Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1985, Blaðsíða 4
4
DV. MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER1985.
Samúðarverkföll á
röngum forsendum
— segir Magnús Gunnarsson, f ramkvæmdasf jóri VSÍ
• Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambandsins, og
Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins. Þeir
standa i ströngu þessa dagana vegna bónusmálsins.
„Viö lögðum fram hugmyndir í gær
um breytingar á bónusnum. Þaö fóru
fram ákveðnar viöræður um þaö í
morgun,” sagöi Magnús Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambands fslands, skömmu eftir há-
degi í gær aö loknum samningafundi
meö fulltrúum Verkamannasambands
íslands um bónusmál fiskvinnslufólks.
„Menn gera aö uppástungu sinni aö
ákveönar tilraunir séu geröar og
verkalýöshreyfingin ræddi um þaö.
Við stungum upp á aö þaö yröi gert í
tveimur frystihúsum en þeir æsktu
þess að þaö yröi gert á fleiri stööum.
Við höföum viljað leita eftir frekari
jpplýsingum frá okkar mönnum. Viö
þurfum aö ræða þaö betur við þá.
Eg held aö þaö sé of langt mál að
segja nánar í hverju þetta er t'ólgið.
Þetta er svona samtenging á ýmsum
misinunandi þáttum. ”
— Er hægt að meta þaö núna til
ákveðinna kjarabóta i prósentum?
„Þaö er ekki hægt að gera þaö eins
og málin standa í dag. Þaö eru ýmsar
viðmiöunartölur sem menn hafa verið
að ræöa og skoöa og þetta getur haft
mismunandi áhrif eftir því hver niður-
staðan veröur.”
— Hvers vegna lítiö þið á samúðar-
vinnustöövun sem ólöglega?
„Þaö er náttúrlega bara samkvæmt
samningum. Fólki er alveg heimilt aö
segja upp samningum en í reynd er
veriö aö tala um þarna, þar sem menn
eru aö fara í samúöarvinnustöövanir,
aö menn séu aö fara í vinnustöðvun til
þess meðal annars að ná fram eigin
kröfum. Samúðarvinnustöðvanir
byggjast ekki á því. Þaö er þá vinnu-
stöövun sem byggist á röngum for-
sendum.
Meginkjarni þessa máls er sá að viö
horfumst í augu viö mikinn vanda sem
er bæöi vandi fiskvinnslunnar í heiid
sinni og svo aftur fiskvinnslufólksins.
Og þaö hafa allir, sem tengst hafa
þessu, veriö sammála um aö þaö sé
naúðsynlegt aö framkvæma ákveðnar
endurbætur.
Þetta hefur ekki síst snúiö að
atvinnuöryggi og einhverjum nánari
skiigreiningum á því hvaöa fólk geti
talist sérhæft fiskvinnslufólk. Þess
vegna var samþykkt í samningunum í
sumar að menn tækju þessar viöræöur
upp og þær hæfust ekki seinna en 1.
september. Þá var meiningin aö taka
þetta allt fyrir og reyna aö finna leiöir
sem skiluðu fiskvinnslufólkinu ein-
hverjum raunhæfum úrbótum. Þessi
verkföil sem tengjast bónusnum auð-
velda mönnum hins vegar ekki aö
finna lausnir sem svo aftur myndu þá
ekki veröa einhver þáttur í einhvers
konar launasprengingu.”
— Hvaða afleiðingar má ætla aö
bónusverkföll hafi á næstu dögum?
„Eg held aö það sé ekki hægt aö sjá
þaðfyrir.”
— Má búast viö aö togarar veröi
látnir sigla meö aflann til útlanda?
„Því verður hver að reyna aö svara
fyrir sig. Eg veit ekki hvernig þetta
leggst upp. Menn reyna vafalaust aö
mæta þessu meö ýmsum leiöum,
meðal annars meö þvi aö hægja á sókn
togaranna og svo framvegis,” sagði
Magnús Gunnarsson.
-KMU
Krafa um 30 króna álag
óeðlileg í bónusviðræðum
— segir Þórarinn V. Þórarinsson, aðstoðarf ramkvæmdasf jóri VSÍ
• Við erum vægast sagt ákaflega
óhressir með það _ að tveimur
mánuðum eftir að við undirrituðum
samninga við þessa sömu menn
skuli þeir nota bónussamninga sem
yfirskin til þess að knýja á um þessa
kröfu, segir Þórarinn V. Þórarins-
son.
Krafa Verkamannasambands Is-
lands núna, um 30 króna álag á tímann
til handa fiskvinnskufólki, gengur
þvert gegn samkomuiagi sem gert var
um þetta mál fyrr í sumar, að sögn
Þórarins V. Þórarinssonar hjá Vinnu-
veitendasambandi Islands.
„Þaö má greina kröfur Verka-
mannasambandsins í tvo þætti í þessum
bónusviöræðum. Annars vegar í þann
þátt sem snýr að sjálfum bónus-
samningnum, útreikningsforsendum
og kerfisbreytingum. Það eru kröfur
sem eðlilegt er aö ræöa tíú,” sagði
Þórarinn.
„Hins vegar er ein krafa uppi í þess-
um samningaviðræðum sem snýr aö
því að greiða skuli öllum starfsmönn-
um í fiskvinnu 30 krónur á tímann.
Þessari kröfu er gefiö heitiö bónusálag
þó aö hún tengist ekki bónusnum með
nokkrum hætti.
Við teljum aö þessi krafa sé afskap-
lega óeölileg í þessum viöræðum. Viö
minnum á að fyrir lá krafa, þegar við
sömdum 15. júní, um að greiða skyldi
25 krónur á unna klukkustund öllu fisk-
vinnslufólki. Þá samdist svo um aö
þessar kröfur fóru út af borðinu en
jafnframt var samið um aö aöilar settu
á fót nefnd til þess að vinna aö nokkr-
um tilteknum atriðum, aö námskeiö-
um, aö því að skilgreina starfsheiti
sérþjálfaðs fiskvinnslufólks og al-
mennt aö því að finna leiðir til þess aö
bæta hlut fólks, sem hefur gert fisk-
vinnslu aö sínu ævistarfi.
Þessi nefnd átti aö hefja störf 1.
september. Hún hefur þegar hafiö
störf og hún á aö skila áliti fyrir 1. des-
ember.
Viö teljum að þarna hafi oröið um
þaö samkomulag hvernig að þessum
þætti kröfugerðarinnar skyldi unniö,
sem í sumar var 25 krónur sem aftur
núna „dúkkar” upp sem 30 króna
krafa.
Þannig aö viö erum vægast sagt af-
skaplega óhressir með þaö að tveimur
mánuöum eftir aö viö undirrituðum
samninga viö þessa sömu menn, sem
hér eru í forsvari, þá skuii þeir nota
bónussamninga sem yfirskin til þess
aö knýja á um þessa sömu kröfu. Og
þaö þvert á þaö samkomulag sem þeir
Jhöföu áöur gert um meðferö þessa
máls,” sagöi Þórarinn V. Þórarinsson,
aöstoöarframkvæmdastjóri VSl.
-KMU.
Biltnr í ESIidaár
Sá fáheyrði atburöur geröist um
helgina aö ökumaöur ók bíl sínum
út í Elliðaár. Gerðist atburðurinn
skammt frá brúnni viö stífluna
uppi viö EUiðavatn. ökumaöurinn
kvaö ástæðuna vera glæpsamlega
krappa beygju sem oröiö heföi á
vegi ökutækisins. Lögreglan kveðst
á hinn bóginn hafa rökstuddan
grun um aö ökumanninum hcföi
reynst hægara aö beygja ef hann
heföi veriö á örlítiö minni ferö.
-ás.
j dag mælir Pagfari___________ 1 dag mælir Pagfari______________j dag mælir Dagfari
Símaþjónusta ungfrú íslands
f EHíniTMMENT LS/CtíUPLEr•»70 A0ULT EMTEflTAIHfVSEÍiT SINGLES/CöUPLfS •070 AÖliLT EMTtfiTAtNMEN SIUGLES/COUPLES• 87
i f.ii.'íi.jt'A’.icc.r.c You lo PAÖULES f j.-.L.sy Ci.io t'U. s 0 30. Fri 4&il 6 30 íuySncw Thursdaysal 10.00. i ÍiTuj & Punlsh.T.cnt \-wý*r '9-Cldies Dance ave Auclion rofdíng for \>m yl.t SuccoSsJýpHÍs dAVEFJoTLINE js r-xploroA-öf Tekphone :t Tafcoo M2\2-245-0331 Ncouwkas.*- _ Exconlionai WrúStimg encour.tcfs!<flS3 dyljtiildcfs & stfaiulíl encoun* m an answers don t hanoujr ,v.eeting real famalos no iV's thru 4ain 212-807-8661 FANTASY SHÖW /A LIVCLY SCENft E#ury Wed ntundly club aíir.us. frec 0 ilfot. shgi.tiy ci^zy tun night Show info: 212 924*0760. FANTAil£kCOL:milS^.^129gj-0013 Linda Carter , !ook-a-like 9" wih capfcvale your tantasles Xrm^2i2/7S1-6275 OutcaHs also
rffívaTe consultatior.s rhonefanlasrff Won thru Ffl 11am 10prn. 212/929-1749 Oniy sincere, courteous ar.d respectful Indlviduals neod calll
fahtasv L#i 0° Uio Talking 0n8 o! uaapfjL .1 Lk-a Coi'UCU MCIM'.jIA.K' ''416-662-00 JrtlEVJ! PSVCHQDRAMA 8V 5’8. h-jf nóine rs Horx Wmch/tííunette. voluptueous, matuj name is Susan Dutch. youtt.i "5'4. long haix, har name Is Liillan ‘J speak several lann.ianes for appou ment caél 212-242-32n Greenwtch V lage a/ea. Won Sat, lOam-11pm
F0RMER MISS ICELAND Will tall you 8/otlc storles M.'.júf creoit caros
Fulfill Your Fanlasy ^ PRIVATE & COUFlDEHTIA^^i
~ HOT DfiEAMS EROTIC TElEPHONE fantasies Credil Cjids 212-307 1036
C 3ENSU0US RAP h EUROPEAN ACTHESS 43-2106 / 201-664-6668
PLAYMATE3 MtFT Pt.AVfUL FCLKS
Nýlega gróf DV upp auglýsingu í
virtu amerísku blaði þar sem ungfrú
ísland bauð upp á kynlífssamræður í
síma. Samkvæmt fréttum blaösins
hefur stúlkan staðfest að hér sé rétt
með farið og hún hafi unnið til sæmd-
arheitisins í Tívolí-garðinum fyrir
um það bil tuttugu árum. Hún kvað
bisness hjá sér góðan og sagðist
ganga undir nafninu Inga. Aörar
upplýsingar hafa ekki borist eu
menn hafa að undanförnu verið að
rifja upp fegurðardrottningar þess-
ara ára. Þær sem telja sig saklausar
af kynlifssamræðum í síma og enn
eru búscttar á islandi, hafa hugsað
sér að gefa bráölega út yfirlýsingu
um mannorö sitt. Verður spennandi
að fylgjast með því hverjar verða
með og hverjar ekki, enda mun
hringurinn fljótt þrengjast þegar
haft er í huga að viðkomandi fegurð-
ardrottning hefur verið búsett í
Bandaríkjunum allt frá því hún yfir-
gaf Tívolí um árið.
Annars er ástæðulaust að skamm-
ast sín fyrir kynlifssamræður í sima.
Þær eru ekki verri en mörg önnur
simtöl þar sem fólk skiptist á
skömmum og hótunum eöa eyðir
iöngum símskrefum í að segja: það
er nefnilega það.
Og ekki er að efa að íslensk fegurð-
ardrottning hafi frá mörgum æsandi
kynlífssenum að segja ef hún hefur
upplifað samskonar lauslæti og ann-
að venjulegt æskufólk hér á landi.
Viðskipti af þessu tagi eru algeng
vestur í Bandarikjunum og færast í
vöxt eftir að AIDS óttinn greip um
sig. Menn eru þó alténd öruggari í
kynlifi sinu, þegar Iikamleg mök eru
ónauðsynleg. Það er heldur ekki
dónaleg upplifun að komast í tæri við
fegurðardrottningar frá Islandi með
einni simliringingu, jafnvel þótt farið
sé að slá í þær eftir tuttugu ára notk-
um. Ef þetta eru ábatasöm viðskipti er
um leið fundin nokkuð örugg atvinna
fyrir fegurðardrottningar framtiöar-
innar. Þá fyrst fer það að verða eftir-
sóknarvert að hljóta hinn umdeilda
titil og komast út i hinn stóra heim.
Mikils er þvi um vert að ungfrú ís-
land, sem er á línunni fyrir vestan,
standi sig með sóma og bregðist ekki
vonum landa sinna. Þjóðarsómi er
undir, sem og framtiðarheili margra
kynslóða af feguröardrottningum.
Augiýsingin frá Miss Iceland í hinu
virta ameriska blaði hefur enn einu
sinni vakið athygli á þeim hæfiieik-
um sem þessi litla þjóð er gædd. Hún
getur átt erótískar samræður í sím-
anum fyrir vestan og boðið upp á
fyrsta flokks þjónustu út á krítarkort
án þess að viðmælandinn þurfi að
hafa hið minnsta fyrir því. Þetta er
nú þjónusta i lagi. Og það út á eina
litla smáauglýsingu.
Það er líka ekki aö spyrja að DV,
sem ávallt er fyrst með fréttirnar.
Nú heyrir maður á rásinni seiðmagn-
aða auglýsingu frá DV, þar sem kyn-
æsandi kvenrödd óskar eftir kynnum
við karlmann milli tvítugs og fertugs.
Hér er farið að dæmi Miss Iceland og
ekki kæmi manni á óvart, þótt þetta
væri röddin hennar Ingu frá New
York, sem töfrar og tælir. Hún hefur
æfinguna.
Smáauglýsingar geta verið áhrifa-
ríkar eins og sjá má af þessari
skemmtiiegu sögu úr smáauglýs-
ingadálkum í New York Times. Og
enda þótt þar sé boðið upp á þjón-
ustu í gegnum síma, er ekki mikill
munur á þeirri þjónustu og þeirri
sem DV gengst fyrir. Dömurnar sem
auglýsa í DV eftir miðaldra karl-
mönnum eru bara ekki búnar að til-
einka sér framfarirnar. En það kem-
ur. Flestar okkar fegurðardrottning-
ar eru, þrátt fyrir allt, búsettar hér
heima.
Dagfari.