn voru sammála um að enginn
annar kostur væri fyrir hendi þó
allir vildu gjaman geta endurgreitt
og lækkað skatta."
Þorsteinn sagði að aðeins lítill
hluti af tekjuauka ríkissjóðs væri
vegna misvísunar skattvísitölunnar.
Tvo þriðju má rekja beint til þess,
að sögn Þorsteins, að tekjur rejmd-
ust mun hærri en reiknað var með
þegar vfsitalan var ákveðin. Einn
þriðji er vegna misvísunar skattvísi-
tölunnar, „og þar af leiðandi
hækkuðu ekki skattþrepin og frá-
dráttarliðimir eins og annars hefði
orðið." Þá sagði Þorsteinn: „Það
er ljóst að ef átt hefði að endur-
skoða tekjuhliðina af þessum sökum
þá hefði einnig þurft að endurskoða
útgjaldahliðina að því er varðar laun
Mjög hæg norðlæg átt og
fremur svalt í veðri. Hætt er við skúrum
syðst á Jandinu en annars víða bjartviðri, einkum
inn til landsins. Skammt er i þoku undan Norðurlandi.
og aðgerðir sem gerðar voru til
þess að lækka verðlag."
Þjóðhagsstofnun sendi ráðherr-
um, þingmönnum og fjölmiðlum
handrit að „Ágripi úr þjóðarbú-
skapnum" seinni hluta apnlmánað-
ar. Þar kom fram að samkvæmt
fyrstu vísbendingum úr skattfram-
tölum fyrir síðasta ár hefðu tekjur
hækkað um og yfír 40% en ekki
36% eins og gert var ráð fyrir. Síðar
kom í ljós að tekjur hækkuðu
nokkm meira en Þjóðhagsstofnun
reiknaði með eða um 43%. Það er
ljóst að tæknilegar forsendur voru
fyrir því að lækka skattvísitöluna,
en Þorsteinn Pálsson sagði að póli-
tískar forsendur til þess hefðu ekki
verið fyrir hendi í lok apríl og byij-
un maí frekar en nú. Hann taldi
það hinsvegar athyglisvert að Þjóð-
hagsstofnun hefði ekki þrátt fyrir
að hafa haft í höndum skattframtöl
getað gefið upp réttar upplýsingar
um tekjur á síðasta árj.
Þorsteinn bætti við að misvísun
skattvísitölunnar hefði aldrei verið
leiðrétt að minnsta kosti frá árinu
1980. Hann benti á að á síðsta ári
hefði vísitalan ekki verið hækkuð
þrátt fyrir að tekjur árið 1984 hefðu
reynst lægri en reiknað var með
þegar hún var ákveðin, og af þess-
um sökum varð ríkissjóður fyrir
tekjutapi.
Á fundi þingflokksins kynnti fjár-
málaráðherra flárlagagerð fyrir
næsta ár. Eins og kom fram í frétt
Morgunblaðsins í gær er áætlað að
halli á fjárlögum verði um 1300
milljónir króna. Stjómarflokkamir
eru sammála um að ekki sé gerlegt
að ná hallalausum fjárlögum á nýju
ári en Þorsteinn Pálsson sagði að
stefnt væri að því að fjármagna
þennan halla með lántökum innan-
lands, — sölu spariskírteina og
lánum hjá bönkum.