Morgunblaðið - 31.01.1992, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1992
31
Um 248 tonn af
fatnaði söfnuðust
Morgunblaðið/Sigui-ður Jónsson
Hafsteinn Stefánsson tekur fyrstu skóflustunguna að þjónustuíbúðum.
Selfoss:
Framkvæmdir við byggingu
þjónustuíbúða fyrir aldraða
Selfossi.
FYRSTA skóflustunga að þjónustuíbúðum fyrir aidraða við Grænu-
mörk á Selfossi var tekin laugardaginn 11. janúar. Jarðvinna hefur
verið boðin út og var lægsta tilboð í hana frá Árvélum, um 60%
af kostnaðaráætlun. Um stórbyggingu er að ræða, með 24 íbúðum
og þjónusturými.
Útboð fyrir fullbúið hús og lóð
voru auglýst 12. janúar og verða
opnuð 18. febrúar. Gert er ráð fyr-
ir verklokum 15. apríl 1994. Fyrstu
skóflustunguna að hinu nýja húsi
tók fulltrúi Alþýðusambands Suð-
urlands, Hafsteinn Stefánsson, og
í kjölfar þeirrar athafnar hófust
framkvæmdir.
Bygging þjónustuíbúðanna er
sameiginlegt verkefni bæjarstjórn-
ar Selfoss og Alþýðusambands
Suðurlands.
Þessi nýja bygging leysir úr
brýnni þörf og skapar auk þess
félagsstarfi aldraðra góða aðstöðu
í þjónusturýminu á fyrstu hæð,
ásamt því að gera mögulegt að
bjóða upp á dagvist fyrir aldraða,
þá sem heilbrigðir eru og þá sem
eru að einhveiju leyti rúmfastir.
Sjúkrahús Suðurlands er í næsta
nágrenni sem auðveldar allt sam-
starf og samskipti.
Húsnæðisstofnun ríkisins fjár-
magnar 12 íbúðir samkvæmt fé-
lagslegu kaupleiguíbúðakerfi og 12
samkvæmt almennu kaupleigu-
íbúðakerfi. Auk þess mun stofnun-
in lána hluta af kostnaði við bygg-
ingu dagvistarhluta þjónusturýmis.
Framkvæmdasjóður aldraðra mun-
styrkja hluta af kostnaði við bygg-
ingu dagvistarrýmisins en Selfoss-
kaupstaður leggur fram fjármagn
til byggingar dagvistar- og þjón-
ustuhlutans, allt að 100 milljónir
króna. Kaupstaðurinn mun einnig
ábyrgjast 10% af kostnaði við
byggingu 12 íbúða og Byggingafé-
lag Alþýðusambands Suðurlands
ábyrgist 10% af kostnaði við aðrar
12 íbúðir.
Hinni nýju byggingu hafa þegar
borist gjafir til kaupa á búnaði til
hins nýja húss. Það var Þórhallur
Guðnason sem gaf eina milljón
króna í október á síðastliðnu ári.
Gjöfin verður ávöxtuð og notuð
1994. Sig. Jóns.
Tveir af aðalleikurum myndar-
innar í hlutverkum sínum.
Bíóborgin
sýnir kvik-
myndina
„Svikráð“
BÍÓBORGIN hefur hafið sýning-
ar á myndinni „Svikráð". Með
aðalhlutverk fara Goldie Hawn
og John Heard. Leikstjóri er
Damian Harris.
Myndin segir frá Adrienne
Saunders sem gift hefur verið í 6
ár. Hún heldur að samband hennar
geti ekki verið betra. Hún á elsku-
legan eiginmann, yndislega dóttur
og er í góðu starfi. En hræðilegt
slys þar sem maður hennar iætur
lífið breytir hennar högum svo um
munar. Ýmislegt dularfullt kemur
nú fram og í ljós kemur að ekki
var allt eins og sýndist og maður
hennar ekki sá sem hann sagðist
vera.
Nýtrúarhreyfing-
ar á okkar tímum
ÞRJÁTÍU og einn 40 feta Iangur gámur söfnuðust í fatasöfnun
Hjálparstofnunar kirkjunnar og Slysavarnafélagsins fyrir Kúrda.
Gámarnir eru nú á Ieið frá íslandi til Danmerkur en þaðan verður
þeim ekið til Tyrklands og inn í norðurhluta íraks. Tveir gámar
voru sendir flugleiðis fyrir mánaðarmótin og verður farið að dreifa
fatnaðinum fyrsta dagana í febrúar.
Endurmenntunarstofnun Há-
skóla Islands í samvinnu við
Fræðslu- og þjónustudeild kirkj-
unnar efnir til námskeiðs um
nýtrúarhreyfingar á okkar tím-
um — félagslegar og guðfræði-
legar forsendur með sérstakri
áherslu á ísland, segir í frétt frá
Fræðslu- og þjónustudeild kirkj-
unnar.
Fjallað verður um ýmsar hug-
myndir nýtrúarhreyfinga út frá
guðfræðilegum forsendum og einn-
ig um hlutverk þeirra. Gefið verður
yfirlit yfir efnahagslegar og félags-
legar forsendur þessara hreyfinga,
einkum hér á landi, og fjallað um
afstöðu þeirra til nútímaþjóðfélags,
afhelgunar og ríkjandi kirkju.
Leiðbeinendur verða: Dr. Pétur
Pétursson dósent, umsjónarmaður
námskeiðsins, en auk hans flytja
fyrirlestra dr. Björn Björnsson pró-
fessor, Dagur Þorleifsson trúar-
bragðasagnfræðingur, dr. Einar
Sigurbjörnsson prófessor og dr.
Erlendur Haraldsson prófessor.
Námskeiðið verður haldið í
Tæknigarði, Dunhaga 5, á fimmtu-
dögum 6. febrúar til 9. apríl (10
skipti) kl. 20-22.
Alls söfnuðust 248 tonn.af fatn-
aði og hefur aldrei farið fram önn-
ur eins fatasöfnun hérlendis. For-
ráðamenn Hjálparstofnunar kirkj-
unnar leituðu liðsinnis Slysavarna-
félags íslands þar sem ljóst var
að verkefnið yrði umfangsmeira
en fámennt starfslið Hjálparstofn-
unar fengi við ráðið. í raun renndu
Guðríður Jóhannesdóttir
Nýr fram-
kvæmdastjóri Is-
lensku óperunnar
GUÐRÍÐUR Jóhannesdóttir hefur
verið ráðin nýr framkvæmdastjóri
Islensku ópcrunnar í stað Jóns
Gunnars Björnssonar. Hún lauk
prófi frá Lagadeild Háskóla Is-
lands vorið 1980 og eins og hálfs
árs rekstrar- og viðskiptanámi á
vegum Endurmenntunarnefndar
Háskólans vorið 1991.
Að loknu lögfræðiprófi starfaði
Guðríður m.a. um þriggja ára skeið
í Ríkisbókhaldi við tölvuvæðingu
sýslumanna- og bæjarfógetaemb-
ætta og síðast alls fimm ár í Tölvu-
deild Kristjáns Ó. Skagfjörð. Síðasta
eina og hálfa árið hefur hún starfað
í Innheimtu- og matsdeild Fjárfest-
ingafélags íslands.
í íslensku óperunni er nú unnið
við æfingar á Otello eftir Verdi og
verður frumsýning 9. febrúar.
menn blint í sjóinn með undirtekt-
ir, bjuggpst kannsi við þrem eða
fjórum gámum. Undirtektir lands-
manna urðu liins vegar margfalt
meiri eða 31 gámur alls. Söfnunin
sjálf tók aðeins þrjá daga og síðan
tók um viku að pakka og ganga
frá fatnaðinum í gáma.
Kostnaður við söfnunarátakið
er kringum þijár milijónir króna
þrátt fyrir að margir hafi gefið
vinnu og veitt afslátt. Sótt hefur
verið um framlag frá Ríkissjóði.
Stærstu kostnaðarliðirnir eru
flutningur og umbúðir. Samskip
og Eimskipafélag íslands lána
gáma og flytja þá endurgjaldslaust
til Kaupmannahafnar. Kostnaður
við flutning frá Danmörku til
Kúrdistan verður yfir 9 milljónir
króna sem Kjálparstofnun dönsku
þjóðkirkjunnar greiðir með styrk
frá danska ríkinu.
Fyrirlest-
ur um fast-
eignavið-
skipti
á Florida
FYRIRTÆKIN Húsakaup og
McLean Investment Inc. í Or-
lando í Bandaríkjunum standa
fyrir kynningu á sölu fast-
eigna í Florida laugardaginn
1. febrúar. Kynningarfundur-
inn er á Hótel Loftleiðum,
klukkan 13 í fundarsal Nes.
McLean Investments hefur
að baki 18 ára reynslu í fast-
eignaviðskiptum á þessu svæði,
segir í frétt, sem Morgunblaðinu
hefur borizt. Forstjóri fyrirtæk-
isins Murphy McLean kemur til
landsins og verður sunnudaginn
2. febrúar til viðtals í húsakynn-
um Húsakaupa í Borgartúni 29.
Höfóar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
UTSALA
»hunm*l^?
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40, sími 813555
Opid laugardag
frá kl. 10-16
20-50% afsláttur
Dæmi um verð:
Áóur kr. Nú kr.
Barnaúlpa 6.490,- 3.990,-
Fulloröinsúlpa 8.990,- 5.990,-
íþróttagallar 6.990,- 3.990,-
Rúskinnsskór 32-46 4.490,- 2.990,-
Tvískiptir skíóagallar barna 9.290,- 4.990,-
Samfestingar LUTHA 24.900,- 17.900,-