Frjáls verslun - 01.10.1946, Page 24
Um ljósabúnað í verzlunum
Eftir Lumen.
Aldrei kann maður eins vel að meta ljósið og
í skammdeginu, Jiegar „náttmyrkrið" liellist yfir
allt og alla um „hábjartan daginn“. Hvílík þæg-
indi að geta þá lireyft til einn smáhnapp og þar
með látið Ijósið svelgja upp myrkrið í híbýlum
sínum og vinnustöðvum.
Nýjasti stórsigurinn í ljósatækninni er fluores-
cent-lampinn, sem hefur nú um fáein ár verið
notaður með „skínandi" árangri — svo góðum,
að vart verður fundinn munur dags og nætur,
Jrar sem hann er í notkun.
Enn sem komið er tíðkast fluorescent-ljós ó-
víða, nema á vinnustöðum, einkum í verzlun-
um og skrifstofum. Samt sem áður er svo að sjá,
sem áfergja verzlunareigenda í þennan nýstár-
lega ljósabúnað, hafi gengið nokkuð á hluta
smekkvísinnar og nytseminnar. Mörg þeirra
Ijósatækja, sem eg hef nýlega skoðað, hafa verið
sett upp af lítilli hagsýni og munu áreiðanlega
ekki verða viðskiptunum til ávinnings, þegar
nýjabrumið er farið af þessháttar ljósum. Þetta
er í sjálfu sér ekki að undra, Jrví að nýjunga-
girnin hefur leitt til svipaðra yfirsjóna á mörg-
um sviðum. En dálítil fyrirhyggja og hugkvæmni
— að viðbætum ráðleggingum fagmanns í ljósa-
tækni — mundi að sjálfsögðu tryggja betur varan-
legt notagildi í þessum efnum.
Hvaða kaupmaður mundi hafa Jxjlað það, fyr-
ir stríð, að emaljeraðir Ijósa-,,diskar“ héngju
niður úr búðarloftinu, yfir vönduðum og falleg-
um verzlunarvörum? Og hver mundi ]xi hafa
fellt sig við að láta ramagnslampa hanga um-
gjörðalausa og óskyggða yfir söluborðum sínum?
Þeir hefðu vafalaust verið fáir. En samt er liægt
að sjá hliðstæðar smekkleysur og aðrar svipaðar
yfirsjónir í fjölda verzlana, að því er varðar
notkun fluorescent-lampans. Svo virðist sem
Jretta sé látið óátalið af viðskiptamönnunum, enn
sem komið er, meðan nýjabrumið er smekkvís-
inni yfirsterkara. Eg endurtek: Enn sem komið
er!
184
Hjá Simpsons við Piccadilly.
Þeir, sent liafa í huga að endurnýja ljósatæki
sín, ættu ekki að horfa um of í eyrinn. Ljósa-
leiðslur Jjarfnast skipulags, og í hverri verzlun
— smárri sem stórri — þarf að taka tillit til Jjeirra
sérstöku aðstæðna, sem Jjar eru fyrir hendi.
Verzlunarfyrirtækið Bourne & Hollingworth
í London er nú að gera tilraun með nýja floures-
cent-Iýsingu í blómadeild sinni. Þar eru öll
ljósastæðin í loftinu og varpa Jjau geysimiklu
ljósmagni niður um búðina. Þessi ljós eru sam-
bland af dagsljósi og hvítu ljósi, svo að litaand-
stæður blómanna koma afar vel fram.
En Jjrátt fyrir Jjað getur Jjetta talizt fremur
vafasönr lýsing fyrir almennar vörubúðir, Jjví
að sökurn þess hve hún er sterk, clregur hún
úr áhrifum annarra sýningarljósa (í sýningar-
kössum o. s. frv.), sem eiga að vera tíu sinnum
skærari en aðalljósin.
Einnig er Jjað athugavert við Jjessa sterku loft-
lýsingu, að henni hættir við að draga athygli
viðskiptamannsins frá búðarborðunum sjálfum,
sem stafar af Jjví að öll ljósin koma úr sömu
áttinni. Ef minna ljósmagn kæmi ofan frá en
meira úr beinni sjónarhæð eða neðan frá — t. d.
frá uppljómuðum söluborðum, sýningarkössum
og ljósaauglýsingum — mundu áhrifin verða
FRJÁLS VERZLUN