Morgunblaðið - 01.08.1986, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986
Háttsettur
leiðtogi
Samstöðu
náðaður
Varsjá, AP.
RÍKISSTJÓRN Póllands náðaði í
gær Bogdan Lis, einn helsta leið-
toga Samstöðu, og var hann
leystur úr haldi samdægurs.
Lis var varaformaður Samstöðu
í Gdansk og er hann háttsettasti
•meðlimur Samstöðu, sem leystur
hefur verið úr haldi síðan náðunar-
löggjöf stjómarinnar gekk í gildi
23. júlí sl.
„Eg var ekki beðinn um að skrifa
undir nokkurt plagg," sagði Lis í
símasamtali við fréttamenn í gær.
„Ég fékk engar hótanir eða viðvar-
anir, en þeir lásu fyrir mig kafla
úr lögunum, þar sem segir að ef
ég snúi aftur á glæpabraut, verði
mér komið aftur bak við lás og slá.“
Lis var að afplána tveggja ára
dóm fyrir ólöglega verkalýðsstarf-
semi. Hann sagðist ekki vita hvort
ráðgert væri að leysa aðra hátt-
setta Samstöðuleiðtoga úr haldi í
bráð, en sagði möguleika á að and-
ófsmanninum Adam Michnik yrði
sleppt í dag, föstudag.
Michnik var dæmdur í sömu rétt-
arhöldum og Lis og hlaut hann
tveggja og hálfs árs langan fangels-
isdóm.
Opinbera fréttastofan í Póllandi,
PAP, skýrði frá því að alls hefði
4.712 verið sleppt úr fangelsi undir
náðunarlöggjöfínni. Þtjátíu og
fímm þeirra væru pólitískir fangar,
en hinir sakamenn.
Símamynd/AP
Um 1000 manns fylgdust með þegar súnnítinn Saleh var tekinn af lífi í Libanon i gær.
Líbanon:
Súnnrtí
tekinn
aflífi
Beirút, AP.
TUTTUGU og tveggja ára gamall maður,
ásakaður um tilraun til að sprengja bæki-
stöðvar amal-shita, var tekinn af lífi i Beirút
í gær.
Um 1.000 manns fygldust með, þegar súnnít-
inn Mohieddin Saleh var skotinn til bana af
aftökusveit, eftir að götudómstóll amal-shíta
hafði dæmt hann til dauða.
Hendur Saleh voru bundnar aftur fyrir bak
og klútur settur fyrir augu hans, áður en hann
var neyddur til að leggjast í jörðina. Aftökusveit-
in skaut síðan sjö skotum í höfuð og líkama
hans af stuttu færi.
í yfírlýsingu frá amal-shítum var Saleh ásak-
aður um að hafa ekið svartri BMW-bifreið, fullri
af sprengiefni, að bækistöðvum amal-shíta þann
21. apríl sl. Öryggisverðir hefðu hins vegar kom-
ið auga á bifreiðina, handtekið Saleh samstundis
og aftengt sprengjuna.
Ásakanir gengu á víxl í gær, á milli leiðtoga
shíta og súnníta, um hver bæri ábyrgð á tveimur
bílasprengjum, sem sprungu í Beirút á mánudag
og þriðjudag og urðu 57 manns að bana.
OPEC—ríkin heita nú
10% minni framleiðslu
- segir Lukman forseti samtakanna
Genf, AP.
AÐILDARRÍKI OPEC, samtaka
olíuútflutningsríkjanna, hafa
heitið því sín í milli að draga úr
olíuframleiðslu sinni um 10%.
Skýrði Railwanu Lukman, for-
seti OPEC frá þessu síðdegis i
gær. Sagði Lukman, sem einnig
er olíumálaráðherra Nígeríu, að
11 af 13 aðildarríkjum OPEC
hefðu sjálfviljug lofað að minnka
Kólumbía:
Hæstaréttardóm-
ari skotinn til bana
Fíkniefnasölum kennt um morðið
Bogota, Kólumbíu, AP.
HÆSTARÉTTARDÓMARI í Kol-
umbíu, sem átti þátt í að fram-
selja fikniefnasala til Banda-
rikjanna, var myrtur i
gærmorgun. Var dómarinn, sem
hét Hemando Baquero, skotinn
til bana af byssumönnum, er
hann var á leið til vinnu sinnar
i bifreið. Lifvörður Baqueros og
ungur maður, sem ók á vélhjóli
næst á eftir bifreið dómarans,
biðu einnig bana i skothriðinni.
Kona hans særðist en þó ekki
alvarlega.
Morðingjamir komu aðvífandi á
vélhjóli og létu vélbyssukúlunum
rigna yfír bíl Baqueros. Haft var
eftir sjónarvottum, að árásarmenn-
Baskar handteknir
Bayonne, Frakklandi, AP.
YFIRVÖLD í Frakklandi ráku á
fimmtudag mann úr landi, sem
talinn er félagi aðskilnaðar-
hreyfingar Baska (ETA) á Spáni.
Þetta er fimmti félagi hreyfing-
arinnar sem rekinn er úr landi
frá 19. júlí. Stjómvöld í Frakk-
landi hafa tekið upp herta stefnu
gegn hryðjuverkamönnum
Baska og hafa sérstök lög verið
sett í því skyni.
Á miðvikudag handtóku landa-
mæraverðir Juan de Gauna og í gær
var Dobaran Uritaga handtekinn.
Þeir vom þegar í stað reknir úr
landi. Þeir eru taldir tilheyra hinum
herskáa armi aðskilnaðarhreyfíng-
ar Baska.
Þá var José María Bereziatua-
Etxarri handtekinn í landamæra-
bænum Hendaye en yfirvöld á Spáni
telja hann bera ábyrgð á fjölmörg-
um sprengjuárásum og morðum.
imir hefðu verið þrír og hefði einn
dregið fram vélbyssu undan gulum
regnfrakka sínum og hafíð skot-
hríðina er þeir óku framhjá Baqu-
ero.
Atburður þessi gerðist ekki fjarri
þeim stað, þar sem Rodrigo Lara
dómsmálaráðherra var myrtur 30.
apríl .1984, en það gerðist einmitt
með þeim hætti, að maður vopnaður
vélbyssu ók á vélhjóli framhjá bif-
reið ráðherrans og skaut á hann
af vélbyssu.
Belisario Betancourt forseti hef-
ur kennt fíkniefnasölum um morðið,
en Baquero átti sæti í nefnd sex
hæstaréttardómara, sem fer með
framsalsmál meintra fíkniefnasala.
Til þessa hafa 14 manns verið fram-
seldir til Bandaríkjanna, þar sem
þeir verða sóttir til saka fyrir smygl
og sölu á fíkniefnum.
Baquero var í hópi þeirra dóm-
ara, sem vinstri sinnaðir skæruliðar
tóku sem gísla í dómhölinni í
Bogota í nóvember í fyrra. Þar
týndu 95 manns lífi, þeirra á meðal
11 hæstaréttardómarar, er herinn
réðst inn í bygginguna eftir 28 tíma
umsátur.
framleiðslu sína um 1.925.000
tunnur alls á dag.
Þessi samdráttur ætti að koma
til framkvæmda, ef ekki tækist að
ná samkomulagi um framleiðslu-
kvóta einstakra aðildarríkja OPEC
á fundi þeim, sem nú stendur yfír
í Genf. Lukman vildi ekki skýra
frá, hvaða tvö aðildarríki OPEC það
væru, sem neitað hefðu að lofa því
að minnka framleiðslu sína. Haft
var hins vegar eftir áreiðanlegum
heimildum innan OPEC, að þessi
tvö ríki væru Iran og írak.
Lukman vildi ekki heldur greina
frá því, um hve mikið einstök aðild-
arríki samtakanna væru reiðubúin
að minnka framleiðslu sína. Vara-
fulltrúi írans á fundinum, Hossein
Kazempour, skýrði þó svo frá, að
Saudi-Arabía, mesta framleiðsluríki
OPEC, hefði heitið því að minnka
framleiðslu sína um 800.000 tunnur
á dag.
Þetta loforð væri byggt á yfír-
lýstu framleiðslumagni Saudi-
Árabíu nú, sem væri 5,4 millj. tunn-
ur á dag. Kazempour fullyrti hins
vegar, að raunveruleg framleiðsla
Saudi-Arabíu nú væri nálægt því
að vera 6 millj. tunnur á dag.
Kuwait á einnig að hafa lofað
að minnka framleiðslu sína um
350.000 tunnur á dag eða niður í
1,25 millj. tunnur, en Nígería á að
hafa samþykkt að fara niður í 1,5
millj. tunnur á dag sem væri
175,000 tunnum minna en landið
framleiðir nú á dag. Það eru fyrst
og fremst Saudi-Arabía og Kuwait
sem kennt hefur verið um núver-
andi verðhrun á olíu í heiminum
með því að auka framleiðslu sína.
Heimsmarkaðsverðið nú hefur
komizt niður í 8 dollara á t.unnu
sums staðar en það var 32 dollarar
á tunnu í desember sl.
Fundi Einingarsamtaka Afríku lokið:
Vesturlönd fordæmd fyr-
ir afstöðuna tii S-Afríku
Addis Ababa, AP.
FUNDI æðstu manna Einingar-
samtaka Afríku (OAU) lauk á
miðvikudag með því að samþykkt
var yfírlýsing, þar sem vestræn
ríki voru fordæmd fyrir stefnu
sína gagnvart Suður-Afríku. Á
fundinum tókst samt ekki að ná
samkomulagi um sameiginlegar
aðgerðir Einingarsamtakanna
sjálfra gegn Suður-Afríku.
Á fundinum beindist athygli
manna mjög að þeirri staðreynd,
að verzlun ríkja svartra manna í
Afríku við Suður-Afríku nemur ein-
um milljarði dollara. í fundarlok var
samþykkt ályktun um takmarkaðar
aðgerðir gegn stjóminni í Pretóríu.
„Lönd okkar verða að taka for-
ystu í því að láta í ljós andúð sína
og andstöðu á aðgengilegan hátt,
en láta slíkt ekkki bara í ljós með
orðskrúði," sagði Ali Hassan
Mwinyi, forseti Tanzaníu, í ræðu,
sem hann flutti á þinginu.
„Það er ekki nóg, að lýsa því
yfír, að við höfum hætt öllum við-
skiptum við stjóm Suður-Afríku,"
sagði Hassan ennfremur. „Við verð-
um að sýna fram á, að þeim sé í
raun og vem lokið."
Harðorðasti hluti yfírlýsingar
fundarins beindist gegn vestrænum
ríkjum og þá einkum Bretlandi.