Morgunblaðið - 01.08.1986, Side 25
MORGUNBÍAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1986
25
Stuðmngsmenn Marcosar:
Neita að hafa
barið mann til
dauðai
Manila, AP.
STUÐNINGSMENN Ferdinands
Marcosar, fyrrum forseta
Filippseyja, vísuðu í gær á bug
fréttum þess efnis að þeir hefðu
barið mann til dauða sl. sunnu-
dag í Manila.
Oliver Lozano, leiðtogi stuðn-
ingsmannanna, benti á mann, sem
hefði orðið vitni að atburðinum.
Maðurinn sagði að sex einkennis-
klæddir lögreglumenn hefðu barið
Steve Rodrigues til bana í skemmti-
garði, þar sem um 500 stuðning-
menn Marcosar reyndu að halda
GENGI
GJALDMIÐLA
Mamla
mótmælafund. Lögregla skarst í
leikinn og kom í veg fyrir að fundur-
inn færi fram.
Hins vegar halda fréttamenn því
fram að stuðningsmenn Marcosar
hafí valdið dauða Rodrigues og
dagblöð hafa birt myndir af at-
burðinum, þar sem engir lögreglu-
menn sjást.
Samkvæmt frásögn fréttamanna
var Rodriques misþyrmt þar til hann
missti meðvitund. Síðan var farið
með hann í sjúkrahús, þar sem
hann lést skömmu síðar.
Stuðningsmönnum Marcosar
hefur verið meinað að efna til mót-
mælafunda á Filippseyjum síðan
misheppnuð valdaránstilraun var
þar gerð í byijun júlí.
Hér sést Steve Rodrigue barinn til dauða í Manila á sunnudag.
Fréttamenn segja að stuðningsmenn Marcosar fyrrum forseta lands-
ins hafi verið að verki. Stuðningsmennirnir segja hins vegar að
„einkennisklæddir lögreglumenn" hafi valdið dauða Rodrigues.
Egyptar-Israelar;
Líkurásam- .
komulagi í
næstu viku
Taba, AP.
Sendinefndir Israels, Egypta-
lands og Bandarikjanna fóru í
gær í skoðunarferð um strand-
lengjuna Taba, sem er eitt helsta
ágreiningsefni ísraela og Egypta
til að reyna að ná samkoniulagi
í landamæradeilu ríkjanna
tveggja.
ísraelar hafa sagt að þeir vonist
til þess að samkomulag náist í
næstu viku, svo að George Bush
varaforseti Bandaríkjanna, sem er
á ferð um Miðausturlönd, geti verið
viðstaddur undirritun þess.
Egyptar hafa lýst yfír að náist
samningar um yfirráðarétt yfir
Taba, sem er vinsæll ferðamanna-
staður, mundi það ryðja úr vegi
síðustu hindruninni fyrir leiðtoga-
fund Shimons Peres forsætisráð-
herra ísraels og Hosnis Mubaraks
forseta Egyptalands.
Egypskir embættismenn hafa
einnig sagt að sendiherra Egypta-
lands, sem kvaddur var frá Israel
eftir innrás ísraela í Líbanon árið
1982, muni snúa þangað aftur eftir
undirritun samkomulagsins.
London, AP.
Bandaríkjadollar lækkaði tals-
vert í verði gagnvart öllum
helstu gjaldmiðliun í Evrópu
nema breska pundinu í gær.
Einnig lækkaði dollar verulega
gagnvart japönsku yeni eftir
ummæli George Schultz utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna
þess efnis að gengi dollars væri
enn of hátt.
Gengi dollars var sem hér segir:
2,0915 vestur-þýsk mörk (2,1140),
1,6785 svissneskir frankar
(1,6970), 6,8025 franskir frankar
(6,3525), 2,3600 hollensk gyllini
(2,3810), 1.440,50 ítalskar lírur,
1,3790 kanadískir dollarar
(1,3845).
Verð á einni gullúnsu var 359,20
dollarar, en var 352,00 dollarar á
þriðjudag.
Veður
víða um heim
Lœgst Hssst
Akureyri 8 skýjað
Amstordam 15 24 skýjað
Aþena 24 35 heiðskírt
Barcelona 26 heiðskfrt
Berlín 14 28 skýjað
Briissel 10 21 heiðskírt
Chicago 17 31 skýjað
Dublin 11 18 rigning
Feneyjar 28 heiðskírt
Frankfurt 17 25 heiðskírt
Genf 14 17 heiðskfrt
Helsinki 18 27 heiðskírt
Hong Kong 28 31 heiðskfrt
Jerúsalem 20 34 heiðskfrt
Kaupmannah. 11 22 heiðskfrt
Las Palmas 25 láttskýjað
Lissabon vantar
London 21 rignlng
Los Angeles 17 alskýjað
Lúxemborg 24 hálfskýjað
Malaga vantar
Mallorca 28 léttskýjað
Miami 25 31 rigning
Montreal 18 léttskýjað
Moskva 13 26 heiðskfrt
NewYork 21 30 skýjað
Osló 15 18 skýjað
París 18 28 heiðskfrt
Peking 22 28 heiðskfrt
Reykjavfk 12 léttskýjað
Ríóde Janeiro 14 28 skýjað
Rómaborg 18 33 heiðskírt
Stokkhólmur 17 25 heiðskírt
Sydney 4 13 rigning
Tókýó 25 32 heiðskfrt
Vínarborg 16 24 heiðskfrt
Þórshðfn 12 skýjað
HUÐILMUR
Spennandi ilmtegundir
sem gero þór lífið léttara.
MYKJANDI
ILMKVOÐA
Mýkjandi ilmkvoða
er nýjung í húðsnyrtingu.
Auðveld í notkun og smýgur
fljótt inn í húðina
Stefan
Thorarensen hf.