Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1988, Blaðsíða 32
32
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988.
Lífsstm
Lesið í Tarotspil:
„Nú er hún að fara á nomaþingið"
Tómstundir fólks hafa aukist mjög
í gegnum tíðina og eykst þá að sama
skapi fjölbreytni þess sem boðið er
upp á til að drepa tímann á gagnlegan
og skemmtilegan hátt. Á haustmán-
uðum, þegar skammdegið heldur
innreið sína og möguleikar til útivist-
ar minnka, hópast fólk á námskeið
sér til skemmtunar og fróðleiks.
Margir skólar hafa sprottið upp
sem sérhæfa sig í námskeiðahaldi
fyrir almenning, af nógu er að taka
og úrvalið batnar með ári hverju.
Sumir vilja hressa upp á tungumála-
kunnáttuna, aðrir læra betur á ljós-
myndavélamar sínar og þannig
mætti lengi telja. Alltaf má bæta við
sig kunnáttu og þegar öll hefðbundin
málefni hafa verið tæmd er bara leit-
að á ný og spennandi mið. Það sem
skiptir máli er að hafa gaman af öllu
saman og sameina þannig dægra-
styttingu og nám. Skólarnir bjóða
ótrúlegustu námskeið og alhr ættu
að finna eitthvað við sitt hæfi. Tóm-
stundaskólinn er, eins og nafnið gef-
ur til kynna, skóh sem fólk stundar
Tíðarandi
í frístundum og er hægt að fara á
námskeiö sem kenna allt frá logsuðu
til sölu og markaðsstjórnunar
smærri fyrirtækja.
Kennsla í kukli
Áhugi á dulspeki hefur aukist mjög
að undanfómu og þykir það sem á
árum áður flokkaðist undir kukl og
óguðlegt athæfi hin merkilegustu
fræði í dag. Margir em óhræddir við
að leita til hinna óþekktu afla og spá
í framtíðina, það sem að baki er, eða
bara velta fyrir sér möguleikum og
spyija spurninga. Eitt af námskeið-
um Tómstundaskólans er einmitt
kennsla í lestri Tarotspila og er læri-
meistarinn sjálfur, Hilmar Örn
Hilmarsson, þekktur tónhstarmaður
og galdrakarl. Blaðamaður leit inn í
tíma hjá Hilmari og áhugasömum
nemendum eitt mht haustkvöld.
Tíminn hófst með þvi að Hilmar út-
skýrði eina lögn og kenndi hinar
ýmsu leiðir við túlkun spilanna.
Hann lagði sérstaka áherslu á lestur
úr sphunum út frá stjörnuspekilegu
sjónarmiði. Síðan var fólkið látið æfa
sig á þvi að spá hvort fyrir öðru og
Það þarf að lesa sér vel til um spilin til að byrja með. Tarotspilin eru 78 og merking hvers spils breytiieg eftir
stöðu þess.
Spáð í spilin
Það eru til ahs konar hefðir í sam-
bandi viö hvemig á að leggja spilin,
stokka þau, lesa úr þeim og jafnvel
geymsluhættir em háðir vissum lög-
málum. Hver og einn hefur sína eftir-
lætisaöferö.
Sumir geyma spihn í shki eða í
svörtu efni ofan í trékassa, aðrir bara
uppi á ísskáp. Einum finnst best að
láta þann sem spáð er fyrir stokka
og skipta bunkanum með vinstri
hendi, sumir stokka sjálfir og leyfa
engum öðrum að snerta spilin. Þann-
ig era tU jafnmargar aðferðir og
mennirnir eru margir. Hver og einn
verður bara að komast að hvað hon-
um hentar best.
í þessari lögn, sem við sýnum hér,
skiptir ekki máh hvort spyrjandi eða
sá sem spáir stokkar spihn. Síðan em
efstu spihn tekin úr bunkanum og
lögð í réttri númeraröð. Merkingin
breytist ekki þótt spihn snúi öfugt.
Spil nr. 1 táknar þann sem spáð er
fyrir og afstöðu hans en nr. 2 og 3
nánasta umhverfi hans. SpU nr. 4, 8
og 12 standa fyrir þaö sem mun ör-
ugglega gerast í framtíðinni en 5, 9
og 13 það sem gæti gerst ef öll tæki-
færi væm nýtt tU fullnustu. Þessi
spU í efri röðinni tákna ytri veruleika
en neðri röðin er táknræn fyrir innri
veruleika. Spil nr. 6, 10 og 14 lýsa
sálarlífi spyrjandans en 7, 11 og 15
em „karma“ viðkomandi, þ.e. lögmál
orsaka og afleiðinga.
-Ade
HUmar gekk á milli borða, aðstoðaði
og útskýrði merkingu og stöðu spU-
anna. Þama var mættiu- mishtur
hópur fólks sem flest hafði ekki
mikla reynslu af því að lesa í Tarot-
spU en lengi haft áhuga á að kynna
sér málin..
Nornaþing
„Nú er hún að fara á nomaþing-
ið,“ segja starfsfélagar einnar þegar
hún er að fara á Tarotnámskeiðið.
Flestir vom sammála um að algengt
væri að fólk tengdi Tarotspilin kukh
af einhverju tagi. Það em fordómar
fyrir hendi en æ fleiri gera sér grein
fýrir að það er fyrst og fremst
skemmtUeg og þroskandi dægradvöl
að spá í spihn. -Ade
Guðrún Kristjánsdóttir og Guðríöur Haraldsdóttir einbeittar yfir spenn-
andi spá.
Var gerð að spákonu
„Fyrir u.þ.b. þremur árum fékk
ég geflns TarotspU og var sam-
stundis gerð að spákonu vinahóps-
ins. Ég keypti raér fljótlega bók á
íslensku um Tarotspil og byrjaði á
þvi að lesa beint upp úr henni.
Fólk vUdi ólmt láta spá fyrir sér
þrátt fyrir máttieysisleg mótrnæh
mín. Það var ekkert tekið mark á
þvi, bara spá!“ sagði Guðríður Har-
aldsdóttir en hún er nemandi á
Tarotnámskeiði Tómstundaskól-
ans.
„Síðan fór mér að þykja mjög
gaman að þessu og sleppti bókinni
en lagði á minnið einhver stikkorð.
Ég fór líka að tengja saman merk-
ingu spUanna, t.d. ef það komu
mjög góð spU með slæmum spUum
þá fór maður að draga úr slæmu
merkingunni. Spáin breyttist líka
yfir í að vera meira run persónu-
leUca fólks heldur en bein framtíð-
arspá.“
Hefur þessi tómstundaiöja breytt
einhverju þjá þér?
„Já, ég hef aldrei verið eins „vin-
sæl“! Vinir mínir fóm aö taka vini
sína með í heimsókn og þaö var
mjög gaman. Þaö er aUtaf gaman
aö kynnast nýju fólki.“
Hafa spár þínar ræst?
„Upp á síðkastið hefur komið tU
mín fólk og sagt aö spár mínar
hafi ræst En líklega verkar þetta
bara eins og máltækið segir, aö
kjöftugum ratist oft satt á munn.
Ég hef verið meö einhverjar vanga-
veltur og hitt einmitt á þaö rétta
og svo getur maður oft miöað út frá
þ ví sem maöur veit Það er kannski
tU í dæminu aö fólk láti spána
hreinlega rætast! Mér flnnst þetta
aöallega gaman en raér fínnst rangt
ef fólk fer að trúa bókstaílega á
svona hluti og jafhvel lifa eftir
þeim.“
Leggja áherslu
áþaðjákvæöa
, JÞegar ég spái þá velti ég mér upp
úr góðu hlutunum og reyni frekar
að draga úr þessu neikvæða. Sumir
trúa því aö þegar spilin eru á hvolfi
geti merkingin verið slæm. Ég er
ekki sömu skoðunar og var rajög
fegin þegar HUmar sagöi að þetta
væri bara seinni tíma kenning sem
ýtti undir þaö að gera spilin dular-
fuU og hræðUeg. Fyrir viðkvæmt
fólk, sem tekur þetta bókstaflega,
hlýtur það bara að vera kvalræði
að láta spá fyrir sér.“
Háskólinn eða
Kennaraháskólinn?
„Þaö kemur auðvitað fyrir að fólk
tekur þetta of alvarlega. Ég fékk
stúlku í heimssókn sem spurði mig:
„Hvort á ég að fara í Háskólann eða
Kennaraháskólann?" Ég sagði
henni hvað mér fyndist en lagði
ekki spU. Ég held að þaö sé ekki
hægt að svara svona með spUun-
um. Einnig verður maður að passa
að fara ekkert að leggja aftur spUin
þótt fólk sé ekki ánægt með útkom-
una. Það er ekki hægt Flestir hafa
gaman af því að láta spá fyrir sér
og svo trúa margjr á það. Mér
finnst mikU ábyrgö að spá fyrir
fólkL"
- Hefur þú ákveðnar reglur varð-
andi meðhöndlun á spUunum og
hvemig þú spáir í þau?
„Já, ég læt þann sem ég spái fyr-
ir stokka spilin og síðan legg ég þau
beint niður og spái. Ég legg þau
yfirleitt í eina sérstaka stjömu. Ég
geymi spilin niðri í skúffu, ekki
vafin inn í silkiklút! Þau em orðin
ansi sUtin og rifin af mikUli meö-
höndlun. Þaö pirrar mig mest ef
einhver tekur spUin og fer aö
stokka þau svona bara tU að Ðkta.
Þá verð ég alveg óð! Ég vU fa aö
stokka á undan og rétta svo fóUdnu
spUin.“
Spilin eru gerð of dularfull.
„Annars hef ég engar vissar
„seremóníur“ og ég held að Tarot-
spU séu gerð aUt of dularfuU og
óaðgengUeg i augum almennings.
Ég þekki fólk sem er hrætt viö spU-
in og þorir ekki aö láta spá fyrir sér.
Það er mjög misauövelt aö spá
fyrir fólki. Stundum lokast ég al-
veg; þá era spUin svo ragUngsleg
aö ekkert er hægt aö sjá út úr
þeim.“
- Ætlaröu aö halda áfram á svona
námskeiðum?
„Mig langar að halda áfram og
þá ekki í þessu venjulega heldur
aö fara meira í kabbalisma sem era
innri kenningar Gyðinga. Ég er
mjög spennt fyrir því að halda
áfram því mér finnst þetta alveg
ferlegagaman!" -Ade