Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1988, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988.
Spumingm
Áttu þér einhvern uppá
haldstónlistarmann?
Guðjón Hilmarsson prentarj: Nei,
ekkert frekar, helst Mark Knopfler
og Jeff Lynne.
Kristinn Jónsson pípulagningamað-
ur: Já, það er Bubbi, hann er alveg
frábær.
Sigurður Ólafsson sjómaður: Nei,
'engan sérstakan, það er helst Kim
Larsen í augnablikinu.
Jóakim Ólafsson sjómaður: Bubbi
Morthens er bestur, það er enginn
vafi.
Ásta Grétarsdóttir hjúkrunarkona:
Björk Guðmundsdóttir sykurmob.
Hún er öðruvísi en aðrir.
Ragnheiður Jóhannsdóttir nemi:
Nei, það er enginn svona sérstakur,
helst David Bowie.
Lesendur
ísland og irniheimurinn 1 myndaseríu:
Varnarmálin enn viðkvæm
Vilhjálmur skrifar:
Öll umfjöllun um utanríkismál er
ávallt viðkvæm hér á landi, svo við-
kvæm að varla hefur mátt á þau
minnast án þess að til upphlaups
hafi komið þar sem þau eru rædd.
Ég á að sjálfsögðu við upphlaup í
ræðu og riti því að til handalögmála
hefur lítt eða ekki komiö síðan árið
1949.
Og það er alltaf verið að gefa út
bækur og framleiða sjónvarpsþætti,
jafnvel kvikmyndir, sem fjalla um
„áhrif hins erlenda herliös" á okkur
íslendinga! Rétt eins og við séum eina
þjóðin í heiminum sem höfum orðið
að sætta okkur við veru erlends her-
hðs í landinu á meðan heimsstyrjöld-
in síðari varði. Það urðu flestar þjóð-
ir að þola, a.m.k. þær í Evrópu, og
flestar höfðu hjá sér óvinveitt herliö
en ekki vinveitt eins og við hér.
Nú á Ríkisútvarpið að hafa lokið
tökum á ítarlegri myndaseríu sem
nefnist ísland og umheimurinn og
er þar enn og aftur fjailað ítarlega
um „veru hersins á Islandi“. Þetta
er auðvitað engan veginn einleikið
hvemig við ætlum að velta okkur
upp úr þessum striðsárum fram og
til baka. Og fyrir þessu hlýtur að
vera gild ástæða.
Hún er sú, að mínu mati, að við
íslendingar höfum mikla minnimátt-
arkennd gagnvart þjóðum sem sjá
sjálfar um varnarmál sín, hafa eigin
her eða sjálfboðaliössveitir sem eiga
að hafa það hlutverk að taka að sér
varnir eða tefja fyrir óvinum sem
ráöast á land þeirra þar til utanað-
komandi aðstoö berst.
„Við íslendingar höfum minnimáttarkennd gagnvart þeim þjóðum sem sjá sjálfar um varnarmál sín,“ segir bréfrit-
ari m.a. - Norðmenn hafa eigin hervarnir og norskir sjálfboöaliðar hafa verið í herliði S.Þ. siðan 1968.
Við íslendingar erum mjög blendn-
ir í trúnni á þessum vettvangi og lít-
um með aðdáun til þeirra tíma þegar
söguhetjur íslendingasagna voru
einfærar um að bjóða utanaðkom-
andi aðilum birginn. Síðan kemur
langt niðurlægingartímabil, sem hef-
ur staðið allt fram á þennan dag, að
þvi undanskildu þegar Danir báru
ábyrgð á vömum landsins eins og
sínu eigin.
Ég tel að lækningin viö þessari
minnimáttarkennd sé í fyrsta lagi sú
að hætta að velta sér upp úr þessu
og gera ekki fleiri myndir eða sjón-
varpsþætti um máhð og í öðru lagi
að koma hér upp einhvers konar
hjálparsveitum sjálfboðahða eða
ígildi vamarhðs sem grípa mætti til
við ýmis tækifæri, svo sem gegn að-
steðjandi hættu utan frá og í neyðar-
tilfehum. Ég get ekki séð að þetta
ætti að vera okkur ofviða og það
væri um margt æskilegra en ýmis
þau verkefni sem við höfum verið
að leggja fjármuni tíl á undanfömum
árum.
Sjónvarpið ekki öryggistæki
Pálmi hringdi:
í þætti Hahgnms Thorsteinsson-
ar á Bylgjunni síðdegis í gær (3.
okt.) var mikiö hringt vegna af-
notagjalda útvarps og sjónvarps og
rætt um möguleika á aö setja ríkis-
sjónvarpið inn í myndlyklakerfi
líkt og hjá Stöð 2.
Þar sem þátturinn Reykjavík síð-
degis hjá Hallgrími er yfirleitt fjör-
ugur og einkar skemmthegur frei-
staðist ég til að hlusta á hann all-
an. Það er alveg merkhegt hve lengi
þessi umræða um útvarp, sjónvarp
og afnotagjöld þeirra eðamyndlyk-
lagreiöslur ætlaði að endast - Það
er lí klegast vegna þess að fólk hefur
áhuga á málinu og er ekki sátt við
hvernig að því er staðið.
Einn er hringdi th Hahgríms
sagði að aldrei myndi verða hægt
að hafa sama hátt á með ríkissjón-
varpið og Stöð 2 vegna þess að Rík-
isútvarpið gegndi ákveðnu hlut-
verki í neyðarþjónustu almennings
og því þyrfti bara að innheimta
fyrir þaö með nefskatti. Þessu er
ég ekki sammála því það er vel
hægt að aðskhja þessa starfsemi
Ríkisútvarpsins. - Annars vegar er
hljóðvarp og hins vegar sjónvarp.
Síjónvarpið gegnir engu hlutverki
sem öryggistæki og mun aldrei
gera. Hljóðvarpið gerir það aftur á
móti og sýndi sig t.d. er Vest-
mannaeyjagosið dundi yfir. Þá var
það ekki Sjónvarpið sem ghti.
Auðvitaö á að aðskhja þennan
rekstur hjá Ríkisútvarpinu og selja
myndlykla fyrir þá sem viija nota
sjónvarp þess en ekki skylda fólk
th að kaupa þessa þjónustu eins og
nú er. - Hljóövarpið má svo gjarn-
an setja í innheimtukerfi nefskatts
fyrir mér. Ég held að allir vhji
halda því uppi sem einum öruggum
og tryggum ljósvakamiöli. - Um
Sjónvarpið gegnir aht öðru máh.
Það á einfaldlega ekkert skylt við
starfsemi hljóðvarpsins hjá Ríkis-
útvarpinu.
Um Seljavallalaug
Einar Ingvi Magnússon skrifar:
Á fahegum stað undir Eyjafjöllum,
inn mihi fjalla, er sundlaug sem
margir landsmenn kannast við. Þetta
er Seljavahalaug undir Austur-Eyja-
fjöllum og hefur í áraraðir og áratugi
verið sveipuð rómantískum og í senn
dulúðgum ljóma, þarna sem hún
kúrir upp við bergið, fjarri erli og
amstri daganna.
Bæði hafa erlendir og innlendir
ferðamenn notið þess að hvha lúinn
skrokkinn eftir langa daga á vegum
landsins, og svo einnig heimafólkið
„undir Fjöllunum" eftir erfiöa daga
í heyskapnum.
Þaö var notalegt að geta skroppið
1 laugina í skjóh fiahanna og bæði
synt og marað í notalega heitu hvera-
vatninu úr iðrum jarðar. - En nú er
það af sem áður var. Seljavallallaug
hefur verið dregin ofan í svaðið,
raunveruleg verið „slátrað“ eins og
fómardýri, fyrir eiginhagsmuni.
Seljavahalaug er í rúst og hörmung
að líta augum þennan sælureit í dag.
Skemmdarverk hafa verið framin á
lauginni, búningsherbergjum og
fleiru og röraleiðslur, sem fluttu heitt
vatn í laugina, logskomar í sundur,
eins og sjá má á mynd sem ég læt
fylgja hér með.
Ég skora á EyfelUnga að hlúa að
og veita nýju lífi í þennan fallega
unaðsreit svo að Seljavallalaug megi
á ný verða mönnum th augnayndis
og th gagns og gamans.
Leiðslan við Laugará. - Hún hefur
verið logsoðin i sundur.
Um niðurskurö og spamað:
Barnabætur
bara burt
Jóhannes hringdi:
Ég er einn þeirra og við hjónin sem
hafa fengið bamabætur frá hinu op-
inbera nú um nokkurt skeið. Við eig-
um þijú börn en okkur finnst að viö
komumst ekkert betur af þótt við
fáum þessar bætur sem svo eru kall-
aðar.
Ég var að lesa um að nú væri ný-
búið að senda út barnabætur th allra
viðkomandi og nemur sú upphæð
mhli 700 og 800 milljónum króna th
62 þúsund bótaþega, hvorki meira
né minna! Mér finnst að þetta ætti
að taka af og spara. Barnabæturnar
mega hreinlega fara burtu úr kerf-
inu.
Það ætti að vera á ábyrgð fólks
hvort þaö eignast bömin eða ekki og
kemur ríkinu ekkert við. - Nóg er
aö þurfa að sinna bömum með opin-
bemm greiöslum þegar þau fara í
skólana, aht frá dagheimhum og upp
úr, þar th þau ljúka háskólanámi.
Forsætisráðherra var að biöja um
hugmyndir th spamaðar. Hér með
kem ég þessari hugmynd minni á
framfæri. Einhveijir munu ekki
hrifnir af þessari hugmynd en svo
mun verða um ahar aðrar hugmynd-
ir. Sparnaðurinn kemur ahtaf viö
einhvern eða einhveija og því verður
að grípa til þess að höggva á hnútinn
þar sem bruðlið er hvað nýjast eins
og er um barnabætur sem ekki eru
svo ýkja gamlar í kerfinu og hafa
ahtaf verið umdehdar.
áskilursér rétttil
að stytta bréf og
símtöl, sem birt-
ast á lesendasíð-
um blaðsins
Hringið í síma
27022
mj]Ii kl. 10 og 12
eða skrifið