Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1988, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988.
Fréttir_____________________________________________________
Kröfumar í Tívollið nema 150 milljónmn króna: .
Ekkert fæst upp í
130 milljóna kröfur
AUs bárust 130 kröfur í þrotabú
Skemmtigarðsins h/f, eða Tivolí í
Hvergerði, samtals rúmlega 150
milljónir króna. Bústjórinn, William
Th. Möller, segir ljóst vera að ekkert
komi upp i almennar kröfur, sem eru
130 milljónir, og þess vegna komi þær
ekki til álita á skiptafundi. Það bend-
ir því allt til þess að eigendur þeirra
130 milljóna, sem teljast almennar
kröfur, tapi öllum sínum kröfum.
Aöeins átta kröfur, að undanskild-
um vinnulaunum, eru samþykktar í
þrotabúið. Þá ber að geta þess að
ekki er tekið tillit til langflestra
krafnanna þar sem sýnt er að ekkert
fæst upp í þær. Hæstu kröfuna, sem
bústjóri tók ekki tillit til, átti Ólafur
Ragnarsson, hæstaréttarlögmaður
og stjórnarformaður Tívolísins, eða
rúmar 35 miljónir króna. Ólafur
Ragnarsson á aðra kröfu, tæpar þijár
milljónir, sem ekki verður tekið tillit
til. Alls voru 36 kröfur vegna vinnu-
launa. Fjórum þeirra var hafnað en
hinar samþykktar að fullu eða að
hluta.
Tollstjórinn í Reykjavík er stærsti
kröfuhafi, að undanskildum stjórn-
arformanninum, Ólafi Ragnarssyni,
með kröfur fyrir rúmar tuttugu og
tvær milljónir. Ein krafa tollstjóra
var samþykkt og hljóðaði hún upp á
rúmar fimm milljónir. Veð haföi ver-
ið gert fyrir þeirri kröfu í klessubíl-
um.
Sjö veðkröfur og tvö fjárnám eru á
byggingunni Grænumörk lc í Hvera-
gerði. Skuld á fyrsta veðrétti á Helgi
Þór Jónsson hótelhaldari, þrjár og
hálfa milljón.
-sme
Mannbjörg er Sigurvon
strandaði í morgun
Sigurvon ST 54 frá Hólmavík
strandaði í svokallaðri Viðlagavík,
rétt sunnan við innsiglinguna í Vest-
mannaeyjum snemma í morgun.
Hjálparsveit skáta og björgunar-
sveitin voru kallaðar út um hálfsjö-
leytið þegar tilkynning barst um
strandið. Tókst að bjarga fjögurra
manna áhöfn um borð í lóðsbátinn
sem gat komist að skut Sigurvonar
þar sem hún ruggaði í stórgrýttri
fjörunni.
Hafði Sigurvon veriö á leið til hafn-
ar þegar hún strandaði en ágætis
veður var á þessum slóðum snemma
í morgun.
Sigurvon er 62 tonna eikarbátur
smíðaður 1957. Við mannbjörgina
heyrðu menn bresti og þykir ólíklegt
að reynt verði að bjarga bátnum. Um
klukkustund eftir strahdið var hann
farinn að ganga í suðaustanátt og var
töluverð hreyfing á Sigurvon í fjör-
unni þar sem menn telja að hún endi
feril sinn.
-hlh
Bráðabirgðalögin:
Falla
Bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar
eru nú til umfjöllunar hjá fjárhags-
og viðskiptanefnd efri deildar og hef-
ur formaður nefndarinnar, Eiður
Guðnason, sagt að hann búist ekki
við að nefndin ljúki umfjöllun sinni
fyrr en í desember. Þaö kemur fram
í máh stjórnarandstæðinga að þeir
telja að það takist jafnvel ekki að
ljúka umfjöllun Alþingis um málin
fyrr en eftir að ýmis ákvæði þeirra
falla úr gildi 1. mars. Lögin eiga aö
geta farið mun hraðar í gegnum
neðri deOd en þar eð óvíst er hvenær
þing kemur saman eftir jól er ekki
hægt að segja hvenær þaö kemst til
þau á
nefndar þar.
Aö sögn fulltrúa Kvennalistans í
nefndinni, Danfríðar Skarphéðins-
dóttur, er fyllsta ástæða til aö hafa
áhyggjur af því að ekki takist að ljúka
meðferö laganna áður en ýmis
ákvæði þeírra faila úr gildi. Þá sagði
hún að brýnt væri aö afgreiða lög
um Atvinnutryggingarsjóð því hann
væri nú farinn að dæla út fjármagni.
Halldór Blöndal sagði að það þyrfti
að kalla marga aðila fyrir nefndina
og því væri mikið staif framundan.
Hann sagði að það flýtti ekki fyrir
að meirihluti nefndarmanna yrði er-
lendis í næstu viku. Hann sagðist
tíma?
hafa miklar áhyggjur af því að At-
vinnutryggingarsjóður hefði ráðstaf-
að öllu sínu fé áður en lög um hann
hefðu verið rædd á Alþingi.
Albert Guðmundsson sagði að
þessi meðferð á bráðabirgðalögunum
sýndi aö sfjórnin treysti sér ekki til
þess að taka þessi mál til meðferðar.
Þetta sjónarspil væri hluti af þeim
blekkingarleik sem væri í gangi því
stjórnin hefði einfaldlega ekki meiri-
hluta til að koma lögunum í gegn.
Því væri ætlunin að láta Alþingi ekki
taka afstöðu til þeirra á meðan þau
væru í gildi.
-SMJ
Fjárhags- og viðskiptanefnd efri deildar fjallar nú um bráðabirgðalögin. Næsti fundur er á morgun en síðan er
ekki búist við að fundarfært verði vegna utanlandsferða nefndarmanna fyrr en 23. nóvember. DV-mynd KAE
Ásgeir Hannes Eiríksson:
Kaninn
greiði um
15 milljarða
„Ég tel að þegar stjómvöld hafi
brugðist viö að sjá fólki landsins
farborða verði það sjálft aö rísa
upp og bjarga sér,“ sagði Ásgeir
Hannes Eiríksson, varaþingmað-
ur Borgaraflokksins, en athygli
vakti á Alþingi þegar hann sagði
úr ræðustóli að taka ætti gjald
af hernum. Þetta kom fram í
umræðu um endurskoöun á
vamarsamningnum en borgara-
flokksmenn hafa flutt tillögu þar
um.
Fáir tóku undir mál Ásgeirs og
töluðu meðal annars samflokks-
menn hans gegn hugmyndinni.
Ásgeir sagði að hann væri liklega
einn um þessa skoðun á Alþingi.
Hann segist hafa reiknað út að
þaö fari vel á þvi aö Bandarikja-
menn taki yfir erlendar skuldir
landsraanna sem Ásgeir sagðist
telja vera um 150 rnilljarða króna
nú. „Ég sió nú bara á gamlar töl-
ur frá Joseph Luns, fyrrverandi
framkvæmdastjóra Nato, sem
taldi að þaö kostaöi Bandaríkja-
menn 40 milljarða dollara að
koma upp flugraóðurskipum sem
kæmu í staðinn fyrir stöðina hér.
Það var 1978. Þessi upphæð er lík-
lega orðin 50 milljarðar nú. Ef
tekin em um 10% af því þá er um
að ræða 230 milljarða í íslenskum
krónum talið og ef dregið er frá
þvi byggingar varnarliðsins þá
kemur út tala nálægt erlendum
skuidum okkar."
Ásgeir sagði að til að halda
efnahagslegu sjálfstæði okkar
yrðum við að vefja aronskuna því
aðrir valkostir fælu aðeins í sér
inngöngu í Efnahagsbandalagið
eða innlimun í Bandaríkin.
-SMJ
Fangar á Iitla-Hrauni:
Vilja Jónu burt
Fangar á Litla-Hrauni haía sent
frá sér ályktun þar sem þeir
skora á „fyrrverandi fram-
kvæmdastjóm, félagsformann og
framkvæmdastjóra félagssam-
takanna Verndar að fara að lög-
um samtakanna og eðlilegum
leikreglum lýðræðisins; aö víkja
fyrir nýrri framkvæmdastjóm."
Þessi ályktun var samþykkt á
trúnaöarráösfundi fanganna sem
haldinn var í gær. Þar kom fram
aö fangamir era mjög óhressir
með þróun mála undanfarið og
segjast þeir óttast aö fá ekki að
dveljast í húsinu á Laugateigi,
-SMJ
Viðtalid dv
Er að koma
mér fyrir
Nafn: Lllja Mósesdóttir.
Aldur: 26 ára.
Staða: Hagtræðingur hjá
Alþýðusambandi íslands.
„Ég er búin að vera búsett svo
viða undanfarin ár að eitthvert
eitt áhugamál hefúr ekki náð að
taka hug minn allan. Þau hafa
breyst eftir svæðum og aðstæð-
um. Ég var með dellu fyrir matar-
gerð í Þýskalandi en hún datt upp
fyrir þegar ég deildi eidhúsi með
20 öðrum stúdentum í Englandi.
Þá varð maður bókstaflega aö
eida ofan á matarleifúra hinna og
gafst ég fljótt upp á því. Nú er ég
nýkomin heim og er upptekin af
því að koma mér fyrir. Þessir
flutningar hafa þó haft þau já-
kvæðu áhrif að áhugi á feröalög-
um er mikill. Þannig hef ég séð
það mesta af Bandaríkjunum og
Evrópu," segir Lilja Mósesdóttir
sem nýverið var ráðin sem hag-
fræöingur þjá ASÍ.
Grundfirðingur
Lilja er Grundfirðingur, dóttir
hjónanna Móses Guðmundsson-
ar og Dóru Haraldsdóttur sem
búa þar í dag. Lilja er elst fiög-
urra systra - þeirra Hildar, Astu
og Daggar. Lilja er einhleyp og
barnlaus.
Hagfræði og þýska
Lilja útskrifaðist frá grunn-
skóla Eyrarsveitar 1977 og fór síð-
an í Verslunarskólann. Þaöan
lauk hún stúdentsprófi 1981. í
janúar 1981 var hún komin vestur
til lowa í Bandaríkjunum til að
nema hagfræði og þýsku við há-
skólann þar. Hún útskrifaöist
með BA-gráöu þaðan i desember
1984. Liija sneri ekki heim að
þessu loknu heldur iá leiðin til
Þýskalands þar sem hún nam
meiri þýsku. Loks fór hún heim
en dvaldi ekki nema í ár þar sem
hún kenndi við Verslunarskól-
ann veturinn 1985-6. Þá fór hún
enn á ný til Þýskalands þar sem
hún tók uppeidis- og kennslu-
fræði á einu ári. Veturinn 1987-8
vann hún að meistaraprófi í hag-
fræði viö háskólann í Sussex í
Englandi. í september síðastliðn-
um kom Lilja loks heim og réöst
eins og áður sagði til Alþýöusam-
bandsins.
Langartil Japan
„Þegar ég má vera aö því les ég
bókmemitir, aöallega þýskar.
Lestur hefur auk sundiðkana
fylgt mér sem tómstundaiðkun
hvar á landi sem er. Annars er
ég löt í íþróttum og hef varla haft
tíma tii að hefia neina íþróttaiðk-
un þar sem ég er svo nýkomin
heim. Það er helst að mig langi
að bregða undir mig betri fætin-
um og fara í ferð til Japans en
þar á ég vinkonu.“
-hlh