Morgunblaðið - 28.09.1988, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988
25
Jttargnnfcliifetfe
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Bajdvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Vinstri stjórn
á veikum grunni
Niðurstaða virðist, nú vera
í augsýn á stjórnarkrepp-
unni. Þrír vinstri flokkar, Al-
þýðubandalag, Alþýðuflokkur
og Framsóknarflokkur, ætla
að taka höndum saman þrátt
fyrir allt sem á undan er geng-
ið. Með tilstyrk Stefáns Val-
geirssonar, sem sest ekki í
ríkisstjórn af því að hann telur
sig hafa betri tök á opinberum
fjármunum utan hennar, ætla
fulltrúar þessara flokka að
setjast í ráðherrastóla. Fyrir
dyrum stendur að mynda nýj-
an sjóð með 4 til 5 milljörðum
króna og veija honum til svo-
kallaðra skuldaskila og lýtur
stjórn hans formennsku Stef-
áns Valgeirssonar eða manna
hans. Með þessari stórfelldu
millifærslu er ætlun ríkis-
stjórnarinnar að beina nýju
fjármagni til þeirra fyrirtækja
sem að mati þeirra sem að
henni standa eru helst fjár-
þurfi. Hefur þegar verið vakin
athygli á því, að líklega muni
Samband íslenskra samvinnu-
félaga eða fyrirtæki tengd því
sitja þar í fyrirrúmi.
Nái áformin um stjórnar-
samstarfið fram að ganga
verða í dag gefin út bráða-
birgðalög sem að meginstefnu
snúast um þessa stórfelldu
millifærslu. Ríkisstjórnin
stendur á hinn bóginn frammi
fyrir miklum vanda við að
koma saman fjárlögum fyrir
næsta ár. Millifærsla breytir
ekki þeirri staðreynd að mein-
semd efnahagsvandans er
helst að finna í ríkisfjármálun-
um.
Hinn 10. október kemur
síðan Alþingi saman. Þá dreg-
ur að því að stjórnin þurfi að
fá lagafrumvörp samþykkt.
Þá stendur hún frammi fyrir
því að hún hefur ekki að
óbreyttu nægilegan þingstyrk
til að koma málum í gegnum
báðar þingdeildir. Það skortir
á stuðning við stjórnina í neðri
deild. Hún fær ekki lagafrum-
vörp samþykkt þar nema þing-
menn einhverra annarra
flokka en þeirra sem formlega
standa að stjórninni veiti henni
lið. Með hliðsjón af því, hvern-
ig til stjómarsamstarfsins var
stofnað, má raunar ætla að
nógu erfitt verði að halda um
stjómarliðið sjálft, þótt ekki
bætist við leitin að varaskeifu.
Hvernig sem á málið er litið
er þessi vinstri stjórn reist á
veikum grunni. Málefnalega
hverfur hún um 30 ár aftur í
tímann og stefnir að því að
taka upp millifærslukerfi sem
afnumið var með tilkomu við-
reisnarstjórnarinnar. Hug-
myndir af þessu tagi styrkja
ekki samkeppnisstöðu okkar
þegar til lengri tíma er litið.
Millifærslan gæti hæglega
orðið til þess að veikja svo
innviði margra fyrirtækja að
þau verði með öllu ófær að
standast samkeppni á sífellt
kröfuharðari mörkuðum.
Þingstyrkur stjórnarinnar
veitir henni lítið sem ekkert
svigrúm og flest bendir til að
kraftarnir muni fremur fara í
að halda sundruðum hópi
stuðningsmanna saman en
sækja fram á nýjum sviðum.
Félagsandi verður tæplega
aðal þessarar stjórnar sem vill
kenna sig við félagshyggju.
Ben John-
son úr leik
Fréttin um að Ben Johnson
sem hljóp 100 metrana á
9,79 sekúndum á Ólympíuleik-
unum í Seoul og setti nýtt
heimsmet samtímis skuli hafa
fallið á lyfjaprófi kom eins og
reiðarslag yfir alla heims-
byggðina. Þótt þeim íþrótta-
mönnum fjölgi jafnt og þétt
sem lenda í vandræðum af
þessum sökum, áttu líklega
fáir von á því að þetta goð
skyldi falla af stalli fyrir þess-
ar sakir.
Framganga íþróttamanna í
keppni af þessu tagi hefur
löngum verið deiluefni. Öllum
er ljóst að til þeirra sem taka
þátt í Ólympíuleikunum er far-
ið að gera ofurmannlegar
kröfur. Með lyfjum og aðstoð
sérfræðinga á sviði' heilsu- og
sálgæslu leggja keppendur
harðar að sér en í raun er
unnt að bjóða líkama og sál.
Ekki er unnt að setja því nein-
ar opinberar skorður hve hart
menn leggja að sér en hitt er
ekki þolað að þeir beiti brögð-
um til að ná lengra en líkams-
kraftarnir einir leyfa. Á þessu
f'éll spretthlauparinn Ben
Johnson. -
STJORNARMYNDUNIN
Afiiám launaftystingar
ófrávíkjanlegt skilyrði
- segir Guðrún Agnarsdóttir, Kvennalista
„VIÐ lýstum okkur reiðubúnar til viðræðna um væntanlegar efnahags-
aðgerðir og jafiivel að styðja þær á einhvern hátt, með tveimur skilyrð-
eftir að við höfðum haft samráð við konur um allt land. Þau
um.
skilyrði eru að samningsrétti verði komið á og að launafrysting verði
afnumin nú þegar,“ sagði Guðrún Agnarsdóttir, þingmaður Kvenna-
lista eftir fund Kvennalistakvenna með ráðherrum Alþýðuflokks í
gær. Ráðherrarnir þrír héldu einnig fúnd með Kvennalista á mánudag.
Guðrún sagði að þetta væru
ófrávíkjanleg skilyrði, hvórt sem um
væri að ræða þátttöku í stjóminni
eða að veita henni hlutleysi. Kvenna-
listi myndi hins vegar alltaf styðja
góð mál, hvaðan sem þau kæmu.
Kvennalistanum hefði ekki borist
svar við þessum kröfum.
„Við teljum að það sé hægt að
Yaraþing-
maður Skúla
kemur inn
„Alþýðubandalagið mun skila
átta atkvæðum í öllum lykilat-
kvæðagreiðslum í þessu stjórnar-
samstarfi," sagði Olafúr Ragnar
Grímsson eftir þingflokksfúnd
Alþýðubandaiagsins í gær. Skúli
Alexandersson játti því að vara-
þingmaður hans myndi koma inn
á þing í mikilvægum atkvæða-
greiðslum fyrir stjórnina, en
Skúli hafði lýst andstöðu við
stjómina.
„Það sem Ólafur Ragnar segir er
alveg rétt. Það hefur hins vegar
ekkert breyst í sambandi við mína
afstöðu til ríkisstjórnarinnar. Ég hef
greitt atkvæði gegn henni, en at-
kvæði mitt mun skila sér ef um van-
traust er að ræða. Ég hef alltaf lýst
því yfir að ég muni vinna eftir sam-
þykktum flokksins í sambandi við
öll mál sem upp koma í þinginu,“
sagði Skúli.
Alþýðubandalagið:
„Forystan
hefur rof-
ið öll grið“
í LOK miðsfjórnarfúndar Al-
þýðubandalagsins í gær létu sex
miðstjórnarmenn bóka yfirlýs-
ingu, þar sem segir að þeir muni
aldrei styðja ríkisstjórn sem virti
að vettugi rétt verkalýðshreyf-
ingarinnar til fijálsra samninga.
Birna Þórðardóttir lýsti aðdrag-
anda þess að samþykkt var að
ganga í ríkisstjóra og sagði
síðan: „Nú hefúr þingflokkur og
flokksforysta enn á ný rofið öll
grið og gengið á bak orða sinna
og leggur enn á ný fyrir mið-
stjórnarfélaga á stór-Reykjavík-
ursvæðinu stjórnarsáttmála sem
brýtur í bága við grundvallar-
stefnumið Alþýðubandalagsins
og grundvallarmannréttindi
borgaralegs lýðræðis.“
Birna sagði að þingflokkurinn
hefði samþykkt í síðustu viku að
Alþýðubandalagið færi ekki í ríkis-
stjóm nema launafrysting yrði af-
numin og samningsrétturinn endur-
heimtur strax, en síðan hefði hann
lagt fyrir miðstjórnarfund á laugar-
dag drög að stjórnarsáttmála, sem
hefðu falið í sér áframhaldandi af-
nám samningsréttar og kjararán.
Meirihluti þingflokksins hefði talið
að hægt væri að stilla miðstjórn
upp frammi fyrir orðnum hlut, en
svo reyndist ekki vera. Fyrri sam-
þykktir hefðu verið áréttaðar, mið-
stjóm send heim og ekki talið nauð-
synlegt að hún sýndi hug sinn með
atkvæðagreiðslu.
leysa vanda fyrirtækjanna og draga
úr verðbólgu með öðrum hætti en
að lækka laun. Það eru 45% laun-
þega sem eru eingöngu á töxtum
og þeir eru látnir borga fyrir þann
vanda sem við blasir. Við getum
ekki staðið að því, sérstaklega með
tilliti til þess að í þssum hópi er
fjöldi kvenna. Við höfum bent á
ýmsar aðgerðir, til dæmis að koma
á bindiskyldu á fjármagnsmarkaði,
skattleggja fjármagnstekjur, bæta
við nýju skattþrepi, ef til vill skyldu-
spamað á hátekjufólk. Það eitt að
draga úr eða fella niður matarskatt
myndi strax minnka verðbólguna og
draga úr kostnaði heimilanna.
Það hafa aldrei verið neinar til-
slakanir í boði í þessum viðræðum
við Kvennalistann. Okkur hefur ver-
ið boðið að líta á tilbúin plögg, en
ekki að leggja fram neinar hug-
myndir sjálfar. Við höfum engan
áhuga á að sporðrenna annara
manna plöggum á elleftu stundu án
þess að hafa tækifæri til að móta
þau.
Við viðurkennum að það er vandi
á ferðum og það er brýnt að taka á
honum. Við teljum hins vegar að það
sé hægt að gera það á annan hátt
en þann sem boðið er upp á. Að því
loknu finnst okkur eðlilegt og rétt
að þjóðin fái að kjósa.“
- Hvernig hefur „grasrótin" getað
brugðist við í þessum viðræðum?
„Geysilega fljótt. Þessi valddreif-
ing er virk með ótrúlegum hraða á
svona álagstíma eins og núna. Um-
ræðan verður kannski aðeins tíma-
frekari og erfiðari, en við höfum nú
betra lag á því að vinna hratt, og
við stöndum þá á grunni sem er
traustur. Auðvitað eru ekki ævinlega
allar sammála en það fæst alltaf
einhver heildarniðurstaða af hverj-
um fundi, sem allar sætta sig við.
Þá hefur ekki einhver minnihluti
tapað í kosningum sem vill leita rétt-
ar síns seinna.“
Geir Gunnarsson alþingismaður:
Lá fyrir að ég myndi
hlíta vilja miðsljórnar
„ÉG VAR samþykkur því að ganga inn í þessa stjórn að því tilskyldu
að það fengist fiillur samningsréttur strax og stjórnin tæki við völd-
um. Ef það fengist ekki þá var ég andvígur því að Alþýðubandalagið
tæki þátt í stjórninni. Ef miðstjórnin hins vegar samþykkti það að fara
í stjórnina, þótt þetta skilyrði næðist ekki fram, þá lá fyrir að ég sém
flokksmaður myndi hlíta því og styðja stjórnina," sagði Geir Gunnars-
son þingmaður Alþýðubandalagsins við Morgunblaðið.
Þegar Geir var spurður hvort það
hefði engin áhrif haft á afstöðu hans
að ýmsir verkalýðsleiðtogar væru
andvígir því að samningsrétturinn
yrði gefinn fijáls þegar í stað, sagði
hann: „Ég þarf ekki að spyrja þá
að því hver mín afstaða er. Ég álít
að samningsrétturinn sé mannrétt-
indi og þótt éinhverjir verkalýðs-.
foringjar séu komnir á það stig að
láta sig samningsréttinn litlu skipta,
þá varðar mig ekki um það.“
Steingrímur Hermannsson kemur út úr Sljórnarráðinu síðdegis í gær eftir að
umboð til stjórnarmyndunar hjá forseta íslands.
Morgunblaðið/Sverrir
hafa fengið formlegt
Steingrímur fékk form-
legt umboð síðdegis í gær
Vona að stj órnarsam-
starfið skili árangri
- segir Birgir Árnason formaður SUJ
BIRGIR Arnason formaður Sambands ungra jafiiaðarmanna, segist
vona að sljórnarsamstarfið verði árangursríkt, þótt hann viti ekki
hvað það boði að Alþýðubandalagið kom ekki mjög samhent til stjórn-
armyndunarviðræðnanna.
STEINGRIMUR Hermannsson
formaður Framsóknarflokksins
fékk í gær formlegt umboð til
.að mynda meirihlutastjórn á Al-
þingi. Steingrímur gekk á fúnd
forseta, frú Vigdísar Finnboga-
dóttur, klukkan þrjú í gærdag
og tilkynnti henni að hann gæti
Morgunblaðið/Svemr
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, flytur ávarp að loknum fimm tíma miðstjómar-
fúndi, þar sem samþykkt var að ganga i ríkissfjórn með Framsóknarflokki, Alþýðuflokki og Samtökum
um jafnrétti og félagshyggju.
Olafiir Ragnar Grímsson eftir miðsfi ómarfund Alþýðubaudalags:
Reisum Island úr rúst-
um frjálshyggjunnar
„ÉG TEL að það sé ekki kostur að svona mikilvæg ákvörðun sé tekin
í einhveijum halelújakór. Auðvitað er það áiitamál, þó að úrslitin séu
ótvíræð. Við heitum á alþýðubandalagsfólk um allt land, á launafólkið
í landinu, á landsbyggðarfólkið sem nú ber vonir um að atvinnulífið
í landinu fari aftur í gang, að taka saman höndum með okkur og
heQa það erfiða verk að endurreisa Island úr rústum frjálshyggjunn-
ar,“ sagði Ólafúr Ragnar Grímsson í lok ræðu sinnar eftir fimm
klukkustunda fúnd miðstjórnar Alþýðubandalagsins þar sem sam-
þykkt var að ganga inn í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar með
64 atkvæðum gegn 23.
„Þetta hafa verið erfiðar ákvarð-
anir og við höfum orðið að vega og
meta. Annars vegar náðum við ekki
fram kröfum okkar um fullan samn-
irigsrétt og að kjarasamningarnir
færu í gildi og hins vegar er nauð-
syn á því að endurreisa atvinnulífið
í landinu, tryggja réttinn til vinnu
um allt land, tryggja réttinn til bú-
setu og ýmis önnur grundvallar-
mannréttindi hér á íslandi."
— Hver er helstu málefnin sem
Alþýðubandalagið telur sig ná fram
í þessu stjómarsamstarfi?
„Meginmálið er að þessi ríkis-
stjóm felur í sér algjöra stefnubreyt-
ingn. { stað stað þeirrar hörðu fijáls-
hyggju, sem Sjálfstæðisflokkurinn
hefur gert að leiðarljósi í tæpan ára-
tug koma nú sjónarmið félagshyggju
og jafnréttis. Flestir málaflokkar í
málefnasamningi ríkisstjómarinnar
endurspegla þessi sjónarmið. Stað-
reyndin er sú að síðasta ríkisstjóm
og drottnun fijálshyggjunnar í efna-
hagslífinu í tæpan áratug skilar nú
atvinnulífi heilla landshluta í rúst.
Það verður hið erfiða verkefni þess-
arar ríkisstjórnar að endurreisa at-
vinnulífið og skapa skilyrði til þess
að það náíst einhveijir áfangar í átt
að samfélagi jafnréttis og aukins
lýðræðis í þessu landi.“
— Hefur náðst samkomulag um
álmálið eða var því sópað undir teppi
með því að fella niður ákvæði um
neitunarvald í stjómarsáttmálanum?
„Því hefur alls ekki verið sópað
undir teppið. Við ræddum það ítar-
lega í dag og niðurstaðan í því máli
er alveg skýr. Ég vænti þess að hún
muni koma fram sama daginn og
ríkisstjómin er mynduð.“
myndað meirihlutastjórn Fram-
sóknarflokks, Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags með þátttöku
Samtaka um jafiirétti og félags-
hyggj»-
Steingrímur kvað meirihluta
væntanlegrar stjómar vera nægan
til að veija hana vantrausti og fá
samþykkt fjárlög og lánsfjárlög, en
hins vegar hefði stjómin ekki trygg-
an meirihluta í neðri deild og yrði
því að reiða sig á óvissan stuðning
þingmanna til að ná fram málum
þar. „En það þarf að semja um
málin til dæmis í neðri deild og
raunar held ég að það sé afar heil-
brigt að stjóm ræði við stjórnarand-
stöðu til að ná samstöðu um mál
og við höfum gert of lítið af því,“
sagði Steingrímur þegar hann kom
af fundi forseta í gær.
Að sögn Steingríms em öll
ágreiningsefni leyst, sem áður
strandaði á í stjómarmyndunarvið-
ræðum þessara flokka. Um nýtt
álver sagði hann: „Það er leyst líka.
Samkomulagið er um það í fyrsta
lagi, sem allir vita, að þessi athugun
fer nú fram og afstaða verður tekin
til málsins sem slíks þegar niður-
staða liggur fyrir, þannig að það
er ekki tímabært að taka afstöðu
til þess núna. Það liggur náttúm-
lega ljóst fyrir að stjómarfmmvörp,
hvort sem þau em um þetta eða
annað, þau verða ekki flutt nema
allir sem að ríkisstjórninni standa
samþykki þau.“
Steingrímur var spurður um
hvort hann bæri ekki kvíðboga fyr-
ir því, að hafa ekki tryggan meiri-
hluta Alþingis að báki stjóminni í
báðum deildum þingsins. „Það hef-
ur verið venja hér að hafa það í
hendi, en ég sagði áðan að ég tel
að mörgu leyti ekkert síður lýðræð-
islegt að ræða um mál sem deilum
valda við stjómarandstöðu og það
verður gert.“
„Ég fagna því að sjálfsögðu að
þessi stjómarmyndun hefur tekist
og ég vona svo sannarlega að þetta
verði árangursríkt stjórnarsam-
starf,“ sagði Birgir Árnason við
Morgunblaðið. „Á þingi SUJ fyrir
rúmri viku var samþykkt eindregin
ályktun þess efnis að samstarfið við
Sjálfstæðisflokkinn hefði mistekist
og lítil von væri til þess að hann
yrði samstarfshæfur um langa hríð.
Leið Alþýðuflokksins til frekari
áhrifa í þjóðmálum hlyti því að fel-
ast í samstarfi við önnur félag-
hyggjuöfl í landinu. Þessi orð standa
óhögguð.
Það er þó ljóst að Alþýðubanda-
lagið kom ekki mjög samhent til
stjórnarmyndunarviðræðnanna. Ég
veit ekki hvað það boðar fyrir sam-
starfið í ríkisstjórninni en ég tel það
ákaflega biýnt fyrir framtíð jafnað-
armannahreyfingar á íslandi að
þetta samstarf verði gott og sér-
staklega að ríkisstjóminni farist
stjórn efnahagsmála vel úr hendi,“
sagði Birgir Árnason.
Stefán Valgeirsson aðili að nýju ríkisstjórninni:
Valdi formennsku í sjóðnum
fram yfir ráðherraembætti
STEFÁN Valgeirsson tilkynnti í
gær að Samtök jafiiréttis og fé-
lagshyggju hefðu tekið for-
mennsku í nýjum sjóð, Trygginga-
sjóði atvinnuveganna, fram yfir
embætti samgönguráðherra í nýju
ríkisstjórninni, en ráðherraemb-
ættið hefði verið háð því skilyrði
að Stefán segði af sér formennsku
í bankaráði Búnaðarbankans,
Stofiilánadeild landbúnaðarins og
stjómarsetu í Byggðasjóði. Stefán
segpr að nýi sjóðurinn fái 4-5 miHj-
arða á næstu tveimur árum til
ráðstöfúnar. Talið er að Gunnar
Hilmarsson sveitarstjóri á Raufar-
höfii verði formaður sjóðsins.
Stefán Valgeirsson sagði á frétta-
mannafundi í gær að samtökin hefðu
gert kröfu til þess að fá samgöngu-
ráðuneytið ef þau ættu að vera aðili
að ríkisstjóminni. í gærmorgun
hefði Steingrímur Hermannson kom-
ið til sín og tilkynnt sér að Stefán
Laun \ega, meira
í lánskjaravísitölu
SAMKOMULAG er um það, með-
al væntanlegra stjórnarflokka,
að breyta grundvelli lánskjarav-
ísitölunnar, þannig að laun vegi
mun þyngra en nú er. Steingrím-
ur Hermannsson segir að láns-
kjaravísitalan muni léttast gífúr-
lega meðan laun eru fryst.
Seðlabankinn mun fá heimild til
að auglýsa nýjan vísitölugrundvöll
þannig að vísitala launa hafi helm-
ingsvægi á móti framfærsluvísitölu
og byggingarvísitölu sem hafi
fjórðung hver.
Steingrímur Hermannsson sagði
við Morgunblaðið í gær að einnig
væri samkomulag um að láns-
kjaravísitalan verði afnumin þegar
jafnvægi er komið á efnahagsmál-
in. Hann sagði að ekki væri ákveð-
in viðmiðun í því efni, en hann
hefði sjálfur verið þeirrar skoðunar
að það ætti að gerast þegar verð-
bólga væri komin niður fyrir 10%.
yrði að láta af öðrum störfum ef
hann tæki við ráðherraembætti en
að öðrum kosti stæði til boða for-
mennska í sjóðnum nýja.
„Ég stóð frammi fyrir því að þurfa
velja um hvort ég vildi ráðherrastól-
inn eða hvort ég vildi heldur nýta
þá aðstöðu sem ég er að tala um.
Minn metnaður er í því fólginn er í
að reyna að gera gagn, fyrst og
fremst landsbyggðinni, og lands-
byggðin og atvinnulífið í landinu er
flakandi eftir þá ríkisstjórn sem sat
að völdum. Ég tel mig því geta gert
meira gagn með því að hafa þessa
aðstöðu heldur en að stitja í ráð-
herrastól með takmarkaða mögu-
leika til framkvæmda eins og nú
horfir,“ sagði Stefán.
Hann bætti því við að hann fengi
að skipa menn í nefndir til að fjalla
um og undirbúa frumvörp og til að
geta fylgst með þeirri vinnu sem
unnin er í ríkisstjórninni.
Siðlaus vinnubrögð
við sljórnarmyndun
- segir Albert Guðmundsson
„VINNUBROGÐIN við þessar
stjórnarmyndunartilraunir hafa
verið fiirðuleg og raunar siðlaus
því þeir hafa verið að elta uppi
þingmenn Borgaraflokksins til
þess að fá þá til að svíkja sinn
flokk,“ sagði Albert Guðmunds-
son formaður Borgaraflokksins
við Morgunblaðið.
Albert sagði að þeir sem aðild
áttu að stjómarmynduninni hefðu
gert ítrekaðar tilraunir til þess að
komast hjá að tala við hann beint.
Rætt hefði verið beint við þingmenn-
ina og stjórn þingflokksins. „Ég hef
aldrei vitað um jafn furðulegar og
siðlausar aðferðir í svona málum,“
sagði Albert.
Hann sagðist í gær hafa rætt við
alla þingmenn Borgaraflokksins og
enginn þeirra ætlaði að ganga til
liðs við nýju ríkisstjómina. „Ég veit
ekki til þess að neinn þingmaður
Borgaraflokksins láti hafa sig í lið-
hlaup,“ sagði Albert Guðmundsson.
Bráðabirgðalög
gefin út í dag
FYRSTU aðgerðir nýrrar ríkis-
stjórnar eru væntanlegar síðdegis
í dag, að sögn Steingríms Her-
mannssonar.
Þá verða gefin út bráðabirgða-
lög, sem m.a. kveða á um að laun
verði fryst til 15. febrúar. Lögin
niunu einnig innihalda ákvæði um
sérstakar aðgerðir til að bæta af-
koinu útflutningsatvinnuveganna
í samræmi við samkomulag Fram-
sóknarflokks og Alþýðuflokks frá
í síðustu viku.
Þá mun fylga lögunum yfirlýs-
ing um efnahagsmál sem m.a. fel-
ur í sér að raunvextir lækki uir
3%.