Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1996, Blaðsíða 11
I>’V LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1996
11
Island í vetrarklæðum náttúrunnar. Pótt fyrirmæli um aukið jafnræði einstaklinga og fyrirtækja berist nú um stundir í stríðum straumi að utan er Ijóst að í mörgum greinum hefur í engu
verið hnikað við rótgrónum hagsmunum sem náð hafa sterkri stöðu vegna óeðlilegrar verndar ráðandi stjórnmálaafla á hverjum tíma. DV-mynd GVA
Undir okinu frá Jante
Aukin tengsl íslendinga við
umheiminn hafa ráðið mestu um
að athafnafrelsi einstaklinganna
hefur stóraukist hér á landi á
undanfomum áram.
Vegna aðildar okkar að evr-
ópskum mannréttindadómstóli og
ýmissa ákvæða í samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið hafa
landsmenn fengið möguleika á að
leita réttar síns erlendis gegn
þröngum hagsmunum ríkjandi
valdahópa. Oftar en ekki eru það
fyrirmæli að utan sem knýja fram
breytingar hér innanlands. Það
mun væntanlega gerast í auknum
mæli á komandi árum.
Þetta á fyrst og fremst við í at-
vinnurekstri og viðskiptum, þar
sem leikregur Evrópusambands-
ins gilda nú líka á fjölmörgum
sviðum á íslandi. Ekki fer á milli
mála að sú breyting hefur dregið
úr ýmiss konar misrétti, jafnað
samkeppnisaðstöðu fyrirtækja og
einstaklinga og komið neytendum
almennt til góða.
Vaxandi gjá
En þótt fyrirmælin berist í
stríðum straumi að utan nú um
stundir er auðvitað ljóst að í
mörgum greinum hefur í engu
verið hnikað við rótgrónum hags-
munum sem náð hafa sterkri
stöðu vegna óeðlilegrar verndar
og/eða fyrirgreiðslu pólitískra
stjórnvalda. Það er reyndar á
sumum þeim sömu sviðum og
gengur og gerist annars staðar í
Evrópu því þar halda hliðstæðir
pólitískir hagsmunir lika vemd-
arhendi yfir forréttindum hópa
sem hafa veruleg áhrif á stjóm-
málaflokka viðkomandi landa.
Þetta á til dæmis við í öllu því
sem varðar framleiðslu og sölu
margvíslegra landbúnaðarafurða.
Þess vegna er einokun og fá-
keppni enn algeng hér á landi og
misskipting eigna og tekna í þjóð-
félaginu mjög mikil. Það á enn
frekar við nú en áður að í efna-
legu tilliti búa tvær þjóðir i land-
inu. Gjáin á milli þeirra fer því
miður vaxandi - og ekkert útlit er
fyrir að þeirri þróun verði snúið
við á næstunni.
Að vísu eru kjarasamningar
framundan og forystumenn ým-
issa stéttarfélaga eru þegar famir
að tala um nauðsyn þess, einu
sinni enn, að bæta þurfi sérstak-
lega kjör þeirra sem verst eru
settir. En hvers vegna ætti niður-
staðan í næstu samningum að
vera önnur en undanfarin ár, en
þá hefur misréttið aukist en ekki
minnkað.
Gluggarnir opnast
Sennilega felst eitt hið mikil-
vægasta, sem fylgir þessu aukna
frelsi Islendinga, í þeim nýju
möguleikum sem einstaklingar
hafa til að leita gæfu sinnar og
gengis út fyrir landsteinana.
Hefðbundin landamæri hafa að
nokkru glatað merkingu sinni hin
síðari ár. íslendingar geta í vax-
andi mæli fengið ekki aðeins allar
þær upplýsingar erlendis frá sem
þeir hafa áhuga á heldur líka grip-
ið þar óteljandi tækifæri sem
bjóðast þeim eins og öðrum Evr-
ópubúum.
Þessa möguleika hafa ýmsir
landar okkar nýtt siðustu misser-
in til hins ýtrasta. Sumir hafa náð
stórkostlegum árangri á sínu
sviði og vakið af þeim sökum at-
hygli fjölmiðla og almennings.
Aðrir hafa fundið nýja lífsfyllingu
fyrir sig og fjölskyldu sína meira
og minna í kyrrþey.
Gluggarnir eru sem sagt að
Laugardagspistill
Elías Snæland Jónsson
opnast fyrir alla þá sem hafa eitt-
hvað það fram að færa sem eftir-
sóknarvert þykir úti í hinum
stóra heimi. ísland er ekki lengur
lítið, hálflokað þorp sem óttast
vonda heiminn handan við hafið,
þótt ýmsir hagi sér óneitanlega
enn eins og þröngsýnir og hrædd-
ir þorpsbúar.
Lögin frá Jante
Norsk/danski rithöfundurinn
Aksel Sandeftiose skráði nafn sitt
í norræna bókmenntasögu með
því að lýsa á einkar eftirminnileg-
an hátt hinum lokaða huga þorps-
búans, sem bregst við öllum, sem
með einum eða öðrum hætti
standa upp úr gráum hversdags-
leikanum, af þröngsýni og öfund
lítilmennisins.
Hann bjó til í skáldsögum sin-
um lítið þorp sem hann kallaði
Jante. Og þar liggja hin svoköll-
uðu Jantelög eins og lamandi
mara yfir mannlífinu - eins og
alls staðar annars staðar þar sem
lokaðir hugar ráða ferðinni.
Jantelög Sandemoses eru birt
fremst i skáldsögunni „En flygtn-
ing krydser sit spor“ og hljóða svo
í lauslegri þýðingu:
1. Þú skalt ekki halda að þú sért
eitthvað.
2. Þú skalt ekki halda að þú sért
eins mikill og við.
3. Þú skalt ekki halda að þú sért
klárari en við.
4. Þú skalt ekki ímynda þér að
þú sért betri en við.
5. Þú skalt ekki halda að þú vit-
ir meira en við.
6. Þú skalt ekki halda að þú sért
meira virði en við.
7. Þú skalt ekki halda að þú
dugir til neins.
8. Þú skalt ekki hlæja að okkur.
9. Þú skalt ekki halda að nokk-
ur kæri sig um .þig.
10. Þú skáft ekki halda að þú
getir kennt okkur neitt.
Þessi lög eða boðorð eru því
miður algilt lögmál, eins og
Sandemose benti sjálfur á í for-
mála að einni útgáfu skáldsög-
unnar, og sterkust þar sem smá-
mennin fá að gera sig mest gild-
andi, hvort sem er í litlu samfé-
lagi eða stóru, i þorpi, kaupstað,
borg eða ríki.
Hroki og þröngsýni
Það hefur löngum reynst erfitt
að losna undan ægivaldi Jantelag-
anna, sem virðast eiga sterkar
rætur í mannlegu eðli, en þessi
boðorð lágkúrunnar gera sig eink-
um gildandi í verki þegar meðal-
menni óttast að einhver annar sé
að skera sig úr eða ná góðum ár-
angri.
Líklega er besta leiðin til að
losa um fjötra Jante-laganna að
efla sem mest upplýsingastreymi
og samskipti milli einstaklinga og
þjóða og leggja áherslu á góða
menntun á öllum þeim sviðum
sem geta tengt fólk saman án til-
lits til landamæra. Það gerir mikl-
ar kröfur til menntakerfis þjóða -
kröfm: sem það stendur því miður
sjaldnast undir nema að mjög tak-
mörkuðu leyti.
Sumir myndu að óreyndu ætla
að öll menntun ætti að hafa í för
með sér aukna víðsýni og vinna
þannig gegn áhrifum þrúgandi
andleysis Jante-liðsins en því er
alls ekki fyrir að fara. Þvert á
móti virðast sumar greinar svo-
kallaðrar æðri menntunar hafa
þróast inn í blindstræti þar sem
endalaus eftirsókn eftir vindi í
myrkum "völundarhúsum rugl-
'ingslegra kenningakerfa lokar
hugum manna í sfað þess að opna
þá og elur í leiðinni á hrokagikks-
hætti og þröngsýni.
í Evrópu fyrri alda, og í sumum
löndum íslams nú á dögum, voru
það trúarbrögðin sem færðu ungt
fólk í slikra fjötra. En eins konar
bókstafstrú á jafnvel hinar hjákát-
legustu kenningar er stunduð víð-
ar í menntastofnunum sem eiga
þó að opna hugi ungs fólks i stað
þess að loka þeim. Þar eru Jante-
lögin enn í fiúlu gildi. Það er dap-
urlegt vegna þess að þar sem ok
meðalmennskunnar frá Jante
liggur eins og myrkur yfir mann-
lífinu heftir það alla sjálfstæða,
skapandi hugsun og framtak ein-
staklingsins.