Morgunblaðið - 07.10.1986, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1986
Yegsvalirnar í
Oshlíð formlega
opnaðar umferð
Kostnaðurinn áætlaður 140—150 milljónir króna
Bolungarvík.
VEGSVALIR þœr sem unnið hef-
ur veríð við að byggja á Óshlfð-
arveg voru teknar formlega í
notkun sfðastliðinn föstudag að
viðstöddum forsætisráðherra,
samgönguráðherra, bæjarstjórn-
um Bolungarvíkur og ísafjarðar
og fleirí gestum. Við athöfn sem
fór fram við vegsvalimar ávarp-
aði Helgi Hallgrímsson aðstoðar-
vegamálastj óri viðstadda og bað
sfðan Matthías Bjamason sam-
gönguráðherra um að opna
þessar fyrstu vegsvalir á íslandi
formlega fyrir umferð.
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi frá útvarps-
stjóra, Markúsi Erni Antonssyni:
í Morgunblaðinu 4. október sl.
birtist sjónvarpsgagnrýni eftir Ólaf
M. Jóhannesson, þar sem fjallað er
um nýorðnar breytingar á dagskrá
sjónvarps. Þar segir m.a.:
„Að mfnu viti er slík „dagskrár-
kollsteypa" er hér á sér stað máski
fyrst og fremst merki um óheppileg
áhrif útvarpsráðs."
Af þessu tilefni skal skýrt tekið
fram að allar breytingar á dagskrá
hafa verið gerðar að frumkvæði
sjónvarpsins sjálfs og samkvæmt
tillögum sem framkvæmdastjóri
Að lokinni athöfninni bauð sam-
gönguráðherra og Vegagerð ríkis-
ins til veislu í sal ráðhússins í
Bolungarvík. Þar fluttu ýmsir
ávörp, meðal annars Ólafur Krist-
jánsson forseti bæjarstjómar
Bolungarvíkur, sem bauð gesti vel-
komna og fagnaði þessum merka
áfanga í samgöngu- og öryggismál-
um á norðanverðum Vestflörðum,
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra og Matthías Bjamason
samgönguráðherra.
Matthías rakti sögu og aðdrag-
anda framkvæmdanna hér á Óshlíð-
þess lagði fyrir útvarpsráð til sam-
þykktar.
Leiðrétting
í FRÉTT um kaffísölu Soroptim-
istakaklúbbs Kópavogs í Morgun-
blaðinu sl. laugardag var mishermt
að klúbburinn hefði rekið
Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldr-
aðra þar í bæ, frá því það var opnað
í maí 1982. Hið rétta er að 9 félög
og klúbbar stóðu fyrir byggingu
heimilisins og hafa rekið það frá
opnun. Blaðið biðst velvirðingar á
þessu mishermi.
inni. Hann sagði að vegskálanum
væri ætlað að greiða fyrir sam-
göngum um Óshlíð og auka öryggi
vegfarenda. Hann sagði ennfremur
að á næsta ári yrði byggður veg-
skáli á Ytri-Hvanngjá á Óshlíð og
bundið slitlag lagt á síðustu tvo
kílómetra vegarins og væri þá kom-
ið bundið slitlag alla leiðina á milli
ísaQarðar og Bolungarvíkur. Hann
gat þess að þessar framkvæmdir
væru aðrar í röðinni af svokölluðum
Ó-vegaframkvæmdum. Vegurinn
fyrir Ólafsvíkurenni hefði verið
fyrstur í röðinni og jarðgöng í Ól-
afsvíkurmúla væri þriðji O-vegurinn
og jafnframt mesta framkvæmdin.
Samgönguráðherra sagði að
kostnaður við þennan áfanga Ós-
hlíðarvegar væri kominn í 105
milljónir kr., reiknað á núverandi
verðlagi, en þegar framkvæmdum
lyki á næsta ári mjmdi kostnaðurinn
verða kominn upp í 140—150 mill-
jónir króna.
Ráðherra ræddi síðan um aðrar
vegaframkvæmdir á Vestljörðum
og sagði í því sambandi að í lang-
tímaáætlun um vegagerð á Vest-
flörðum hefðu tvö megin markmið
nokkum forgang. Annars vegar að
bæta vegasamband á milli þétt-
býlisstaða til að mynda eitt atvinnu-
og þjónustusvæði og hins vegar að
tengja þetta svæði við vegakerfi
landsins. En mörg stór verkefni
væru framundan til að ná þessum
markmiðum. Kostnaður við að
koma þjóðvegakerfi þessa kjör-
Breytingar að frum-
kvæði sjónvarpsins
Morgunblaðið/ Gunnar.
Matthlas Bjarnason samgönguráðherra klippir á borðann við vigslu
vegskálans á föstudag.
Við inngang vegskálans á vígsludaginn.
dæmis í viðunandi horf væri vart
undir 3,5 til 4 milljörðum króna.
Ráðherra harmaði mjög að ekki
skyldu verða auknar tekjur til vega-
mála samhliða bensínlækkuninni.
Hann sagðist hafa lagt til að tekn-
ar yrðu 2—3 krónur af bensínlækk-
un til að auka nýframkvæmdir en
það hefðu þýtt 200—300 milljónir
króna miðað við heilt ár. Að lokum
þakkaði hann vegamálastjóra og
öðrum starfsmönnum vegagerðar-
innar fyrir góða samvinnu og
samstarf á liðnum árum.
Vegsvalimar eru 90 metra lang-
ar, hæðin er 4,4 metrar þar sem
Iægst er og breiddin 8 metrar, þann-
ig að vegurinn í gegn er greiðfær
á tveimur akgreinum. Verktaki við
framkvæmdimar var Ömólfur Guð-
mundsson í Bolungarvík.
Gunnar.
Tölvur og þjóðlíf
opnuð á morgun
SÝNINGIN Tðlvur og þjóðlíf
verður opnuð í Reykjavík á
morgun af Steingrími Her-
mannssyni, forsætisráðherra, kl.
17.00. Forseti íslands frú Vigdís
Finnbogadóttir, verður viðstödd
ásamt fleirí gestum.
„Tölvur og þjóðlíf", sem er í
Borgarleikhúsinu, er opin daglega
frá kl. 10.00—22.00 til sunnudags-
ins 12. október.
Kasparov heldur heimsmeistaratitlinum
Skák
Margeir Pétursson
GARY Kasparov verður heims-
meistarí i skák í a.m.k. eitt ár
til viðbótar, þvi hann hefur
fengið tólf vinninga i einviginu
við Karpov og þar með tryggt
sér a.m.k. 12-12 jafntefli, em
nægir honum til að halda titlin-
um. Á laugardaginn var vann
Kasparov 22. skákina i 46 leikj-
um eftir að hún hafði faríð í
bið. Þar með endurheimti hann
forystuna i einviginu og með
jafntefli í 23. skákinni í gær-
kvöldi lauk hann við að verja
titilinn. 24. og síðasta skákin
verður þó væntanlega tefld á
morgun, þvi úrslit þurfa að
fást i einviginu og Karpov á
möguleika á að halda jafntefli,
12-12, þó titillinn sé genginn
honum úr greipum.
Fagnaðarlæti brutust út í skák-
salnum í Leningrad strax og í ljós
kom að Kasparov hafði innsiglað
bezta biðleikinn í 22. skákinni.
Er skákin fór í bið kvöldið áður
var almennt talið að Karpov ætti
góða jafnteflismöguleika. Við
rannsóknir á stöðunni kom hins
vegar í ljós að vel falin vinnings-
leið leyndist í stöðunni. Þetta lak
út í skákkreðsum Leningradborg-
ar og gífurleg spenna myndaðist,
því Kasparov hafði þegar innsi-
glað 41. Ieik sinn og ef hann hefði
ekki séð vinningsleiðina þá, hefði
hann óumflýjanlega hlotið að velja
rangan leik.
Eftir að umslagið hafði verið opn-
að gengu hlutimir hratt fyrir sig.
Karpov hafði greinilega sætt sig
við að engin vöm væri í stöðunni
og eftir sex leiki og fárra mínútna
taflmennsku gafst hann upp.
Eftir þetta var Karpov kominn í
þá óþáégilegu aðstöðu að þurfa
að vinna báðar síðustu skákimar
til að endurheimta heimsmeistara-
titilinn, enda fór sem fór, í 23.
skákinni komst hann ekkert áleið-
is gegn frumlegri taflmennsku
Kasparovs. Eftir fremur rólega
byijun fór Kasparov með hrók
sinn út á mitt borð, sem þykir
ógætilegt í miðtafli. Þetta þýddi
það að Karpov varð að veikja
kóngsstöðu sína lítillega og bjug-
gust margir við því að heims-
meistarinn ætlaði að blása til
fífldjarfrar kóngssóknar. Af því
varð þó ekki, hann dró hrókinn
djarfa til baka og jafnaði taflið
síðan auðveldlega með því að fá
uppskipti á drottningarvæng. í
32. leik bauð Karpov jaftitefli,
enda var þá alls ekkert fyrir hann
að hafa í stöðunni.
Fagnaðarlæti áhorfenda voru
mikil, enda flestir á því að titil-
vöm Kasparovs hafí verið mjög
verðskulduð. Hann leiddi einvigið
lengst af og komst yfír 9 1/2 - 6
1/2 eftir 16 skákir. En þá kom
hræðilegur kafli, Karpov vann
þijár skákir í röð og jaftiaði met-
in. Eftir þetta áfall náði Kasparov
að taka sig saman í andlitinu.
Hann endurheimti sjálfstraustið
með jafnteflum f 20. og 21. ská-
kinni og náði síðan að sýna sitt
bezta f þeirri 22.
Biðstaðan úr 22. skákinni tefldist
þannig áfram:
Svart: Anatoly Karpov
Hvitt: Gary Kasparov.
Það vom margir á því á föstu-
dagskvöldið að svartur ætti góða
jafnteflismöguleika í biðstöðunni,
því ef hvítur valdaði peðið á d4
með 41. Hb4 væri hrókurinn lítið
virkur. Slíkur leikur er ekki að
skapi Kasparovs og hann fann
þvingaða vinningsleið í stöðunni,
sem byggðist á kóngssókn. Það
er merkilegt að svartur á ýmsa
vamarmöguleika eftir biðleikinn,
en allar leiðir liggja til Rómar líkt
og í skákdæmi. Það er rétt að
vekkja athygli á því að í fréttatíma
sjónvarpsins á laugardagskvöldið
vom leikimir í biðskákinni sýndir
í rangri röð, svo það var því ekki
aðeins snilld Kasparovs sem olli
því að margir sjónvarpsáhorfend-
ur skildu hvorki upp né niður.
Rétt leilqaröð var þannig:
41. Rd7!! - Hxd4 42. Rf8+
í sjónvarpinu var hér leikið 42.
Hb4 strax, sem er út í hött því
riddarinn á d7 er þá valdlaus.
Kh6 43. Hb4!
Lykilleikurinn, því ef 43....Hdl
þá 44. Hb8 með hótuninni 45.
Hh8+ og svartur á ekki lengur
svarið 44....DÍ4. Þá er mjög mikil-
vægt að peðsendataflið eftir43....
Hxb4 44. axb4 - f6 45. Dxg6+ -
Dxg6 46. Rxg6 - Kxg6 47. b5 -
d4 48. Kg3 er léttunnið fyrir hvít.
Hc4 44. Hxc4 - dxc4 45. Dd6
Nú hótar hvítur hreinlega 46.
Dd2+ og mátar.
c3 46. Dd4
í þessari stöðu gafst Karpov upp,
því 46....Bh7 er eini leikurinn til
að forðast mát og þá vinnur hvítur
auðveldlega með 47. Dxc3.
23. einvígisskákin:
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Gary Kasparov
Enski leikurinn
1. Rf3
Þetta er í fyrsta sinn í einvíginu
sem Karpov gefur drottningar-
peðinu frí. Menn fóm strax að
velta því fyrir sér hvort þetta
bæri að túlka sem örvæntingu eða
uppgjöf.
Rf6 2. c4 - b6 3. g3 - c5 4. Bg2
- Bb7 5. 0-0 - g6 6. d4 - cxd4
7. Dxd4 - Bg7 8. Rc3 - d6 9.
Hdl - Rbd7 10. b3 - Hc8 11.
Bb2 - 0-0 12. DeS - He8
Slíkar stöður em yfirleitt taldar
fremur hagstæðar hvítum, því
hann hefur meira rými, en
Karpovgengur illa að fínna væn-
lega áætlun.
13. Hacl a6 14. Bal Hc5 15.
a4 Da8 16. Rel Hf5!
Merkilegur leikur, hrókar eiga
yfírleitt lftið erindi inn á mitt borð
þar sem þeir verða að skotspæni
biskupa, riddara og peða. Ka-
sparov hótar nú 17....Rg4 og það
knýr Karpov til að veikja stöðu
sína lítillega.
17. Bxb7 - Dxb7 18. f3 - h5 19.
Rg2 - Hc5!
Hrókurinn djarfi hefur lokið erindi
sínu á kóngsvæng, því auk veik-
ingarinnar stendur Rg2 illa.
20. Bb2 - Hcc8 21. Ba3 - Rc5
22. Hbl - Re6 23. Dd3 - Rc7!
Undirbýr að sprengja upp á
drottningarvæng.
24. Rf4 - b5 25. cxb5 - axb5 26.
Rxb5 - Rxb5 27. Dxb5 - Dxb5
28. axb5 - Hb8 29. Bb2 - Hb7
Svartur fellur ekki í gildmna
29.... Hxb5? 30. Bxf6 Bxf6 31.
Rd5 með tvöfaldri hótun.
30. b6 - Heb8 31. b4 - Rd7 32.
Bxg7 og hér þáði Kasparov jafn-
teflisboð andstæðingsins. Eftir að
Kasparov vinnur peðið til baka
hefur hann mjög þægilegt enda-
tafl.