Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1988, Page 36
36
Merming
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988.
Söludeild, Borgartúni 1
Höfum fengið margar gerðir borða og stóla ásamt
miklu magni skrifborða.
Einnig tölvuborð og tölvuskjái
Nánari uppl. í síma 18000-339
Innritun á vinsælu örbylgjuofnanám-
skeiðin, sem haldin eru á Holiday Inn
hótelinu, er í síma 689398 mánudaga til
fimmtudaga frá kl. 14-16 (aðeins).
Innflytjandi
tækjahreinsun
Hreinsa kísil og önnur óhreinindi af hreinlætis-
tækjum og blöndunartækjum. Sértilboð á
stykkjafjölda. Fljót og góð þjónusta.
Verkpantanir daglega milli kl. 1 og 6 í síma
985-28152.
1 Hreinsir hf. )
Hreinlætis
Loftastoðir
BYGGINGA-
MEISTARAR
Eigum nú á lager
loftastoðir á
mjög hagstæðu
verði, bæði
málaðar og
galvaniseraðar
★
Stærðir
1,90-3,40 m,
2,30-3,80 m
og 2,50-4,40 m
★
Góðir greiðslu-
skilmálar
★
Leigjum einnig
út loftastoðir
Fallar hf.
Verkpallar - stigar
Vesturvör 7 - 200 Kópavogur,
simar 42322 - 641020.
„Art brut“
með kaffinu
- um sýningu Ástu Guörúnar Eyvindardóttur á Mokka
Kaffihúsin hér í Reykjavík hafa
lengi verið griðastaðir ýmisskonar
neðanjarðarlistamanna sem ann-
aðhvort fá ekki inni í lúxussölun-
um í miðbænum eða kæra sig ekki
um það. Til langs tíma var Mokka
eina kafíihúsið sem bauð uppá
myndlistarsýningar en nú hefur
t.d. Bókakafli við Garðastræti bæst
við. Að sjálfsögðu eru þessar sýn-
ingar afar misjafnar en uppá síð-
kastið hefur tilhneigingin greini-
lega verið sú að á þessum stöðum
koma uppá veggi persónulegri og
jafnframt einkennilegri verk en
sjást á lúxusmarkaðnum. Á marg-
an hátt geta kafíihúsaverkin flokk-
ast undir „art brut“ en svo nefndi
franski listamaðurinn Jean Dubuf-
fet safn sitt af listaverkum utan-
garðsfólks sem voru oft torráðin
og stundum gerð með nýstárlegum
heimatilbúnum aðferðum. Verkin
áttu það sameiginlegt að vera yfír-
máta persónuleg og listamennirnir
höfðu sjaldnast neinn áhuga á að
markaðssetja verk sín og foldu þau
jafnvel fyrir öðrum. Varast ber að
rugla „art brut“ saman við frum-
stæða list eða naívisma. Hvorir
tveggja prímitívistar og naívistar
eru gjaldgengir á listamarkaðnum
og eru meðal eftirsóttustu hsta-
manna. Prímitívistum hefur hins-
vegar flestum mistekist það sem
utangarðsbrutistum er eiginlegt;
að tjá sitt eigið frumstæða sjálf
óháð duttlungum markaðarins.
Nú stendur yfir á Mokkakafíi
sýning Ástu Guðrúnar Eyvindar-
dóttur á „matarmyndum".. Að
nafninu til er þama um olíumál-
verk að ræða en við nána athugun
koma í Ijós ýmsir aðskotahlutir
eins og álpappír og tertuskraut.
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
Myndirnar eru málaðar í sterkum
htum og viðfangsefnin eru sum
hver upphleypt einsog t.d. brún-
tertan í mynd nr. 5. Ugglaust verð-
ur mörgum næmgeðja kaffi-
drykkjumanninum um og ó innan
um matseld Ástu en hvað sem
smekk hvers og eins líður þá taka
þessar myndir hennar svo sannar-
lega afstöðu og eru persónulegar
og einlægar. Tjáning Astu er barns-
leg og vekur furðu að hún skuli
hafa að baki margra ára myndhst-
amám. Þetta er þó ekki sagt henni
til hnjóðs því hún virðist þvert á
móti sjálfri sér samkvæm og staö-
fastari en margur lúxusmálarinn.
Undirritaður er þó á þeirri skoðun
að sú sýning sem Ásta hélt í Hafn-
argalleríi síðastliðið vor hafi verið
að mörgu leyti sterkari og hentað
hinu brúðuleikhússlega andrúms-
lofti mynda hennar betur.
í haust hafa fleiri málarar sýnt í
kaffihúsunum verk sem eru í þess-
um „art brut“-dúr. Ósjaldan er
þama um að ræða ljóðskáld með
þúsundþjalatilhneigingar. Bjarni
Bemharður sýndi t.d. á Mokka nú
nýverið og Margrét Lóa Jónsdóttir
og Einar Melax sýndu í Bókakaffi.
Það væri hreint ekki úr vegi aö
koma á fót séstöku „art brut“ kaffl-
hússsafni hér í borg og hefja þar-
með hina persónulegu feluhst til
þeirrar vegsemdar sem henni ber.
Sýningu Ástu Guðrúnar lýkur
hvað sem því líður nk. sunnudag,
13. nóvember. ÓE.
Andlát
Ásgerður Andrésdóttir, Framnesvegi
42, andaðist mánudaginn 7. nóvemb-
er.
Ástrós Jónsdóttir, Krokveien 12,1652
Torp, Norge, lést í sjúkrahúsi í
Frederikstad þann 7. nóvember.
Pálína Gunnarsdóttir, dvalarheimili
aldraðra, Sauðárkróki, er látin.
Þorleifur Skagfjörð Jóhannesson,
Hvammi, Svartárdal, lést á heimili
sínu sunnudaginn 6. nóvember.
Jarðarfarir
Útfor Ólafs Norðfjörð Kárdal, Rauða-
gerði 12, fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 11. nóvember kl. 15.
Anna Ragnhildur Viðarsdóttir, áður
til heimilis í Hraunbæ 20, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 10. nóvember
kl. 10.30 f.h.
Sigurbjörg Marteinsdóttir frá Fá-
skrúðsfirði, til heimilis á Laugames-
vegi 108, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 10. nóv-
ember kl. 15.
Oddný Jónasdóttir, Þrúðvangi 10,
Hellu, verður jarðsungin frá Lang-
holtskirkju fóstudaginn 11. nóvemb-
er kl. 15.
Arthur Emil Aanes, vélstjóri, Efsta-
sundi 12, verður jarösunginn fóstu-
daginn 11. nóvember kl. 13.30 frá
Fossvogskirkju.
Einar Sigursteinn Bergþórsson
skipa- og húsasmiður, Þingholts-
stræti 12, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 10.
nóvember kl. 13.30.
Magnús Loftsson lést 31. október sl.
Hann var fæddur í Haukholtum í
Hrunamannahreppi þann 15. júlí
1908, sonur hjónanna Kristínar
Magnúsdóttur og Lofts Þorsteinsson-
ar. Magnús hóf ungur að árum bif-
reiðaakstur og frá árinu 1947 stund-
aði hann leigubílaakstur í Reykjavík,
lengst af á Hreyfli. Hann giftist Jón-
ínu S. Ásbjömsdóttur, en hún lést
árið 1983. Þau hjónin eignuðust sex
börn. Jónína hafði eignast dóttur
áöur sem Magnús ól upp. Útfór hans
verður gerð frá Kópavogskirkju í dag
kl. 13.30.
Tilkyimingar
Kvennadeild Flug-
björgunarsveitarinnar
verður með félagsfund í félagsheimilinu
Nauthólsvík í kvöld, 9. nóvember, kl.
20.30.
Kvenfélag Kópavogs
heldur félagsfund funmtudaginn 10. nóv-
ember kl. 20.30 í Félagsheimilinu. Gestur
fundarins verður frú Guðrún Waage með
kynningu og sölusýningu frá versluninni
Silkiblóminu.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
heldur sinn árlega basar í safnaðar-
heimiii kirkjunnar laugardaginn 12. nóv-
ember kl. 14. Margt verður góðra og eigu-
legra muna. Tekið verður á móti gjöfum
á basarinn í safnaðarheimilinu á fimmtu-
dag kl. 16-20, fostudag kl. 16-22 og fyrir
hádegi á laugardag. Kökur eru vel þegn-
ar.
Myndakvöld Útivistar
Myndakvöld verður í Fóstbræðraheimil-
inu, Langholtsvegi 109, fimmtudags-
kvöldiö 10. nóv. kl. 20.30. Mætið stundvís-
lega.
Kvenfélag Fríkirkjunnar
í Reykjavík
heldur basar og hlutaveltu nk. laugardag
að Laufásvegi 13, Betaníu. Velunnarar
félagsins eru beðnir að koma munum
þangað nk. fimmtudag og fóstudag eftir
kl. 17.
Hvar var Leifur?
Háttvirta ritstjórn DV.
Við hljóðfæraleikarar í Sinfóníu-
hljómsveit íslands viljum hér með
vekja athygli á gagnrýni Leifs Þór-
arinsssonar um tónleika sem birt-
ist í DV þann 1/11 1988. Tónleikar
þeir sem um ræöir voru lokatón-
leikar Tónlistarhátíðar ungra nor-
rænna einleikara, sem að þessu
sinni var haldin í Reykjavík. A tón-
leikunum léku þrír ungir norrænir
tónhstarmenn einleik með S.í. í
Háskólabíói verk eftir Frounberg,
Elgar og Brahms. Yfirskrift gagn-
rýni Leifs Þórarinssonar ér hins
vegar: „Fjórir einleikskonsertar".
Tónlistargagnrýnandinn hrósar
þar sérstaklega flutningi á blokk-
flautukonsert eftir Vivaldi sem féll
út af efnisskránni, eins og fram
kom á sérstöku blaði sem tónleika-
gestir fengu í hendur. í grein sinni
segir Leifur meðal annars:
Leikur hans í konsert eftir Vivaldi
var eitthvað alveg sérstakt...
Þar sem þetta er ekki í fyrsta sinn
sem tónlistargagnrýnandinn Leif-
ur Þórarinsson virðist heyra tón-
hst sem ekki er flutt og sjá flytjend-
ur sem ekki eru til staöar viljum
við harðlega mótmæla óábyrgum
vinnubrögðum hans.
Viö minnum á mikilvægi heiöar-
legrar gagnrýni á opinberum vett-
vangi, þar sem ljóst er að gagnrýn-
andi hefur áhrif á skoðanir al-
mennra lesenda. Um leið og við
skorum á ristjóm DV að finna
hæfan tónlistargagnrýnanda til
starfa við blaðið, hljótum við að
spyrja: Hvar var Leifur?
Reykjavík, 2/111988
Hljóðfæraleikarar í
Sinfóníuhljómsveit íslands
Athugasemd ritstjóra.
Það skal tekið fram að vegna
þessa atviks hefur Leifi Þórarins-
syni verið sagt upp sem tónlistar-
gagnrýnanda DV.
Ritstjóri.