Morgunblaðið - 31.01.1992, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1992
21
Sjálfstæðisféiag Kópavogs:
Jón Kristinn
Snæhólm kjör-
inn formaður
JON Kristinn Snæhólm, sagn-
fræðinemi, var kjörinn formaður
Sjálfstæðisfélags Kópavogs á ný-
legum aðalfundi félagsins. Jón
Kristinn hefur verið virkur í starfi
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
um árabil og er m.a. varafulltrúi
flokksins í bæjarstjórn.
Auk Jóns Kristins voru kjörin í
stjórn þau Sverrir Matthíasson, vara-
formaður, Birgir Ómar Haraldsson,
ritari, Sigurrós Þorgrímsdóttir, gjald-
keri, Jón Guðmann Pétursson, Óli
B. Lúthersson, Guðrún Stella Gissur-
ardóttir, Guðni Níels Aðalsteinsson
og Jón Halldórsson.
Reglur um flugrekstrarleyfi:
Íslendíngar hafa reynt
að fara meðalveginn
-segir Pétur Einarsson flugmálastjóri
Jón Kristinn Snæhólm
íþróttamiðstöð í Grafarvogi:
Hagvirki bauð 55,2
milljónir króna í
þak og klæðningu
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að taka tilboði Hagvirkis hf. í
tvö verk við Iþróttamiðstöðina í
Grafarvogi. Óskað var eftir til-
boðum í þak hússins og utanhús-
klæðningu ásamt gluggum og
gleri. Hagvirki hf. bauð
32.050.245 milljónir króna, sem
er 90,94% af kostnaðaráætlun í
þakið og var það þriðja lægsta
boð og 23.163.756 milljónir
króna sem er 104,1% af kostnað-
aráætlun í utanhúsklæðningu en
það var lægsta boð.
Fimm önnur fyrirtæki buðu í þak
íþróttamiðstöðvarinnar og átti
Fagtún hf. lægsta boð, tæpar 27
millj. eða 76,48% af kostnaðaráætl-
un, Sveinbjörn Sigurðsson bauð
rúmlega 30,7 millj. eða 87,39% af
kostnaðaráætlun og þriðja lægsta
boð átti Hagvirki hf. Istak hf. bauð
rúmar 41 millj. eða 116,72% af
kostnaðaráætlun, Örn Úlfar Andr-
ésson bauð 52 millj. eða 147,56%
af kostnaðaráætlun og Sigurður
K. Eggertsson hf. bauð rúmar 60,7
millj. eða 172,35% af kostnaðar-
áætlun.
Auk Hagvirkis hf. buðu þijú
önnur fyrirtæki í frágang á glugg-
um, gler og utanhússklæðningu.
Næst lægsta boð átti Sveinbjörn
Sigurðsson hf., sem bauð rúmlega
26,1 millj. eða 117,63% af kostn-
aðaráætlun, þá S.R. Sigurðsson,
Járnsm.-Verktak, sem bauð 26,5
millj. eða 119,50% af kostnaðar-
áætlun og loks Örn Andrésson, sem
bauð 27,5 millj. eða 123,68% af
kostnaðaráætlun.
PETUR Einarsson, flugmálastjóri,
segir að það sé rétt að það séu
engar samræmdar reglur til innan
Evrópurbandalagsins um flug-
rekstrarleyfi eins og sagt er frá
í frétt í Morgunblaðinu, en hins
vegar liggi fyrir drög að slikum
reglum sem ef til vill eigi eftir að
taka breytingum. Ýmsar þjóðir
væru með injög harðar reglur í
þessum efnum en Islendingar
hefðu þrætt meðalhófið og stydd-
ust við reglur sem væru nvjög svip-
aðar þeim reglum sem hafi verið
lagðar fram innan EB. Halldór
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Atlantsflugs, sagðist hafa bent á
að þær kröfur sem gerðar væru
hér á landi við veitingu slíkra
leyfa giltu almennt ekki í öðrum
Evrópulöndum.
Halldór sagði að þær tillögur sem
nú liggja fyrir innan EB og eru hluti
af svokölluðum „þriðja pakka“ í flug-
málalöggjöf sem framkvæmdastjórn
EB hefut' lagt fram gerðu ráð fyrir
að settar yrðu fjárhagslegar kröfur
gagnvart flugrekendum. Hins vegar
væru sett önnur skilyrði gagnvart
þeim sem sækja um flugrekstrarleyfi
í fyrsta sinn en við endurnýjun flug-
rekstrarleyfa. „Þessar kröfur hafa
verið gagniýndar fyrir að vera of
strangar. Ég skil því ekki af hveiju
allt í einu eru settar fram þröngar
kröfur hér á landi sem stórþjóðirnar
í kringum okkur treysta sér ekki til
að gera,“ sagði hann.
Pétur sagði að margar þjóðir Evr-
ópu væru með mjög harðar reglur í
þessum efnum, til dæmis Svíþjóð og
Bretland, jafnframt því sem Banda-
ríkjamenn væru með mjög þróaðar
reglur um þessi efni. Þessar reglur
væru yfirleitt ekki gefnar út opinber-
lega heldur samþykktar sem vinnu-
reglur innan flugmálastjórnanna,
það er sá hluti þeirra sem snýr að
fjárhagslegri getu umsækjenda.
Sagði hann að íslendingar hefðu
þrætt meðalhófið í þessum efnum
og þær regiur sem við styddumst við
væru mjög svipaðar þeim sem lagðar
hefðu verið fram hjá Evrópubanda-
laginu. Reglur EB væru kannski
heldur strangari en okkar þar sem
þær gerði ráð fyrir sífelldri endur-
skoðun flugrekstrarleyfa, en hér
væri einungis gert ráð fyrir eftirliti
við frumútgáfu leyfis eða endurnýjun
þess.
Esjan og Heklan heita
nú Kistufell og Búrfell
NAFNABREYTING hefur nú
farið fram á Esjunni og Hekl-
unni, sem áður voru í eign Ríkis-
skipa. Við yfirtöku Samskipa á
skipunum ber Esjan nú nafnið
Kistufell, en Heklan nafnið Búr-
fell.
Allt eru þetta fjallanöfn. Víða
um land eru fjöll, sem bera nafnið
Kistufell og mjög mörg fjöll bera
nafnið Búrfell. Munu þau skipta
nokkrum tugum.
Áhöfn Kistufells er 10 manns,
skipstjóri Jón Arnórsson. Skipið fer
væntanlega á Austfjarðahafnir á
morgun, laugardag. Áhöfn Búrfells
er einnig 10 manns, skipstjóri Jón
Ingólfsson, og fer Búrfellið sína
fyrstu ferð á vegum Samskipa á
þriðjudag, hringferð vestur um
land. Þriðja strandferðaskipið er svo
Arnarfell, áhöfn 11 manns, skip-
stjóri Kristinn Aadnegaard. Það
hefur verið í strandferðasiglingum
um árabil.
Borgarráð:
5,7 milljómr til land-
kynningar í Japan
BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu ferðamálanefndar Reykjavík-
urborgar um að borgin taki þátt í Islandskynningu í Japan.
Kynningarátakið stendur fram til 31. mars 1994 og mun markaðs-
skrifstofa í Japan sjá um allar framkvæmdir. Að sögn Ólafs Jónss-
onar upplýsingafulltrúa Reykjavíkurborgar, er gert ráð fyrir að
lilutur borgarinnar í kostnaði vegna átaksins verði 2 milljónir á
þessu ári, 3 milljónir árið 1993 og 700 þús. árið 1994.
Að tillögu ferðamálanefndar hef-
ur borgarráð samþykkt samstarfs-
samning, sem gerðut' hefur verið
milli ferðamálanefndar Reykjavík-
urborgar, Ferðamálaráðs íslands,
Félags íslenskra ferðaskrifstofa,
Flugleiða og Sambands veitinga-
og gistihúsa um landkynningu í
Japan. Samningurinn gerir ráð fyr-
ir að Ferðamálanefnd Reykjavíkur
og Ferðamálaráð skipti með sér
föstum skrifstofukostnaði vegna
átaksins en Samband veitinga- og
gistihúsa, Félag íslenskra ferða-
skrifstofa og Flugleiðir greiði 2%
af tekjum fyrirtækjanna af sölu á
Japansmarkaði. Verður það fé nýtt
til að kynna fyrirtækin og til út-
gáfu á bæklingum.
„Island hefur fengið góða kynn-
ingu í Japan með heimsóknum Vig-
dísar Finnbogadóttur forseta þang-
að á undanförnum árum,“ sagði
ólafur. „Og það er talið að Japans-
markaður sé einn áhugaverðasti
ferðamannamarkaður í heimi. Jap-
anir ferðast mikið og eyða töluverð-
um peningum á sínum ferðalögum."
Jón Sigurðsson tón-
listammður látínn
JÓN Sigurðsson fyrrverandi
bankamaður lést á Borgarspítal-
anuni í fyrradag eftir stutta en
erfiða sjúkdómslegu, 66 ára að
aldri. Hann var kunnur tónlistar-
maður og höfundur dægurlaga-
texta.
Jón var fæddur á Brúnum undir
Eyjafjöllum 13. júlí 1925, sonur
hjónanna Bjargar Jónsdóttur og
Sigurðar Vigfússonar kennara,
bónda og organista. Hann fluttist
að Ásólfsskála í sömu sveit og ólst
þar upp. Ungur fór Jón til Reykja-
víkur og gerðist fljótlega starfsmað-
ur Búnaðarbankans þar sem hann
vann þar til fyrir fjórum árum.
Hann var um tíma útibússtjóri í
Seljaútibúi Búnaðarbankans í
Mjódd.
Jón var kunnur tónlistarmaður.
Hann lék í áratugi á harmoníku í
danshljómsveitum, lengst af með
eigin hljómsveit. Jón var mikilvirkur
textahöfundur og á um 300 dægur-
lagatexta á hljómplötum. Einnig
samdi hann allmörg dægurlög sem
náðu vinsældum.
Eftirlifandi eiginkona Jóns er
Jón Sigurðsson.
Helga Helgadóttir frá Kálfafelli í
Fljótshverfi í Vestur-Skaftafells-
sýslu. Þau bjuggu síðastliðinn ald-
arfjórðung í Kópavogi. Jón og
Helga eignuðust fjögur börn.
KJUKUNGAR
ÁK0STAB0ÐI
Fjölskyldupakki fyrir 5.
10 kjúklingabitar, franskar, sósa og salat. Verð 2000 kr.
Athugib abeins 400 kr. á mann.
Fjölskyldupakki fyHr 3.
6 kjúklingabitar, franskar, sósa og salat. Verð 1300 kr.
Pakki fyrir 1.
2 kjúklingabitar, franskar, sósa og salat. Verð 490 kr.
Þú getur bæbi tekib matinn meb þér heim
eba borbab hann á stabnum.
Simi 29117
Hraórétta veitingastaóur
• hjarta borgarinnar
Sími 16480