Frjáls verslun - 01.10.1946, Side 41
Samúel Pálsson gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyr-
ir sveitarfélag sitt. Hann var lengi í stjórn Sparisjóðs
Arnfirðinga og veitti sjóðnum forstöðu um tíma. Hann
átti og mikilvægan Jíátt í útgerðar- og félagsmálum
Bílddælinga.
Samúel var glæsimenni ásýndar, hugljúfi vina
sinna, grandvar til orðs og æðis og gæddur flestum
hæfileikum drenglundaðs manns.
Hann kvæntist árið 1910 eftirlifandi konu sinni,
Guðnýju Árnadótur frá Stapadal í Arnarfirði. Þau
áttu tvo drengi. Lézt annar Jreirra á barnsaldri, en
hinn er Sigurður Samúelsson læknir.
Steingrímur Torfason, kaupmaSur í Hafnarfirði,
andaðist 23. sept. s. 1.
Hann var fæddur 16. okt. 1882 í Hafnarfirði. For-
eldrar hans voru hjónin Torfi Jónsson sjómaður og
Sigríður Steins;rímsdóltir. Steingrímur lauk gagn-
fræðanámi í Flensborgarskólanum árið 1897 og tók
Jw kennarapróf 1906. Sama ár gerðist hann kennari
við barnaskóla Hafnarfiarðar og gengdi bví starfi til
1911, er hann tók að sér vörzlu við hafskipabryggju
bæiarins. Ilafði hann það starf með höndum í 8 ár,
en 1919 byrjaði hann verzlunarrekstur sinn, sem hann
stundaði mestmegnis til dauðadags.
Steingrímur var merkur maður í félagsmálum fæð-
ingarbæjar síns. Hann var m. a. bæjarfulltrúi 1920—
23, formaður Sjúkrasamlags Hafnarfjargar og Garða-
hrepps um allmörg ár, átti sæti í sóknarnefnd í rúm
30 ár, lengstaf sem formaður, og meðhjálpari í Hafn-
arfjarðarkirkju í 14 ár.
Steingrímur Torfason var drengskaparmaður mik-
ill, góðum gáfum gæddur, samvizkusamur, lijálpfús,
trúrækinn og trygglyndur.
Kona hans, Ólafía Hallgrímsdóttir frá Lónakoti í
Hraunum, lifir mann sinn ásamt 4 börnum þeirra, en
alls eignuðust þau hjónin 7 börn.
Valdemar F. Nor'ðjjjirri, stórkaupm. í Reykjavík.
andaðist 13. des. s. 1.
Ilann var fæddur í Keflavík 28. ágúst 1886, sonur
Ólafs Norðfjörð verzistj. þar og Júlíu P. Snæbjörns-
dóttur. Hann stundaði nám í kvöldskóla verzlunar-
manna (sem var undanfari Verzlunarskólans) 1902—
03 og naut eftir það stundakennslu í tungumálum og
öðrum verzlunarfræðum. Síðan gerðist hann starfs-
maður Fischersverzlunar og síðan Duus-verzlunar,
þegar eigendaskipti urðu á henni árið 1906. Hjá Duus
vann hann svo til ársins 1914. Er Eimskipafélag Is-
lands setti upp skrifstofu hér árið 1915, gekk Valde-
mar í þjónustu þess og vann þar til 1919, en ])á tók
liann sér fyrir hendur umboðsverzlun, sem hann starf-
rækti þaðan í frá. Var hann m. a. umboðsmaður hins
þekkta hveitifirma Joseph Rank Ltd. hér á landi.
Valdemar F. Norðfjörð var gæddur góðum hæfi-
leikum verzlunar- og kaupsýslumanns. Hann var fróð-
ur og vel að sér um verzlunarmál, heiðarlegur, atorku-
samur, ósérhlífinn og höfðinglyndur. Hann var búinn
ágætri greind en var nokkuð sérlundaður og sætti
því stundum misskilningi þeirra, sem lítt þekktu hann.
Var hann Jieim mun meiri vinur góðra vina sinna.
Valdemar var ókvæntur og barnlaus.
FRJÁLS VERZLUN
201