Morgunblaðið - 07.10.1986, Page 70
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER Í986
^Grunnskólinn Þingeyri:
Gróðursett, grigað og girt
Vinnuflokkur
nemenda, sem girti
oggrisjaði
í skógar-
reitnum fyrir
ofan bæinn.
Stutt við girðingarstaur fyrir
þann sem veldur sleggjunni.
GRUNNSKÓLINN á Þingeyri
hófst með starfsviku nemenda
og kennara. Þá voru tekin fyrir
ýmis verkefni sem ekki eru á
öiagskrá dags daglega. Gamall
skógarreitur • fyrir ofan bæinn
var girtur, kalkvistir sagaðir, tré
gróðursett við skólann og leik-
tæki á skólalóðinni máluð.
„Girðingin í kring um gamla
skógræktarreitinn uppi á brekku-
hálsinum var mjög illa farin," sagði
Hallgrímur Sveinsson skólastjóri
grunnskólans. „Við kennaramir
höfum verið með nemendunum í
girðingarvinnunni og voru settir
upp nýir staurar og nýtt net. Þetta
er heilmikið verk.“ Þeir sem ekki
tóku til hendinni í girðingarvinn-
unni sáu um að saga af kalkvisti í
skógarreitnum og reyndist það
dijúgt verk. „Búið er að leggja drög
-^ð gróðursetningu við skólann og
verður vandlega staðið að því,“
sagði Hallgrímur. „Hver og einn
grefur holu og setur í hana áburð
og mold sem fengin hefur verið úr
sveitinni. Síðan verður farið að
Hrafnseyri, þar sem er þéttvaxinn
skógur sem þarf að grísja og þar
fær hvert bam rúmlega meters
hátt birkitré sem það helgar sér og
gróðursetur við skólann. Bömunum
er ætlað að hugsa um sitt tré á
meðan þau eru í skólanum og helst
lengur." Yngri bömin unnu að
ákveðnu verkefni sem tengist tijám
og tijárækt. Þau leituðu svara við
því hvað er tré? Hvað fæst úr tré?
Til hvers er tijárækt ?
Þá hefur bömunum verið falið
að mála leiktækin á skólalóðinni,
lagfæra sparkvöllinn, fúaveija girð-
ingu í kring um skólalaóðina og
Iaga netið sem hefur dottið niður.
„Tilgangurinn er fyrst og fremst
sá, að reyna að ala þau upp til
ábyrgðar á eigin umhverfi," sagði
Hallgrímur. „Við settum þeim
ákveðin einkunarorð í haust fyrir
veturinn, „Látum gott af okkur
leiða", og er hugmyndin sú að nem-
endumir finni sjálf hjá sér hvöt til
að rétta náunganum hjálparhönd.
Hjálpi til dæmis gömlu fólki sem
býr eitt og þarf aðstoðar við, við
að moka snjó. Ég hef lofað því að
ég muni gefa þeim leyfi frá skólan-
um til að skjótast ef þau sjá að
þörf er á slíku góðverki."
Hulda.
Nemendur hjálpast að við að leysa verkefnin. Hér rekja tvær stúlk-
ur upp girðingamet.
Nemendur ásamt kennara í girðingarvinnu.