Morgunblaðið - 07.10.1986, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1986
45
Hagstofa íslands
Tveir skrifstofu-
stjórar ráðnir
FORSETI íslands hefur skipað
Íá Ingimar Jónasson og Vihjálm
•lafsson skrifstofustjóra Hag-
stofu íslands frá fyrsta október
1986 að telja. Þeir hafa báðir
unnið um árabil á Hagstofunni.
Ingimar Jónasson er fæddur í
Reykjavík árið 1925. Hann lauk
prófi í viðskiptafræði frá Háskóla
Islands árið 1951. Ingimar réðist
til Hagstofunnar árið 1952, varð
fulltrúi í þjóðskrá frá 1953 og deild-
arstjóri þjóðskrár frá 1. júlf 1964.
Ingimar Jónasson
Vilhjálmur Ólafsson er fæddur í
Reylqavík árið 1933. Hann lauk
prófí í viðskiptafræðum frá Háskóla
Islands árið 1959. Vilhjálmur starf-
aði á Tollstjóraskrifstofunni,
Bæjarfógetaskrifstofunni í Hafnar-
fírði, Framkvæmdabanka íslands
og Ríkisskattstjóraembættinu á ár-
unum 1959 til 1972. Hann hefur
verið deildarstjóri á Hagstofunni frá
1973 og haft umsjón með útreikn-
ingi vísitalna.
Fréttatilkynning
Vilhjálmur Ólafsson
JMtfgtuiMfKfeifr
I Gódan daginn!
Sjá If stæð isf I o ku r i n n
í Reykjavík:
Kynning á
prófkjörsframbjóðendum
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík efnirtil kynn-
ingarfunda með frambjóðendum í prófkjöri flokksins í
Reykjavík sem fram fer 18. október nk.
Fundirnir verða haldnir þriðjudaginn 7. og miðvikudaginn
8. október og hefjast kl. 20:30 í sjálfstæðishúsinu Valhöll,
Háaleitisbraut 1.
Dregið var um röð frambjóðenda. Á fyrri fundinum (7. októ-
ber) koma eftirtaldir frambjóðendur fram. Albert Guðmunds-
son ráðherra, Jón Magnússon lögmaður, Rúnar Guðbjartsson
flugstjóri, Friðrik Sophusson alþingismaður, Esther Guðmunds-
dóttir markaðsstjóri, Ásgeir Hannes Eiríksson verslunarmaður,
María E. Ingvadóttir viðskiptafræðingur, Ragnhildur Helgadóttir
ráðherra.
Á seinni fundinum (8. október) koma eftirtaldir frambjóð-
endur fram: Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur, Eyjólfur Konráð
Jónsson alþingismaður, Sólveig Pétursdóttir lögfræðingur, Birgir
ísleifur Gunnarsson alþingismaður, Guðmundur H. Garðarsson
viðskiptafræðingur, Geir H. Haarde hagfræðingur, Bessí Jóhanns-
dóttir framkvæmdastjóri.
Hver frambjóðandi flytur framsöguerindi og fær til þess fimm
mínútur, en að því búnu geta fundargestir borið fram fyrirspurnir
til þeirra. Sjálfstæðismenn eru hvattir til að fjölmenna.
Fulltrúaráð sjálfstæðísfélaganna í Reykjavík.
i
u
Álafoss ullarvörurnar eru mjúkar og hlýjar. Nú gefst þér kostur á þeim í miklu úrvali á góðu verði á
Álafossútsölunni. Þar færðu m.a. garn í peysu á 280 kr., fallegar peysur frá 400 kr., værðarvoðir í
mörgum litum frá kr. 450, trefla, sokka, húfúr og ótal margt fleira — og auðvitað allt úr yfvolgum
Álafosslopa. Þá er bara að drífa sig inn í hlýjuna í H húsinu Auðbrekku 9 Kópavogi.
Útsalan stendur til 29. október og er opin virka daga frá kl. 10 til 19 og frá 10 til 16 á laugardögum.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
^llafoss
o
£
ZK
co
>