Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1996, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1996
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarfornnaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJANSSON
Aðstoðarritstjóri: ELIAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjóm, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
r
Otrygg matvörusamkeppni
Verðsamkeppni í matvörum er of lítil hér á landi. Yfir-
leitt eru stórmarkaðir með svo jafnt verð, að það minn-
ir á fáokun olíufélaganna. Þetta eru ekki nýjar fréttar, en
þær hafa rækilega verið staðfestar í nýrri verðkönnun
Neytendasamtakanna og verkalýðsfélaganna.
Niðurstöðurnar eru mjög svipaðar þeim, sem komu
fram í verðkönnun DV í upphafi þessa árs. Keðjuverzl-
anir og beztu kaupfélög eru í hnapp á verðbili, sem nær
frá 91% af meðalverði upp í 95% af meðalverði. í þessum
hópi eru 10-11 búðirnar, Hagkaup og Nóatún.
Ljósi punktur könnunarinnar er Bónus sem fyrr. Mat-
vörðuverðið er þar 73% af meðalaverði. Raunar er mjög
ánægjulegt, að helmingseign Hagkaups að Bónusi hefur
ekki dregið úr samkeppni þessara aðila. Það hefur til
dæmis komið skýrt fram í lyfjabúðakeppni þeirra.
Þetta er hins vegar ótryggt ástand, sem gæti breytzt
fyrirvaralítið. Verzlunin, sem heldur niðri matvöru-
verði, er bara ein. Öruggara fyrir neytendur væri, ef
Bónus hefði samkeppni annarra verzlunarkeðja, sem
einnig legðu áherzlu á einfalda þjónustu og lágt verð.
Ástandið er raunar eins og það var fyrir nokkrum ára-
tugum, þegar Hagkaup var sér á parti á matvörumark-
aðinum og gerði meira fyrir almenning en samanlögð
stéttarfélög landsins. Ekkert hefur gerzt annað en að
Bónus hefur tekið að sér sparnaðarhlutverkið.
Auðvitað er gott að hafa eina verzlun, sem fórnar
vöruúrvali og þjónustu til að koma matvöruverði niður
í 73% af meðalverði. Það kemur hins vegar sífellt á
óvart, að keðjuverzlanir, sem búa við hagkvæmni
magninnkaupa, skuli ekki koma sínu verði neðar en í
91-95%.
Eðlilegt væri, að hér á landi væru til keðjuverzlanir,
sem ekki fórnuðu vöruúrvali eða þjónustu, en næðu
samt vöruverði, sem næmi innan við 90% af meðalverði
smásöluverzlana. Þær gætu það með magninnkaupum
sínum og beinum viðskiptum við framleiðendur.
Athyglisvert er við könnun þessa og fyrirrennara
hennar, að kaupmennirnir á horninu standa sig tiltölu-
lega vel miðað við stórverzlanir og keðjuverzlanir. Marg-
ir kaupmenn eru með um 105% af meðalverði án þess að
eiga kost á magninnkaupum og beinum viðskiptum.
Einnig er athyglisvert, að ýmis staðbundin kaupfélög
hafa bætt stöðu sína og standa jafnfætis keðjuverzlun-
um. Skagfirðingabúð kemst niður í 86% af meðalverði,
Samkaup í Reykjaneskjördæmi í 91% og Kaupfélag Ár-
nesinga í 94%, svo að nokkur þekkt dæmi séu nefnd.
KEA á Akureyri hefur sérstöðu, sem felst í að hafa
þrjá verðflokka verzlana undir sama hatti. Þar er Nettó-
búðin með 77% af meðalverði, Hrísalundur með 92% og
venjulegar KEA-búðir með 101% af meðalverði. Eyfirð-
ingar ná því nokkurri samkeppni undir sama hatti.
Engum kemur á óvart, að kaupmenn og kaupfélög á
afskekktum stöðum, einkum á Vestfjörðum, skuli hafa
hæsta verðið, 110-120% af meðalverði. Aðdrættir eru þar
erfiðastir og markaðurinn minnstur. Þetta er einn þátt-
ur herkostnaðarins af of mikilli dreifingu byggðar.
í heild sýnir verðkönnunin töluverða samkeppni í
matvöruverzlun. Verðsveiflan er frá 73% í 120% af með-
alverði. Könnunin sýnir líka, að ódýri kanturinn hvílir
of mikið á úthaldi og áræði eins kaupmanns. Loks sýnir
hún, að keðjuverzlanir eru of miðlægar í verði.
Matvöruverzlun snýst auðvitað um fleira en verðlagið
eitt. Það er samt mikilvægasti þátturinn, af því að það
hefur veruleg áhrif á lífskjör almennings í landinu.
Jónas Kristjánsson
Bandaríkin einangruð
í skammarkróknum
Veröi Boutros Boutros Ghali
hrakinn úr starfi aðalritara Sam-
einuðu þjóðanna er það í fyrsta
skipti sem manni í þeirri stöðu er
neitað um annað kjörtímabil vilji
hann sitja áfram. Ekki fer milli
mála aö Boutros Ghali nýtur
trausts og stuðnings yfirgnæfandi
meirihluta 185 aðildarríkja SÞ.
Samt á hann í vök að verjast
vegna afstöðu Bandaríkjanna
einna. Við atkvæðagreiðslu í Ör-
yggisráðinu greiddu fulltrúar
ijórtán ríkja Egyptanum atkvæði,
en fulltrúi Bandaríkjanna heitti
neitunarvaldi til að hindra að
meirihlutaviljinn næði fram að
ganga.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hefur frá því í vor lagt Boutros
Ghali í einelti af fúlmennsku og
hroka. Með því hefur hann reynt
að notfæra sér til pólitísks fram-
dráttar verstu hneigðir þröng-
sýnna landa sinna, kynþáttafor-
dóma, útlendingahatur og drottn-
unarsýki.
Meginástæðan til framkomu
Clintons er að það kom í ljós
snemma árs að repúblikanar, og
Robert Dole mótframbjóðandinn í
forsetakosningunum sérstaklega,
hugðust gera Boutros Ghali sem
tákn SÞ að barefli á stjóm forset-
ans. Dole hafði að áhersluatriði í
máli sínu að kæmist hann á for-
setastól skyldu bandarískar her-
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
sveitir aldrei verða sendar í hættu
„undir yfirstjórn Boutros Ghali“.
Þama er skírskotað til banda-
riskrar tilhneigingar til að kenna
SÞ um ófarir bandarískra land-
gönguliða í Sómalíu. Sú herferð
var vissulega farin í umboði SÞ,
en ekki aðalritarans heldur Ör-
yggisráðsins. Og yfirstjórnin var
öll í höndum bandaríska land-
vamaráðuneytisins og SÞ komu
þar hvergi nærri áætlanagerð né
ákvörðunum. En af því illa fór
vilja margir Bandaríkjamenn
helst ekki af staðreyndunum vita
og kjósa að skella skuldinni á SÞ.
Lengi hefur verið alið á þeirri
hugmynd meðal hægrisinna í
Bandaríkjunum að SÞ séu í raun-
inni hluti af alþjóðlegu samsæri
feluafla bak við tjöld alþjóðamála
um að koma á alheimsstjórn, sér í
lagi í því skyni að ræna Banda-
ríkjamenn frelsi og fullveldi.
Meinlokan er nú komin á það stig
að víða um Bandaríkin hafa
myndast hópar sem safna vopnum
og þjálfa vopnaburð í því skyni að
verjast innrás alþjóðaliðs á vegum
SÞ. Þessir hópar koma á loft og
breiða út sögur um að sést hafi til
sveita „svörtu þyrlanna“, sem séu
í könnunarferðum og að koma
upp vopnabúrum til undirbúnings
væntanlegri hertöku landsins.
Ferð kanadiskra flutningabíla
með auðkennum SÞ til útflutn-
ingshafnar í Bandaríkjunum til
þátttöku í friðargæslu handan
hafs varð að æsingamáli.
Þetta ofsóknarbrjálæði hugðust
repúblikanar notfæra sér til að fá
höggstað á Clinton, og viðbrögð
Bandaríkjaforseta urðu að níðast
á Boutros Ghali. Haft er að yfir-
varpi að hann hafi ekki staðið sig
sem skyldi að bæta rekstur al-
þjóðasamtéikanna, en dómur
kunnugustu manna er að engum
aðalritara hafi oröið meira ágengt
í því efni.
Áburður af þessu tagi kemur
líka úr hörðustu átt, þegar þess er
gætt að ekkert hefur staðið mark-
vissu starfi SÞ eins fyrir þrifum
síðasta áratug og skuldaþrjóts-
staða Bandaríkjanna. Þau skulda
samtökunum 1,4 milljarða dollara,
og Madeleine Albright, bandaríski
aðalfulltrúinn hjá SÞ, lét sér
sæma í umræðum í Öryggisráð-
inu um endurskipun Boutros
Ghali að veifa því að borin von
væri að Bandaríkjaþing sam-
þykkti að grynna á skuldinni með-
an hann skipaði sæti aðalritara.
Slíkar fjárkúgunaraðferðir full-
trúa Clintons eru í samræmi við
framkomu forsetans í málinu frá
upphafi. Ákvörðunin um að beita
sér gegn endurkjöri Boutros Ghali
og nota til þess neitunarvald ef
með þyrfti var ekki kynnt öðrum
ríkjum í Öryggisráðinu né banda-
mönnum Bandaríkjanna með eðli-
legum hætti, heldur var undirtylla
í utanríkisráðuneytinu í Was-
hington látin leka henni til New
York Times.
Frá upphafi embættisferils síns
hefur Bill Clinton aldrei gefið
Boutros Ghali tækifæri tl að eiga
við sig einkaviðtal til að skýra
sinn málstað. Og tilboði Boutros
Ghali um að taka framlengingu í
aðalritarastarfi í tvö ár eða þrjú
var hafnað.
Boutros Boutros Ghali á fundi með fréttamönnum í Róm meðan mat-
vælaráðstefna SÞ stóð þar yfir fyrr í mánuðinum.
skoðanir annarra
Aukið aðstoðina við Rúanda
„Flestir flóttamannanna sem snúa aftur heim til
Rúanda munu þurfa á utanaðkomandi aðstoð að
halda i marga mánuði, bæði í formi matvæla og
þaks yfir höfuðið. Samfélag þjóðanna ætti að við-
j halda og jafnvel auka aðstoðina innan Rúanda.
Stjóm Clintons gerði rétt 1 því að tilkynna um nýja
neyðaraöstoð fyrir 140 milljónh' dollara á mánudag.
Þjóðir heims verða að koma upp hlutlausu eftirliti
með öryggismálum til að koma í veg fyrir að mann-
drápin, hefndimar og fólksflóttinn endurtaki sig.“
Úr forustugrein New York Times
20. nóvember.
Fortíðarþrá Rússa
„Viðleitni Rússa til að halda í umfangsmikla
geimrannsóknaáætlun endurspeglar þrá þeirra eft-
ir stórveldisdögunum, sem þeir hafa tæpast efni á.
Samvinna Bandaríkjanna og Rússlands í geimnum
ætti að halda áfram að svo miklu leyti sem hún er
varkár og fjárhagslega hagkvæm. En það er einnig
eðlilegt að binda vonir við til að Rússar beini ein-
hverju af þeim sem fjármunum sem fara í geimáætl-
anir og hemaðarbrölt til að hækka laun kennara,
berjast gegn glæpum og til annars sem auðveldar
umskiptin frá sósíalisma til markaðsbúskapar."
Úr forustugrein Washington Post
20. nóvember.
Hungur í gær og hungur í dag
„Fimmtungur jarðarbúa þjáist af viðvarandi nær-
ingarskorti, jafnvel þótt næg fæða sé til fyrir alla.
Þannig var það fyrir 22 árum þegar matvælastofn-
un SÞ (FAO) hélt ráðstefnu um aðgerðir gegn
hungri. Þannig er það einnig í dag, tveimur dögum
eftir lok síðustu FAO-ráðstefnunnar í Róm. Orðin
tóm metta ekki.“
Úr forustugrein Politiken 19. nóvember.