Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1996, Blaðsíða 59
67
LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1996
Meg Ryan leikur í Courage Under Rre:
Hóf ferji sinn í sápuóperu
Meg Ryan leikur aðalMut-
verkið á móti Denzel Was-
hington í kvikmyndinni
Courage under Fire
sem Regnboginn
og Laugarásbió
frumsýndu í
gær. Þar leik-
ur hún þyrlu-
flugmann sem
lét lífið í átök-
um við íraka
eftir að
þyrlu
hennar
leikkona þegar Ryan var fimmtán
ára gömul. Hún varð þó aldrei leik-
kona heldur var það dóttirin sem
sló í gegn. Ryan lék fyrst í sápuóp-
erum og síðan fór hún að fá lítil
hlutverk í kvikmyndum. Árið 1989
komu ótvíræðir hæfileikar Ryan í
gamanhlutverkum í ljós þegar hún
lék í kvikmyndinni When Harry
Met Sally. Hún vakti mesta athygli
fyrir senuna þar sem hún lék
uppgerðarfullnægingu og
vann fyrir leik sinn í mynd-
inni Golden Globe-verð-
launin sem besta leik-
konan.
Árið 1991 giftist
hún leikaran-
um Dennis
Quaid sem
þá var ný-
kominn úr
áfengismeð-
ferð. Hún
gerði hann miklu hamingjusamari
en hann hafði áður verið. Meg Ryan
sló aftur í gegn í kvikmyndinni
Sleepless in Seattle og var tilnefnd
til Golden Globe-verðlaunanna fyrir
það hlutverk. Hún sneri síðan blað-
inu við og lék mjög alvarlegt hlut-
verk í kvikmyndinni When a Man
Loves a Woman. Eftir það fór hún
aftur í gamanmyndirnar og lék í
kvikmyndinni French Kiss árið
1995.
Meg Ryan hefur leikið í kvik-
myndunum Rich and Famous,
Amityvilli, The Demon, Top Gun,
Armed and Dangerous, Innerspace,
Promised Land, D.O.A. The Presi-
dio, Jo Versus the Volcano, The
Doors, Prelude to a Kiss, Flesh and
Bone, I.Q, Restoration, auk þeirra
mynda sem áður voru nefndar.
-em
Meg Ryan ásamt Denzel Washington og leikstjóranum Ed-
ward Zwick við tökur á Courage Under Fire.
Hetjudáð í Regnboganum og Laugarásbíói:
Mistök í Persaflóastríðinu
og hetjudáð þyrluflugmanns
í gær var frumsýnd í Regnbogan-
um og Laugarásbíói Hetjudáð
(Courage under Fire), ný bandarisk
kvikmynd sem notið hefur vinsælda
í Bandaríkjunum. Baksvið myndar-
innar er Persaflóastríðið og segir
annars vegar af afdrifaríkum mis-
tökum og hins vegar af einstakri
hetjudáð. Mistökin skrifast á Nat-
haniel Serling ofursta sem ber
ábyrgð á því að bandarískum skrið-
dreka var grandað vegna mistaka í
næturárás á herdeild íraka. Yfir-
menn Serlings vilja draga fjöður
yfir rannsókn málsins enda er ekki
æskilegt að fjölmiðlar komist yfir
upplýsingar er málið varða. Sektar-
kenndin hvílir aftur á móti þungt á
herðum Serlings.
í von um að það dreifi huga Serl-
ings frá atburðinum er honum falið
að meta og rannsaka fyrstu tilnefn-
ingu sem kona fær til æðsta heið-
ursmerkis fyrir hugrekki. Sú til-
nefnda er Karen Walden sem Meg
Ryan leikur. Hún var þyrluflugmað-
ur sem lét lífið i átökum við íraka
eftir að þyrlu hennar var grandað í
björgunarleiðangri. Við rannsókn-
ina kemur fram aö það er ósam-
ræmi í frásögn hermannanna sem
störfuðu með henni um hvað raum-
verulega gerðist.
Með hlutverk Serlings fer Denzel
Washington en Meg Ryan leikur
Karen Walden. í öðrum hlutverkum
eru margir þekktir leikarar. Má
nefna Lou Diamond Phillips, Mich-
ael Moriarty, Scott Glenn, Matt
Damon, Bronson Pinchot og Reginu
Taylor. Leikstjóri er Edward Zwick
og er þetta í annað skipti sem hann
og Denzel Washington vinna saman
en það var einmitt Edward Zwick
sem leikstýrði Glory en fyrir leik
sinn í þeirri mynd fékk Denzel Was-
hington óskarsverðlaun. Zwick var
mörg ár í sjónvarpinu sem framleið-
andi, leikstjóri og handritshöfundur
ýmissa þátta áður en hann leik-
stýrði fyrstu kvikmynd sinni, About
Last Night, fyrir tíu árum. Rob
Lowe og Demi Moore léku aðalhlut-
verkin í henni. Næsta kvikmynd
hans var Leaving Normal. Er hún
um tvær ungar konur sem eru orðn-
ar leiðar á venjulegu lífi og ákveða
að flytja til Alaska. Christine Lathi
og Meg Tilly léku aðalhlutverkin.
Þriðja mynd hans, Glory, fékk síðan
tilnefningu til óskarsverðlauna sem
besta kvikmyndin. Næsta mynd
Zwicks, Legends of the Fall naut
mikiUa vinsælda og gerði Brad Pitt
að stórstjömu. Courage under Fire
er fimmta kvikmynd hans.
Courage under Fire var ekki tek-
in á þeim slóöum þar sem hún ger-
ist enda ekki hægt fyrir kvikmynda-
gerðarmenn að athafna sig þar sem
Persaflóastríðið var háð og Saddam
ræður enn ríkjum, heldur voru þau
atriði sem gerast eiga í stríðinu tek-
in í Texas, nánar tiltekið E1 Paso, og
í átta vikur dvaldi kvikmyndahóp-
urinn í eyðimörkinni og í borginni
Austin við tökur myndarinnar. I
fyrstu höfðu Edward Zwick og félag-
ar gert sér vonir um að bandaríski
herinn myndi veita þeim aðstoð og
voru búnir að fá jáyrði en aðeins
tveimur vikum áður en tökur hófust
snerist hernum hugur og hann neit-
aði allri samvinnu. Þar með þurfti
að fara að leita að skriðdrekum og
öðrum hemaðartólum út um allan
heim. Skriðdrekarnir voru fengnir
frá Ástralíu og vom það 40 ára
gamlir breskir skriödrekar sem
fengu yfirhalningu svo þeir litu út
eins og þeir sem notaðir voru í
stríðinu.
Einhver mikilfenglegustu atriðin
í myndinni eru þau sem gerast með
herþyrlum í lofti og sá sem hannaði
þau atriði og sviðsetti er David Jo-
nes en meðal slíkra atriða sem hann
ber ábyrgð á eru þyrluratriðin í
Apocalypse Now.
-HK
Ekki bara
Michael Jordan
Eins og flestum er kunnugt
leikur Michael Jordan aðal-
hlutverkið í Space Jam, vin-
sælustu kvikmyndinni í
Bandaríkjunum um þessar
mundir og er þetta fyrsta kvik-
myndin sem hann leikur i.
Önnur stórstjarna úr körfu-
boltanum, Shaquille O’Neal, -
sem einnig reyndi fyrir sér í
kvikmyndum, lék í Kazam í
sumar, og hlýtur að líta öf-
undaraugum til Jordan því
myndin kolféll. En það eru
fleiri körfuboltasnillingar í
J Space Jam. í Jarðarliðinu,
sem Jordan og Bugs Bunny
þjálfa, eru Larry Bird,
Charles Barkley og Patrick
Ewing ásamt Daffy Duck, El-
mer Fudd og Porky Pig.
Andy Garcia fram-
leiðir og leikstýrir . _
Andy Garcia bætist bráð-
lega í hóp þeirra kvikmynda-
leikara sem gerast bæði fram-
leiðandi og leikstjóri. Hann
mun framleiða og leika aðal-
hlutverkið i The Scalper sem
Richard Wenk leikstýrir en
hann skrifar einnig handritið.
Fjallar myndin um smá-
krimma sem reynir að rétta sig
af til að halda kærustunni. Ný-
lega lauk Garcia við að leik-
stýra The Lost City sem er ást-
arsaga er gerist í Havana með-
an á uppreisninni stóð. Meðal
leikara í henni eru Edward
James Olmos, Kevin Spacey,
Robert Duvall, Isabella
Rossellini og Joe Mantegna.
Sophia Loren í
franskri kvikmynd
Sohia Loren, sem minnti
rækilega á það í Grumpier
Old Men að hún er enn hið
fegursta fljóð þótt ekkert ung-
lamb sé lengur, er um þessar
mundir að leika í franskri
kvikmynd, Soleil. Leikstjóri er ‘
Roger Hanin en hann er þekkt-
ari sem leikari. Myndin gerist
í seinni heimsstyrjöldinni og
leikur Sophia Loren móður af
gyðingaættum sem býr við
mikla óvissu um örlög fjöl-
skyldu sinnar. Meðleikarar
Sophiu Loren eru Philippe
Noiret, Marianne Sagebrecht,
Michel Creton, Jean-Claude
Caron og Roger Hanin.
Mynd af konu
Ein þeirra kvikmynda sem
beðið er með hvað mestri eft-
irvæntingu er The Portrait
of a Lady, sem leikstýrt er af
Jane Campion (Piano). Er
myndin gerð eftir þekktri
skáldsögu Henry James. í
aðalhlutverki er Nicole Kid-
man. Mikill fjöldi þekktra
leikara er í öðrum hlutverk-
um. Má nefna John Mal-
kovich, Barbara Hersey,
Mary-Louise Parker, Martin
Donovan, Shelley Winters,
Richard E. Grant, Shelley
Duvall, Christian Bale,
Viggo Mortensen og John
Gielgud. Portrait of a Lady
verður sýnd rétt fyrir áramót-
in í New York, svo hún verði
gjaldgeng í óskarinn, en al-
mennar sýningar hefjast
síðar.