Morgunblaðið - 01.08.1986, Side 13

Morgunblaðið - 01.08.1986, Side 13
f MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986 13 glaðvær og kát ungmenni leggja upp frá þremur stöðum í bænum í átt að miðbænum. Er þangað kem- ur munu þau syngja Reykjavíkur- lag, sigurlagið úr söngvakeppni borgarinnar. Þá setur forseti borg- arstjómar, Magnús L. Sveinsson, hátíðardagskrána og að því loknu flytur Sinfóníuhljómsveit íslands ásamt blönduðum kór „Minni Ing- ólfs“, hátíðarverk eftir Jón Þórar- insson sem byggir á lagi Jónasar Helgasonar við ljóð Matthíasar Jochumssonar. Að því loknu mun Davíð Oddsson bjóða forseta ís- lands, Vigdísi Finnbogadóttur, velkomna. Að svo búnu flytja leikar- ar úr Leikfélagi Reykjavíkur verk Kjartans Ragnarssonar, „Skúli fóg- eti og upphaf Reykjavíkur". Leikrit- ið tekur um hálfa klukkustund í flutningi, og strax af því loknu taka Gunnar Þórðarson og félagar fram hljóðfærin og leika nýjar og gamlar „Reykjavíkurflugur" — lög tengd höfuðstaðnum. Inn á milli munu kímniskáld og spaugarar segja nokkur vel valin og viðeigandi orð. Borgarbúar og aðrir afmælisgestir geta þá dansað og glaðst við undir- leik strengjahljómsveitarinnar fram undir miðnætti, en þá mun borgar- stjórinn ávarpa hátíðargesti. Hátíð- ardagskrá á afmælisdegi borgar- innar lýkur um miðnætti með flugeldasýningu sem félagar í hjálp- arsveitum skáta munu sjá um. Kynnir kvöldsins verður Jón Sigur- bjömsson leikari. Dagskrá verður fram haldið dag- ana á eftir. Þann 19. og 20. ágúst verða rokkhátíð og djasstónleikar á Arnarhóli. Hinn 19. verður Reykjavíkurmynd frumsýnd í Há- skólabíói. Höftmdur og stjórnandi er Hrafn Gunnlaugsson. Borgaryfirvöld hvetja afmælis- gesti til að leggja sitt af mörkunum til að minnka umferðarálag og í því skyni hefur verið ákveðið að bjóða frítt far í Strætisvögnum Reykjavíkur. Önnur áætlun verður í gangi en venjulega og ekið eftir tímatöflu þeirri sem gildir um helg- ar. Ymis félagasamtök hjálpa til við hátíðahöldin og fyrirtæki og stofn- anir styðja þau með margvíslegum hætti. Yfir 100 félagar úr Lions- hreyfmgunni þjóna við langborðið, afhenda tertusneið og gosdrykk. Félagar í Bakarameistarafélagi Reykjavíkur gefa vinnu við bakstur tertunnar og efni í hana er allt gefíð af ýmsum fyrirtækjum. Drykkir sem veittir eru á hátíðinni I em gefnir af gosdiykkjaframleið- endum. Davíð Oddsson borgarstjóri kvaðst fyrir hönd afmælisnefndar vilja þakka öllum þeim aðilum sem hefðu lagt hönd á plóginn fyrir þátttöku í undirbúningsvinnunni og gat þess að í lok hátíðahaldanna yrði þeim aðilum þakkað sérstak- lega. arstjórn Almannavama ríkisins og Landsambands flugbjörgunar- sveita, en á hvetju svæði er framkvæmdin í höndum almanna- vamanefnda og viðkomandi hjálp- arsveita. Rauða kross deildimar skipuleggja ijöldahjálparstarf í sínu héraði í samráði við Rauða kross íslands og almannavarnanefdir. Þá em í samkomulaginu ákvæði um hvað er verksvið hvers hjálp- araðila og einnig um boðun, stjóm- un, þjálfun, búnað og sérhæfðar sveitir. Almannavarnir annast kennslu yflrmanna almannavama og vett- vangsstjóra. SVFÍ sér um þjálfun björgunarliðs og flokksforingja. LHS annast þjálfun sérhæfðs skyndihjálparliðs. Landsamband flugbjörgunarsveita annast þjálfun vemdarliðs. Rauði kross Islands sér um þjálfun íjöldahjálparliðs, og hef- ur einnig forystu um almenna skyndihjálparkennslu. Hver samkomulagsaðilinn leggur til tvo menn í stjórnstöð, en í hér- aði fer lögreglustjóri eða fram- kvæmdarstjóri sem hann tilnefnir með heildarstjórn. Einnig tilnefnir lögreglustjóri vettvangsstjóra á skaðasvæði. ÆVINTYRALEGUR ORBYLGJUOFN sk*J'"teí<meaótamat- arp Hefurþú uppgötvað hjálparhelluna frá Sharp, örbylgjuofninn sem gerireldamennskuna að léttum leik. Ofninn erauðveldurf notkun, þú setur hráefnið íhann, stillirhann og útkoman er girnilegur matur sem bragðast ævintýrajega vel. Sharp örbylgjuofnarnir henta jafn vel fyrirallan mat,j jafntstórar steikursem léttsnarl. ÖHum\ örbylgjuofnunum frá Sharp fylgir ókeypisj matreiðslunámskeið fyriralla fjölskylduna og aðj auki fær kaupandinn þykka myndskreytta, matreiðslubók sérað kostnaðarlausu. í Hljómbæ er mikið úrval örbylgjuofna og allir eru \ þeirfráSharp, þaðtryggirgæðin. Verðiðerfrá: KR. 12,900.- Fáðu þérSharp -gæðanna vegna. stgr. HVERFISGÖTU 103 SIMI 25999 Umboðsmenn: Bókaskemman Akranesi, Kauplélag Borgfirdinga, Hljómtorg ísafirði, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki, KEA Akureyri, Radiover Húsavík, Skógar Egilsstöðum, Kaupfélag Héradsbúa Egilsstöðum, Myndbandaleiga Reyðarfjarðar Reyðarfirði, Ennco Neskaupsstað, Djúpið Djúpavogi, Hornabær Hornafirði, Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli, M.M. búðin Selfossi, Rás Þorlákshöfn, Fataval Keflavik, Rafeindaþjónusta Ómars Vestmannaeyjum, Radioröst Hafnarfirði, JL Húsið Reykjavik. SIMANUMER tifl rifl ^\^\ Auglýsingar22480 I I Afgreiðsla 83033

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.