Morgunblaðið - 07.10.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1986
Það hefur verið í mér
að komast óskemmd-
ur í gegnum lífið
- segir Sigurður Óli Ólafsson fyrrverandi
alþingismaður sem er 90 ára í dag
SIGURÐUR ÓU Ólafsson fyrr-
verandi alþingismaður er 90 ára
í dag. Hann er einn þeirra manna
sem áttu þátt í að móta þéttbýUð
sem myndaðist við Ölfusárbrú
með farsælum störfum í hrepps-
nefndum Sandvíkurhrepps og
síðar Seifoss og einnig með
brautryðjendastörfum í verslun-
ar- og atvinnulifi. Sigurður býr
nú ásamt konu sinni Kristinu
Guðmundsdóttur að Fossheiði 34
á Selfossi þar sem þau halda
heimili á kyrrlátum stað.
Hann kemur til dyranna léttstíg-
ur og höfðinglegur og býður til
stofu, glaðlegur í fasi og bjartur
yfírlitum. Það er ekki að sjá að
árin séu 90 sem hann hefur að
bakijjar mætti vel draga tvo tugi
frá. Asamt því að halda myndarlegt
heimili eftir 61 árs hjónaband ferð-
ast þau hjón um á eigin bíl sem
Sigurður ekur og lætur árin ekkert
á sig fá.
„Eg keyri alltaf eitthvað á hverj-
um degi“, sagði Sigurður.“Ég hef
gaman af því að keyra og verð aldr-
ei þreyttur, sit við stýrið alveg án
þess að verða spenntur, hugsa bara
um bflinn og aksturinn. Ég fínn
ekki til neins óöryggis, fyndi ég til
þess hætti ég. Mér fínnst alveg
ómetanlegt að geta keyrt, bfllinn
bjargar okkur mikið, ég fer á honum
út S banka og í verslanir. Núna fyr-
ir stuttu fór ég til Reykjavíkur í
mikilli umferð og ð gekk vel“.
Með bílstjóranúmer AR 5
Sigurður er fæddur á Eyrarbakka
7. október jarðskjálftaárið 1896.
Hann ólst upp á Litlu-Háeyri á
Bakkanum hjá foreldrum sínum Ól-
afí Sigurðssyni söðlasmið og Þor-
björgu Sigurðardóttur frá
Naustakoti.Á 10. aldursári fluttist
hann að Litla-Hrauni sem þá var
býli á lítilli jörð. „Þar var ég við
þessi venjulegu sveitastörf", sagði
Sigurður aðspurður um æskuárin á
Eyrarbakka. „Strax og ég fór að
geta nokkuð fór ég að vinna útífrá,
í vegavinnu á sumrin og á sjónum
þegar ég hafði aldur til, 16-17 ára.
Byijaði þar á opnum báti hjá Sig-
urði Gíslasyni trésmið sem var
formaður. Tvö sumur var ég í hafn-
argerð í Reykjavík og í bygginga-
vinnu á Siglufirði.
1919 breytti ég um og fór til
ReykjavRur til að læra á bfl hjá
Magnúsi Skaftfeld. Um það leyti
sem ég tók prófið, sem bar númerið
ÁR 5 var Andrés kaupmaður á Eyr-
arbakka að kaupa sér bfl og bað
mig að koma og keyra fyrir sig.
Vorið eftir keypti ég bflinn af honum
og stundaði bflaakstur frá þeim tíma
til 1927 þegar við fluttumst að Sel-
fossi. Þá höfðum við hjónin búið tvö
ár á Eyrarbakka".
Verslunarstörf og rekst-
ur á Selfossi
Á Selfossi starfaði Sigurður hjá
Guðmundi tengdaföður sínum sem
var kaupfélagsstjóri kaupfélagsins
Heklu á Eyrarbakka og hafði yfír-
tekið útibú þess á Selfossi.Ári
síðar,1928, stofnaði Sigurður versl-
unin S.Ó.Ólafsson og co, í félagi við
tengdaföður sinn og Julíus Guð-
mundsson kaupmann úr Reykjavík.
Þeirri verslun veitti Sigurður for-
stöðu til ársins 1964 að hún var
seld kaupfélaginu Höfn, síðar Höfn
hf. sem nú rekur umfangsmikinn
verslunar- og atvinnurekstur á Sel-
fossi.
„Þegar við fluttum að Selfossi
fengum við húsnæði uppi á lofti í
gömlu Höfn og verslunin var niðr.
Þá var það eiginlega dottið uppfyrir
að verslunarskip kæmu á Eyrar-
bakka en vörur fluttar á bflum frá
Reykjavík. Ég var þama afgreiðslu-
maður og bflstjóri. Umferðin um
Selfoss jókst mjög mikið á þessum
árum. Við vorum með bensínsölu og
afgreiddum bensín hvenær sem var
á sólarhringnum. Mest var um að
vera á vorin, þá komu karlamir með
ullina og við keyrðum vömmar til
þeirra. Þetta vom allt saman miklir
heiðursmenn og sumir þeirra urðu
nokkurs konar heimagangar hjá
okkur".
Harkan var í verslunar-
pólitíkinni
Sigurður hefur starfað mikið að
opinbemm málum. Hann var kosinn
í hreppsnefnd Sandvíkurhrepps
1938 og einnig til sýslunefndar. í
báðum þessum nefndum sat hann
til 1947 þegar Selfosshreppur var
stofnaður. Hann varð fyrsti oddviti
Selfosshrepps og átti sæti í hrepps-
nefnd fram til 1962 og í sýslunefnd
1947 - 1958. Það liggur því beint
við að biðja Sigurð að rifja þessi ár
dálítið upp.
„Þegar kosið var til hreppsnefnd-
ar Sandvíkurhrepps 1938 vom
listakosningar að byija og þá tókust
á íhaldið og framsókn sem bar ægis-
hjálm yfír allt á þeim tíma. Sú pólitík
magnaðist með kaupfélaginu og
mjólkurbúinu".
-Var þá harka í pólitíkinni?
“Nei hún var góð en verslunar-
pólitíkin var harðari því kaupfélags-
menn vildu enga aðra verslun á
Selfossi og létu í veðri vaka að það
væri asnaskapur að kjósa þennan
kaupmann i nokkuð, það passaði
ekki fyrir bændur að kjósa svo. En
Sigurður Óli Ólafsson og Kristín Guðmundsdóttír kona hans á heim-
ili sinu.
Sigurður Óli við bifreiðina sem
hann ekur daglega.
það var og hefur alltaf verið til ein-
hver kjami á öðm máli, þó ekki
hafi borið mikið á því. í verslunar-
rekstrinum bjargaði það okkur að
við fómm aldrei út í neitt kapp en
flutum með og héldum okkar við-
skiptavinum. Við fómm fljótt út í
slátrun og höfðum mikil viðskipti
út af því“.
Stofnun Selfosshrepps og
landakaup mestu fram-
faramálin
Eftir því sem byggðin á Selfossi
óx jókst þörfin þar fyrir sérfram-
kvæmdir vegna byggðarinnar.
Þessar sérframkvæmdir áttu ekki
skilning bændanna í hreppsnefnd
Sandvíkurhrepps. Af þessum fram-
kvæmdum má nefna vatnsveituna
sem Sandvíkurhreppur vildi ekki
Sigurður Óli á tali við Þorstein Pálsson fjármálaráðherra í 60 ára
afmælishófi Hafnar hf á sl. ári.
skipta sér af. Þá gekkst Sigurður
Óli ásamt fleiri mönnum fyrir því
að stofnað var vatnsveitufélag sem
í vom einstaklingar og Mjólkurbúið.
Lögð var vatnslögn 1934, úr tré, sem
markaði tímamót .
Krafan um að Selfoss yrði sér-
stakt sveitarfélag fór vaxandi en
byggðin var þá í þremur sveitarfé-
lögum, Sandvíkurhreppi, Ölfus-
hreppi og Hraungerðishreppi.
Oddvitar hinna tveggja síðameflidu
vom andvígir þessari sameiningu
sem varð að vemleika með lögum
frá Alþingi 1947.
„Við urðum að greiða Ölfus- og
Hraungerðishreppi skaðabætur
vegna tekjumissis og eignum Selfoss
og Sandvflcurhrepps þurfti að skipta.
Við Lýður í Sandvík unnum í því
og gerðum tillögur um það sem
gengu eftir í sátt og samlyndi".
Sigurður Óli varð oddviti fyrstu
hreppsnefndarinnar, aðrir í þessari
fyrstu hreppsnefnd vom Ingólfur
Þorsteinsson, Diðrik Diðriksson,
Bjöm Sigurbjamarson, Guðmundur
Böðvarsson, Jon Pálsson og Egill
Thorarensen. Um störf hreppsnefnd-
arinnar sagði Sigurður.“Það vom
aldrei nein vandræði og allt í lagi
með samlyndið. Helstu framfaramál-
in sem hún beitti sér fyrir vom
landakaup sem dálítil átök urðu um.
Hreppsnefndin var sammála en
áróður uppi milli manna og reynt
var að stöðva málið í sýslunefnd en
það tókst ekki og af landakaupunum
varð. Síðar þegar kaupa þurfti land
fyrir Selfoss höfðu augu manna opn-
ast og þau gengu eftir".
-Hver var framtíðarsýn manna
varðandi Selfoss á þessum tíma?
„Ég var alltaf viss um að bærinn
myndi vaxa en kannski ekki eins
hratt og hann hefur gert. Það vom
þó ekki allir á því að hér yrði nein
veruleg byggð. Við vomm spurðir
að því, þegar við vildum láta skipu-
leggja land hreppsins, hvað við
vildum láta skipuleggja mikið land.
Hjá ríkinu létu menn sér detta í hug
að það yrði í mesta lagi 300 manna
byggð á Selfo8si“.
Með alþingismönnum Suðurlands á 60 ára afmæli Hafnar hf á sl ári. Fv. Árni Johnsen, Steinþór Gests-
son, Þorsteinn Pálsson, Sigurður Óli Sigurðsson og Eggert Haukdal.
Þá var ég fastur
í netinu
Sigurður var ámm saman formað-
ur sambands sjálfstæðisfélaganna í
Amessýslu og var fyrst í framboði
til Alþingis 1942.
„Ég fór auðvitað að vasast í póli-
tíkinni og stofnaði sjálfstæðisfélag.
Ég var með Eiríki Einarssyni frá
Hæli á ferðalögum og við fyrstu
listakosningamar 1942 fór ég á lista
með Eiríki, í 2. sæti. Þá varég fast-
ur í netinu og þegar Eitríkur féll frá
fór ég á þing, fyrst sem varamaður
1949 og svo aftur 1951 eftir að
Eiríkur veiktist. Þegar kjördæma-
breytingin varð fór ég í þriðja sætið.
Ingólfur Jónsson var í fyrsta sætinu
og Guðlaugur Gíslason í Eyjum í
öðra og við komumst allir að“.
Sigurður sat samfellt á þingi til
1967 og var forseti Efri deildar Al-
þingis 1963 - 67.
-En hvemig líst Sigurði á pólitík-
ina í dag?
„Mér fínnst vera líf í pólittkinni í
dag og ég held það sé frekar upp-
gangur í atvinnuvegunum. Það er
ekki eins mikill barlómur og verið
hefur. Annars er það nú svo að sum
blöð tala alltaf um það versta, spyija
hvort þetta eða hitt sé ekki óþolandi
o.s.frv. Það er ekki rétt að tala allt-
af um það versta og þegja hitt í
hel. Það góða verður að fá sína
umfjöllun.".
Finnst ég hafa
nóg að gera
-Hvemig fær maður tímann að
líða þegar maður er 90 ára?
-“Blessaður vertu mér finnst ég
hafa nóg að gera og það em engin
vandræði að láta tímann líða. Við
höldum heimili ennþá og sjáum um
okkur að öllu leyti. Ég les mikið og
reyni að fylgjast með í blöðum. Svo
les ég dálítið af bókum, fomsögur,
ævisögur ofl., gríp stundum í skáld-
sögur“.
-Þú hefur aldrei verið orðaður við
illdeilur?
-“Nei aldrei, það hefur verið í mér
að forðast slflct og reyna áð komast
óskemmdur í gegnum lífíð. Það var
nú svo að þó að við Egill Thoraren-
sen væmm andstæðingar og keppi-
nautar þá gátum við hist og spilað
ef okkur sýndist svo. Auðvitað skipt-
umst við á skoðunum en það er
nauðsynlegt fyrir alla að geta talað
saman eins og menn þrátt fyrir mis-
munandi skoðanir a málum.
Annars er það nú svo að það hef-
ur ekki alltaf verið mér og okkur
að þakka að okkur hefur gengið vel
I gegnum lífið það er eitthvað annað
sem heldur í taumana lflca".
Sigurður og Kristín eignuðust
flórar dætur, tvær þeirra em á lífí,
Þorbjörg, gift Kolbeini Kristinssyni
framkvæmdastjóra Hafnar hf og
Sigríður Ragna dagskrárfulltrúi
bamaefnis Sjónvarpsins, gift Hákoni
Ólafssyni forstjóra Rannsóknastofn-
unar byggingariðnaðarins.
Sigurður Oli og Kristín taka á
móti gestum í dag á Hótel Selfoss
kl. 4 - 7 síðdegis. Sig. Jóns