Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1988, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988.
17
Lesendur
Sfld í matinn
Gunnar Halldórsson skrifar:
Undanfarna daga hefur mikið verið
rætt um síldveiðar og síldarsölu til
annarra landa og í þvi sambandi er
rétt fyrir okkur íslendinga að staldra
aðeins við og huga að þessari hollu
og vítamínríku fæðu sem áður fyrr
var oft á borðum heimila við sjávar-
síðuna.
Nú væri kj örið tækifæri til að birta
uppskriftir af ýmsum síldarréttum
og hvemig hægt er að matreiða þessa
hollu fæðu. í því sambandi væri ekki
verra ef síld væri fáanleg í fiskbúðum
og öðrum matvöruverslunum, ýmist
flökuð eða frosin en helst ný - að
ekki sé talað um ef hægt væri að fá
síldarfars í bollur, sem eru algjört
lostæti.
Hér með skora ég á verslanir að
hafa þessa hollu fæðu á boðstólum
og þeir sem vita hvemig best er að
matreiða síldina ættu að gefa góð ráð
sem allra fyrst og birta í blöðum svo
og í ýmsum matargerðarþáttum í
blöðum og sjónvarpi. - Maður fær
bragð í munnvatnskirtlana við að
hugsa um þetta góðgæti sem síldin íslendingar aettu að huga meira að þeirri hollu og vítaminríku fæðu sem
er. síldin er, segir m.a. i bréfinu. - Og þarna er nóg af henni.
Kaupglaðir íslendingar
í helgarferðum
Kjartan Sigurðsson skrifar: meira lagi ef hún reynir ekki að innflutning? Mér skilst að margir
Eg var staddur á Keflavíkurflug- komaívegfyriraðöllverslunflyti- kaupmenn séu að þvi komnir að
velli til að taka á móti erlendum ist úr iandi. Sömuleiöis em íslensk gefastupp.-Væriekkinæraöyfir-
viðskiptavini og varð vitni að því stiómvöld illa fær um að stjórna, völd lækkuðu gjöld á innfluttura
hvílík kynstur af farangri íslend- meðan íslendingum er gert ókleift vörum í staðinn fyrir að hafa nú í
ingar koma með frá útlöndum. að versla í eigin landi á sömu kjör- hyggju að hækka þau og færa þar
Þama mátti sjá hjón með 5 ferða- um og standa til boða fyrir svona með verslunina enn frekar út úr
töskur, ásamt pokum, bjórkössum ferðamenn erlendis. landinu?
og úttroðnum fríhafnarpokum. - Auðvitað er upphæðin sem leyfi- Það var ekki svo illa til fundið
Öllum var hleypt í gegnum tollinn, . legt er að kaupa fyrir erlendis, sjö hjá Viihjálmi Egilssyni hjá Versl-
þótt um væri að ræða helgarferð þúsund krónur, hlægilega lág - en unarráðinu að með slikum hug-
sem varir frá fóstudegi til mánu- að fylla 5 ferðatöskur í einni helg- myndum, að hækka innílutnings-
dags! arferð er auðvitað meiri háttar mál gjöldin, hlyti fjármálaráðherra
Eitthvað er að Islendingum sem þegar engin athugasemd er gerð okkar að verða gerður aö heiðurs-
sífellt eru að jarma um peninga- við það við heimkomu. borgara í Glasgow. - Það er ljóst
leysi á meðan þeir fiara til útlanda Og nú fara í hönd hinar hefð- að mikið er að í peningamálum
og eyða þar erlendum gjaldeyri í bundnu helgar- og jólainnkaupa- okkar islendinga.
stórum stfl. Stjóm kaupmanna- ferðir. Er ekki kominn tími til að
samtakanna hlýtur að vera slöpp í takmarka eitthvað þennan ótollaða
Ótímabært upphlaup hjá þingmanni
Ó.G. skrifar:
Á stundum hvarflar það að okkur
að hægt eigi að vera að ætlast til
þess að alþingismenn hafi í einhveij-
um mæh þann hæfileika sem kallast
sjálfsgagnrýni. Það er deginum ljós-
ara að þessu fer víðs fjarri hjá mörg-
um hverjum.
Gott dæmi er „farsinn“ um ráð-
herrasætin í þingbyrjun. Þá lét þing-
maöurinn Guðrún Helgadóttir orð
faUa eitthvað á þá leið að henni bæri
sæti í stómm stóh (átti vísast við
ráðherrastól). Margir hlupu upp til
handa og fóta og sögðu að illa væri
með vesahngs þingmanninn farið.
En var því nú svo farið?
Þurfa ráðherrar ekki, fremur en
óbreyttir þingmenn, oft að taka viða-
miklar ákvarðanir sem þarfnast þá
yfirvegunar og raunsæs mats? Flest-
ir utan og innan hennar flokks minn-
ast ótímabærra og vanhugsaðra upp-
hlaupa þingmannsins og er þar af
mörgu aö taka. Gervasoni-málið var
svo sannarlega ekki það eina, þó aö
þá væri kannski mest brosað, enda
var þá enginn skaði skeður.
Það hlýtur að þurfa að velja ráð-
herra eftir því, sérstaklega þegar um
er að ræða fjölflokka ríkisstjórnir,
hvort þeir séu þess umkomnir að
aðlaga sínar skoðanir áliti annarra.
Æth þetta sé ekki ástæðan fyrir því
hvemig málin réðust?
Bækurtilsölu
Austfirðingaþættir Gísla í Skógargerði, Árbók Þingeyinga
1958-1975, Ættir Þingeyinga 1-4, Hesturinn okkar 1.-21.
árg., Strandapósturinn 1-20, Á íslendingaslóðum í Kaup-
mannahöfn e. Björn Th. Björnsson, frumútg. eftir Halldór
Kiljan Laxness: Barn náttúrunnar, Sjálfstætt fólk 1-2, í
Austurvegi, íslandsklukkan 1-3 (ób.m.k.), Gerska ævintýr-
ið o.fl., íbúaskrá Reykjavíkur fyrir árin 1918,1920,1934-35,
Bæjatölin fyrir árin 1915 og 1930, Fasteignamatið 1952,
allt landið, bókin um Grjótaþorpið, 1976, Saga Þorsteins
á Sxipalóni 1-2, Hver er maðurinn? 1-2, Hrynjandi íslenzkr-
ar tungu e. Sig. Kristófer Pjetursson, Andstæður e. Svein
frá Elivogum, Rauða hættan, frumútg. e. Þórberg Þórðar-
son, Vísur Þuru í Garði, Um dáieiðslu e. Erskine, Ósýnileg
áhrifaöfl e. Alexander Cannon, Rit spámannsins Martinus-
ar 1-4, Uppruni og áhrif Múhameðstrúar, Stjörnuspádóma-
bókin, 1941, Huldudrengurinn eftir Ingimund Sveinsson,
Veraldarsaga Sveins frá Mælifellsá, Dýrheimar og Nýir
Dýrheimar e. Kipling, Tímaritið Saga 1951-1987, tímaritið
Prentarinn 1910-1965, bundið í lúxus-skinnband, ritsafn
Jónasar Haligrímssonar 1-5, útg. Matthíasar Þórðarsonar,
Dómstólar og réttarfar e. Einar Arnórsson, Göngur og rétt-
ir e. Braga Sigurjónsson, Jarðskjálftar á íslandi e. Þorvald
Thoroddsen, Náttúrufræðingurinn 1.-26. árg. ib., Austant-
órur 1.-3. bindi, íslenzk lestrarbók 1400-1900, með hinum
fræga formála e. próf. Sigurð Nordal, Saga Natans Ketils-
sonar og Skáld-Rósu, Árbækur Reykjavíkur 1786-1936 e.
Jón Helgason, Þegar Reykjavík var 14 vetra e. sama,
Þættir úr sögu Reykjavíkur 1936, ýmsir höfundar, Flateyjar-
bók1.-4. bindi, Vídalinspostilla, alskinnsband, Passíusálm-
arnir með orðalykli próf. Björns Magnússonar, Stokks-
eyringa saga 1-2, Merkir íslendingar, eldri flokkur, 1 -5.
b„ Ritsafn Guðrúnar Lárusdóttur 1-4, Ritsafn Davíðs Stef-
ánssonar 1.-7. b„ Ritsafn Guðmundar Friðjónssonar 1-7,
Lilja Eysteins Ásgrímssonar, útg. próf. Guðbrands Jóns-
sonar, í verum e. Theódór Friðriksson, öll rit Ólafs Jó-
hanns Sigurðssonar, frumútgáfur, Hallgrímur Pétursson
1.-2. b. e. próf. Magnús Jónsson, Svipir og sagnir, hún-
vetnskir sagnaþættir 1-4, Hvað sagði tröllið? e. Þórleif
Bjarnason, Eyfellskar sagnir 1-3 e. Þórð í Skógum, Auð-
fræði síra Arnljóts Ólafssonar, Jeppabókin 1946, allar bæk-
ur Guðmundar Hjaltasonar, Afmælisrit Flensborgarskólans
1882-1932, Konan í dalnum og dæturnar sjö e. Guðm.
Hagalín, Ævisaga Árna Magnússonar e. Finn Jónsson,
Völuspá e. Eirík Kjerúlf, Embla 1-2, tímrit kvenna, Perlur
1.-2. árg., Dropar 1.-2. bindi, Þjóðhættir Finns á Kjörs-
eyri, Setningafræði Jakobs Jóh. Smára, Saga Odds lög-
manns e. Jón Aðils, Siglufjarðarprestar e. Jón Jóhannes-
son, Barðstrendingabók e. Kristján á Garðsstöðum, ís-
lenzkar bókmenntir 1918-1948, höf. Kristinn E. Andrésson,
Faxi dr. Brodda, Fákur Einars Sæmundsen, Ævisaga Max-
ím Gorkí, Byggð og saga e. Ólaf Lárusson, Austfirzk skáld
og listamenn e. dr. Stefán Einarsson, Norsk æfintýri 1-3
e. Asbjörnson og Moe, Skaðaveður 1-4, Torskilin bæjar-
nöfn 1-4 e. Margeir Jónsson, Ævisaga Reinolds Kristjáns-
sonar 1 -2. bindið.
Sendum í póstkröfu hvert á land sem er
BÓKAVARÐAN
- gamlar bækur og nýjar -
Vatnsstíg 4 - Reykjavík - Sími 29720
BR0SUM /
og W
allt gengur betur %
Ík
rvt/0
'tÆÍAsyXr
Þegar líður að jólum fer ýmis villibráð eins
og hreindýrakjöt að sjást hér í verslunum. í
Lífsstíl á morgun fjöllum við um hreindýra-
kjötið og gefum góðar uppskriftir. Þó nokk-
uð af dýrum hefur verið fellt í ár en samt
virðist vera erfitt að nálgast hreindýrakjöt.
Formkökur geta verið fjölbreyttar að inni-
haldi og útliti. Fjallað verður um bakstur á
formkökum og hvaða atriði sé vert að hafa
í huga við bakstur á formkökum. Það er til
dæmis talið heppilegra að eggin séu við
stofuhita og hveitið sé sigtað í deigið. Meira
um formkökur á morgun í Líffsstíl.
Hvalveiðar íslendinga eru umdeilt athæfi
hin síðari ár og sýnistsitt hverjum. Ein afleið-
inga minnkaðra hvalveiða er sú að hvalkjöt
hefur nær horfið af markaðnum. Hrefnukjöt,
súr hvalur og hvalrengi, allt eru þetta fæðu-
tegundir sem annaðhvort eru horfnar eða
eru að hverfa af borðum landsmanna.
Á neytendasíðu á morgun birtist fróðleg
grein eftir Ólaf Sigurðsson matvælafræðing.
Þar bendir höfundur á ótvíræða hollustu
hvalafurða fram yfir margt annað. Síðast en
ekki síst hefur hrefnukjöt stundum verið
kallað kjöt fátæka mannsins. Nánar um
málið á neytendasíðu á morgun.