Morgunblaðið - 31.01.1992, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1992
0 SINFONIUHUOMSVEITIN 622255
• VÍNARTÓNLEIKAR
- GRÆN ÁSKRIFTARRÖÐ
í Háskólabíói í kvðld kl. 20
og laugardaginn 1. febrúar kl. 17.
Hljómsveitarstjóri: Siegfried Köhler
Einsöngvari: Claudia Dallinger
LEIKFEL. HAFNARFJARÐAR 50184
BLOÐ HINNAR SVELTANDISTETTAR
eftir Sam Shepard
Sýn í kvöld kl. 20.30. Sýn. fös. 31. jan. kl. 20.30. Sýn.
sun. 2. feb. kl. 20.30.
Sýnt er í Holinu, Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði.
Dorg- og stang-
veiði í Hvammsvík
ÞRÁTT fyrir að vetur eigi að heita, er hægt að stunda
dorg eða stangaveiði á þessum árstima. Allar helgar í
vetur verður opið í Hvammsvík í Kjós fyrir veiðimenn á
öllum aldri.
Haldnar verða tvær dorg-
veiðikeppnir í vetur, sú fyrri
verður helgina 15. og 16.
febrúar en sú seinni verður
7. og 8. mars. Keppt verður
um glæsileg verðlaun og veitt
verða verðlaun fyrir stærsta
fiskinn. I vatninu eru 14-16
punda laxar og regnbogasil-
ungar. Núna eru um 11 þús-
und fískar í vatninu. Það
hefur verið góð aðsókn í
Hvammsvík síðustu helgar,
enda veður mjög gott. Allar
upplýsingar um veiði og
veiðihorfur er í veiðihúsinu í
Hvammsvík.
(Frcttatilkynning)
Styttist í þrjú verk hjá
Leikfélagi Reykjavíkur
œisÆicD.UMMiaoQSfo 2?®
ath! engii(n) inn ái persówmkilríkis iteð myid.
HJÁ Leikfélagi Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu hverfa
þijú verk brátt af fjölunum eftir ágæta aðsókn frá haust-
mánuðum, tvö af Litla sviðinu og eitt af Stóra sviðinu
og önnur koma á svið í þeirra stað í febrúar.
Þétting eftir Sveinbjörn I.
Baldvinsson hefur verið leik-
in flörtíu sinnum frá því í
september við góðar viðtökur
áhorfenda og er síðasta sýn-
ing fyrirhuguð þann 1. fe-
brúar.
Bamasýning Leikfélags-
ins á þessum vetri, Ævintýr-
ið, hefur verið sýnd nærri
sextíu sinnum og eru síðustu
sýningar sunnudaginn 2. fe-
brúar.
Ljón í síðbuxum eftir
Björn Th. Björnsson var
frumsýnt í október og verður
þrítugasta sýningin á þessu
verki, 1. febrúar en sýning-
um fer að fækka.
Æfíngar standa nú yfír á
Þrúgum reiðinnar eftir John
Steinbeck í leikgerð Frank
Galati en fmmsýning á þessu
viðamikla verki er áætluð í
lok febrúar. Það er Kjartan
Ragnarsson sem leikstýrir
nú í fyrsta sinn á Stóra svið-
inu en mikill fjöldi leikara
kemur fram í þessari við-
mestu sýningu vetrarins á
Qölum Borgarleikhússins, að
því er fram kemur í fréttatil-
kynningu.
-------■■♦----------
■ Á PÚLSINUM föstu-
dags- og laugardagskvöld
31. og 1. febrúar leikur
KK-Band og verður þetta
2. KK-helgi ársins. KK er
um þessar myndir með mörg
járn í eldinum en m.a. er
hann að vinna tónlist við
leikverkið Þrúgur reiðinnar
eftir Steinbeck sem væntan-
lega verður frumsýnt í Borg-
arleikhúsinu í febrúar. KK-
Band mætir fullskipað til
leiks þessa helgi en auk KK
skipa sveitina Ellen Kristj-
ánsdóttir, söngkona, Eyþór
Gunnarsson, hljómborðs-
leikari, Ásgeir Óskarsson,
trommuleikari og Þorleifur
Guðjónsson, bassaleikari.
I veröld
gyðinga
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Morðdeildin
(„Homicide"). Sýnd í
Regnboganum. Leik-
stjórn og handrit: David
Mamet. Aðalhlutverk: Joe
Mantegna, William H.
Macy, Natalija Nigulich,
Ving Rhames.
I nýjustu mynd sinni,
Morðdeildin, heldur leikrita-
skáldið og leikstjórinn
David Mamet áfram að gera
litlar, persónulegar sögur
sem leggja áherslu á hið
smáa mannlega og sál-
arstríð persóna. Hann legg-
ur áherslu á að skapa við-
eigandi andrúmsloft í kring-
um þær frekar en hasar og
læti og hann er einkar lunk-
inn í því og hann velur sér
góða leikara til samstarfs,
sem ekki bregðast honum.
Morðdeildin er um gyð-
ingalöggu sem vaknar til
vitundar um stöðu sína sem
gyðings í samfélagi þar sem
gyðingahatur og kynþátta-
hatur almennt er mjög ríkt
í fólki. Uppáhaldsleikari
Mamets, Joe Mantegna, fer
með hlutverk gyðingsins,
löggu sem fær það verkefni
að rannsaka morð á
gyðingakonu, kynnist um
leið gyðingasamfélagi og
fínnur köllun og tilfínningu
fyrir samstað í tilverunni
sem hann hefur ekki áður
fundið fyrir. En það brýst
um í honum tryggð við
starfið og tryggð við
herskáa gyðinga þegar í ljós
kemur að þeir vilja að hann
fremji lögbrot fyrir sig.
Texti Mamets minnir á
að hann kemur úr leikhús-
unum, hann er mikill og
sannarlega á talsvert skáld-
legra plani en venjulega
fínnst í löggumyndum. Frá-
sögnin er hæg og það er
þungi yfír myndinni sem
mönnum gæti fundist frá-
hrindandi enda er ekki á
ferðinni þessi venjulega
löggufélagamynd. Það sem
þó reynist helsti dragbítur
Mamets er að efnið sjálft
er fjarlægt og skyndileg
upplifun Mantegna á sjálf-
um sér sem gyðingi og
hvernig hann skynjar eins
og uppúr þurru að hann
verður að taka þátt í alda-
langri baráttu gyðinga
reynist ekki trúverðugt.
Mantegna er stórgóður í
rullunni, yfírlætislaus,
venjulegur launaþræll sem
vinnur sitt verk í friði fyrir
guði og mönnum þar til
morðmál kveikir í honum
meðvitund um stöðu hans.
Hann spilar á láguin nótum
sem henta einkar vel blæ
myndarinnar. Þótt ekki sé
hún neitt stórvirki er Morð-
deildin athyglisverð.
Drep-
skák
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn:
Bakslag - „Ricochet“
Leikstjóri Russell Mulca-
hy. Tónlist Alan Syl-
vestri. Aðalleikendur
Denzel Washington, John
Lithgow, Ice T, Kevin
Pollak. Bandarísk. Wam-
er Bros. 1991.
Washington leikur hinn
sanna fyrirmyndarnegra.
Glaðbeittur, gáfaður, orð-
heppinn, fyrirmyndar fjöl-
skyldufaðir og valmenni.
Utan að vera glæsimenni,
lagarefur og einkavinur
umkomuleysingja og úti-
gangsbarna. Enda farinn
að hyggja að pólitískum
ferli og forsetastól þegar
hremmingamar hellast yfír
hann af ofurkrafti. Á sínum
flekklausa ferli frá því að
vera ofurlögga uns hann
verður saksóknari með láð
hreppti hann í fangelsi geð-
sjúkt hrakmenni (Lit-
hgow). Sá þraukar af set-
una með því að hatast við
þennan örlagavald sinn og
hraðferð hans upp frama-
brautina. Hyggur á hinar
grimmilegustu hefndir.
Og Lithgow situr ekki
með hendurnar í skauti sér
er honum tekst eftir sjö,
löng ár að bijótast út úr
prísundinni. Upphefjast nú
hinar útsmognustu hefnda-
raðgerir sem enda í tilkomu
mikilli drepskák.
Það má segja að uppfrá
þessum vendipunkti missi
Bakslag þá litlu vitglóru
sem fyrir var og síðari hlut-
inn er ein samfelld rökleysa
og kvalalostafullt ofbeldi.
Hér hnika leikstjóri og
handritshöfundur öllum
vitsmunum til hliðar til að
byggja upp sem mest hat-
ursamband á milli aðalper-
sónanna. Lithgow situr
lengi vel yfir sífellt betri
stöðu en svo kemur auðvit-
að að því að ofurmennið
tekur völdin í hendurnar.
Það húllumhæ er eitt það
fáránlegasta lokauppgjör
sem sést hefur á tjaldinu
um árabil.
Það er því fátt gott að
segja um Bakslag annað
en að spennan er með
ágætum á meðan höfund-
arnir kunna sér læti og
verður myndin sjálfsagt
vinsælt myndbandaefni.
Og tónlist Sylvestri bregst
ekki frekar en fyrri daginn.
Leikararnir taka sig ekki
alvarlega - frekar en sögu-
þráðurinn.
★ ★ ★ Pressan - ★ ★ ★ ★ Bíólínan
★ ★ ★ 1/2 HK DV ★ ★ ★ ★ S.V. Mbl.
„Tvímælalaust ein eftirminnilegasta mynd, sem ég hefj
séð á árinu. Gott handrit og frábair leikur."
Valdís Gunnarsdóttir.
Bókin Bilun í beinni útsendingu facst í bókaverslunum!
Sími 16500
Laugavegi 94
Stórmynd Terrys Gilliam:
w w
og söluturnum.
Sýnd i A-sal kl. 6.45, 9 og 11.30.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5.
BÖRM
Framlag íslands til
Óskarsverðlauna.
SýndíB-sal
kl. 7.20 og 9.
STÓRA SVIÐIÐ:
IKATTHOLTI
eftir Astrid Lindgren
Frumsýning: mið. 5. feb. kl. 20
2. sýn. lau. 8. feb. kl. 14 fá sæti laus.
3. sýn. sun. 9 feb. kl. 14 fá sæti laus.
4. sýn. sun. 10. feb. kl. 17
5. sýn. mið. 12 feb. kl. 17.
Rómeó og Júlía
eftir William Shakespeare
Lau. 1. feb. kl. 20. Fim. 13. feb. kl. 20.
Lau. 8. feb. kl. 20. Fös. 21. feb. kl. 20.
Hii
LnnrmesMt er ao imta
eftir Paul Osborn
Sun. 2. feb. kl. 20. Lau. 22. feb. kl. 20,
Fös. 7. feb. kl. 20. næst síöasta sýn.
Fös. 14. feb. kl. 20.
eftir David Henry Hwang
í kvöld kl. 20. Lau. 15. feb. kl. 20.
Fim. 6. feb. kl. 20. Fim. 20. feb. kl. 20.
LITLA SVIÐIÐ:_______________
KÆRA JELENA
eftir Ljudmilu Razumovskaju
f kvöld kl. 20.30 uppselt.
Uppselt er á allar sýningar út febrúarmánuö.
Ekki er hægt aö hleypa gestum í salinn eftir að sýning hefst.
Miðar á Kæru Jclenu sækist viku fyrir sýningu, elia seldar
öörum.
SMIÐAVERKSTÆÐIÐ:
ÉG HEITI ÍSBJÖRG, ÉG ER UÓN
eftir Vigdísi Grímsdóttur
í kvöld uppselt.
Uppselt er á allar áður auglýstar sýningar út febrúár nema
fös. 28 fcb. og lau. 29. feb.
Aukasýningar: Mið. 5. feb. uppselt, fim. 13. feb., mið. 19.
feb., mið. 26. feb.
Sýningin hefst kl. 20.30 og er ekki viö hæfi barna.
Ekki er unnt að hleypa gcstum í salinn eftir aö sýning hefst.
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 alla daga nema mánudaga og
fram að sýningu sýningardagana. Auk þess er tekið við pöntun-
um í síma frá kl. 10 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta - Græna línan 996160.
Leikhúskjallarinn er opinn öll föstudags- og laugardagskvöld.
Leikhúsveisla; leikhúsmiði og þríréttuð máltíð öll sýningar-
kvöld á stúra sviðinu. Borðapantanir í miðasölu.
Leikhúskjallarinn.