Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1996, Side 21
JL>V LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1996
viðtal
21
Tannlæknastofa fyrir börn
Hef opnað tannlæknastofu mína að
Einholti 2, Reykjavík. Tannlæknastofan
er sérstaklega ætluð börnum og unglingum.
Tímapantanir í síma 561 3130
Sigurður Rúnar Sæmundsson
Tannlæknir, MPH, PhD.
„Þaö síöasta sem ég heyrði var aö ég fengi aldrei aö sjá eöa vita af barninu
framar," segir Hjörtur. Nokkrum dögum síðar fór Matthildur dóttir hans utan
með móöurömmu sinni og hefur hann ekki fengið neinar upplýsingar um
hana síðan „nema eitt lítiö bréf síðastliðið sumar sem sagði fátt annað en aö
barnið væri betra en önnur börn.“
„Viö notfærðum okkur það og
það var haldinn fundur hjá sýslu-
mannsfulltrúa með móður barns-
ins og sambýlismanni móður-
ömmu barnsins, sem að mínu mati
er ótengdur baminu að öRu leyti.
Sá fundur endaði með því að „það
varð allt vitlaust", maðurinn tók
brjálæðiskast og varð mjög reiður
þar sem ég hafði lýst því yfir að ég
væri mjög ósáttur við hve óheiðar-
lega hefði verið staðið að öllum
málum varðandi barnið, hlutir
upplognir og sviknir og loforð
ásamt samningum þverbrotin. Það
er það eina sem ég þekki frá þessu
fólki,“ segir Hjörtur.
Fundurinn hjá sýslumannsfúll-
trúa endaði þannig: „Það síðasta
sem ég heyrði var að ég fengi
aldrei að sjá eða vita af barninu
framar," segir Hjörtur. Nokkmm
dögum síðar fór dóttir hans utan
með móðurömmu sínni og hefur
hann ekki fengið neinar upplýsing-
ar um hana síðan „nema eitt lítið
bréf síðastliðið sumar sem sagði
fátt annað en að barnið væri betra
en önnur börn,“ segir hann. For-
eldrar hans hafa þó fengið bréf og
myndir þegar þau hafa skrifað eft-
ir því.
Lögin marklaus?
Hjörtur er að vonum afar ósátt-
ur við hvernig farið hefur verið
með rétt hans varðandi Matthildi.
Hann bendir á að í lögum sé feðr-
um tryggður umgengnisréttur en
Sýslumaðurinn í Reykjavík:
Konurnar eru
óhlutdrægar
samið. Ef ekki næst samkomu-
lag getur þurft að úrskurða og
þá fer málið fyrir barnaverndar-
nefhd. Almenna reglan er auð-
vitað sú og ég treysti því að hér
hjá þessu embætti sé ekki brot-
inn réttur á einum eða neinum,"
segir hann.
Rúnar segir að hjá embættinu
í Reykjavík vinni að meirihluta
konur í svokallaðri sifladeild,
sem fer með forræðismál.
Ástæðan fyrir því sé einfaldlega
sú að konurnar hafi frekar ósk-
að eftir því en karlarnir. Sú
spimning hafi komið til umræðu
innan embættisins hvort kon-
umar séu ef til vill hlutdrægar
en menn hafi komist að þeirri
niðurstöðu að svo sé ekki. Þær
vegi og megi hvert mál fyrir sig
með vísan til laga og reglna.
-GHS
„Foreldrar hafa auðvitað jafn-
an rétt en oft er það þannig að
barnið endar hjá móðurinni. Að
mínum dómi er þetta almennt
séð ekki svona eins og maður-
inn segir. Það að réttur feðr-
anna sé fótum troðinn er ekki
svo að mínum skilningi og á
ekki að vera svo,“ segir Rúnar
Guðjónsson, sýslumaður i
Reykjavík, þegar DV bar gagn-
rýni Hjartar Guðmundssonar
undir hann.
-En em karlmenn sem hafa
gefið forræðið eftir verr staddir
en aðrir feður?
„Forræðið léndir venjulega
hjá öðm foreldrinu. Það er líka
hægt að hafa sameiginlegt for-
ræði yfir börnum en það er frek-
ar sjaldgæfara. Síðan er virtur
svokallaður umgengnisréttur
bams og venjulega er um hann
það sé undir móðurinni komið
hvort þeir fái umgengnina mögl-
unarlaust eða ekki. Þeir hafi
einnig rétt á að tjá sig um málefni
barnsins og leita eigi umsagnar
þeirra ef verulegar breytingar
verði á högum barnsins. Þessi
ákvæði í barnalögum „eru bara
orð á pappír sem enginn þarf að
horfa á. Ef við viljum segja eitt-
hvað um hagi barnsins eða hafa
einhver áhrif á uppeldi eða líf þess
þá hefur það ekkert að segja,“ seg-
ir hann.
Hann telur að þriðji aðili, sem
sé að engu leyti skyldur barninu,
geti haft miklu meiri áhrif á
framvindu mála varðandi barnið
en sjálfur faðirinn, dæmi um það
sé hlutur sambýlismanns móður-
ömmunnar í forræðisdeilunni.
„Þannig er það að minnsta kosti í
mínu tilviki. Sýslumannsfulltrú-
ar sem fara með skilnaðarmál
mega helst ekki heyra minnst á
að faðir geti umgengist börn sín
eða fengið forræði yfir þeim.
Þessir fulltrúar eru í flestum til-
vikum konur sem líta á karlmenn
sem óæskilega aðila,“ útskýrir
hann.
„Ef karlmaður ætlar að fylgja
eftir sínum rétti kemur hann hvar-
vetna að lokuðum dyrum því í
flestum tilvikum eru það konur
sem fara með mál er varða hags-
muni bama og mæðra. Slík mál
eru mjög torsótt og flestir gefast
upp,“ bætir hann við.
-GHS
Fæst í öllum litum
Þykkt (I7mm)
Fizzléttur og handhægur
70 tíma hleðsla (200
tíma hleðsla fáanleg)
og verðið aðeins
stgr.
Eigum einnig úrval af
aukahlutum fyrir allar
tegundir GSM síma.
Heimilistæki hf
TÆKIMI-OG TÖLVUDEILD
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
Umboösmenn um land allt.