Morgunblaðið - 05.12.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1987
15
munuð nuddsins
Asr í ELUNNI
KARLMENN - KYNTÁKN SEM SEUA
Einkaviðtöl Mannlífs-
Anker Jörgensen, fyrrum
leiðtogi danskra jafnaðar-
manna og forsaetisráðherra
um árabil, er einn af helstu
stjórnmálaleiðtogum Norð-
urlanda á síðari tímum.
í skemmtilegu einkaviðtali
við Mannlíf segir Ankerfrá
sjálfum sér, sigrum og
ósigrum, og kynnum af ís-
landi og íslenskum stjórn-
málamönnum, eins og Ólafi
Jóhannessyni, Jóni Batdvin
Hannibalssyni og Gylfa Þ.
Gfslasyni, sem hann hefur
staðiö í nánum bréfasam-
bandi við um langt skeið.
Breska rokkhljóm-
sveitin JethroTull
ereinhverfræg-
asta sveit rokk-
sögunnar.
Höfuðpaurhenn-
ar, flautuleikarinn
og söngvarinn lan
Anderson, ræðir
um músík og að-
aláhugamál sitt
og atvinnugrein -
fiskeldið - í einka-
viðtali við Mannlíf.
í Berchtesgaden í Þýskalandi
er afar fagurt, en þar var einnig
miðstoð voðaverka nazista í
heimstyrjöldinni síðari. Þar var
Arnarhreiður Hitlers. Mannlíf
heimsótti þennan sögufræga
stað og segir frá því í máli og
myndum.
íslenskir hommar hafa á síðustu
árum stigið fram fyrir skjöldu og
komið „úrfelum", eins og sagt er.
En hvað um íslenskar lesbíur? í ítar-
legri úttekt Mannlífs á stöðu
íslenskra lesbía og hlutskipti lesbía
gegnum tíðina kemur fram, að
meirihluti lesbía hérlendis er í fel-
um, því enn eiga þær yfir höfði sér
fordæmingu og félagslega kúgun.
í samtölum við Mannlíf bjóða þó
sjö þeirra umhverfinu byrginn og
komaúrfelum.
É i ' ^
Ástin spyr ekki um aldur.
Mannlíf ræðir við þrenn pör
sem eiga það sameiginlegt að
hafa orðið ástfangin á efri
árum, - jafnvel í trássi við
almenningsálitið.
Jafnréttissinnar hafa stund-
um kvartað yfir því, að konur
væru notaðar í auglýsingum
sem kyntákn til að selja vör-
ur. En í vaxandi mæli eru
karlmenn ekki síður kyntákn
sem selja. Mannlíf ræðir við
þrjá karlmenn, sem vakið
hafa athygli fyrir framkomu
í sjónvarpsauglýsingum, en
er þar fyrir utan margt til
listalagt.
Meðal fjölmargs annars efnis:
STÓRHÖFÐINGINN: Inga Huld Hákonardóttir skrifar
skemmtilegan prófíl af Oskari J. Sigurðssyni, vitaverði
á syðsta vita landsins og heimsmethafa í
iundamerkingum.
SYSTUR í ANDANUM: Mannlíf ræðir við nokkrar nunn-
ur St. Jósefsreglunnar um líf i helgum steini.
BLÁBJÁNINN I HERDEILDINNI: Ólafur Gunnarsson,
rithöfundur, skrifar fróðlega grein um Jaroslav Hasek,
hinn makalausa höfund Góða dátans Sveik, sem nú
er sýndur í sjónvarpsformi hérlendis.
Frjálstframtak
Ármúla 18
Sími 82300
FRELSITIL AÐ VERA í FRIÐI: Vernharður Linnet
dreguruppfróðlega mynd afTryggva Ólafssyni, list-
málara í Kaupmannahöfn, sem nú sýnir verk sín á
íslandi,
jafnframt því sem út er að koma bók um list hpns.
ÞINGMAÐUR BAK VIÐ BÚÐARBORÐ:
Kolbrún Jónsdóttir.
ENSKURTÓNLISTARFRÖMUÐUR FYRIR AUSTAN
FJALL: Robert Darling.
ÍSLENSKT SAKAMÁLALEIKRIT EFTIR FRANSKAN
RITHÖFUND: Mannlíf ræðir við Michel Chaillou.
STÁLMÚSIN: Hvað varð um Skúla Óskarsson?
Desemberblað MANNLÍFS er 180 bls. að stærð.
Metsölutímaritíð MANNLIF
komið út
lenskar LESBÍUR
~ a leið úr felum
í streituþjáðu velferðarþjóðfélagi
leita æ fleiri til nuddsins til að fá
hvfld og lækningu ýmissa líkamlegra
kvilla. Rafn Geirdal, nuddfræðingur,
skrifarforvitnilega grein um gildi
nuddsinsfyrirokkur.